ÍBV Vestmannaeyjar

ÍBV Vestmannaeyjar

Share

ÍBV er öflugt íþróttafélag í Vestmannaeyjum
/ Official page of IBV Vestmannaeyjar
www.ibvsport.is maí 1945 við stofnun ÍBV-Héraðssambands.

ÍBV-Íþróttafélag er öflugt íþróttafélag í Vestmannaeyjum.
ÍBV var stofnað árið 1903 sem Knattspyrnufélag Vestmannaeyja, var endurnefnt Íþróttabandalag Vestmannaeyja 6. KV og síðar ÍBV hefur allt frá stofnun Þórs og Týs verið skipað leikmönnum þeirra frá 1913 og 1921 fram til 1996 er ÍBV-Íþróttafélag var sett á laggirnar.

31/08/2026

Skráing er hafin í Boltaskólann á Abler fyrir árganga 2021 og 2022.
Æfingar hefjast 7. september.

Milena Mihaela í lokahóp U17 hjá KSÍ 26/08/2026

Milena Mihaela í lokahóp U17 hjá KSÍ Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið Milenu Mihaelu Patru í leikmannahóp til þátttöku í æfingamóti sem fram fer í Portúgal dagana 7.-15. september nk. Liðið æfir á Íslandi sunnudaginn 6. september áður en haldið er til Portúgal þann 7. september.

Fjórar stúlkur á æfingar með U16 hjá KSÍ 24/08/2026

Til hamingju með valið stelpur 💛💛

Fjórar stúlkur á æfingar með U16 hjá KSÍ Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna hjá KSÍ, valdi Erlu Hrönn Unnarsdóttur, Friðriku Rut Sigurðardóttur, Hrafnhildi Kristleifsdóttur og  Lenu Maríu Magnúsdóttur til æfinga 19.-20. ágúst sl.

24/08/2026

ÍBV og Macron hefja samstarf

ÍBV og ítalska íþróttavörumerkið Macron hafa gert með sér samstarfssamning. Framundan eru spennandi tímar þar sem gæði, metnaður og glæsileg hönnun mætast. Macron mun sjá ÍBV fyrir æfinga- og keppnisfatnaði á komandi tímabilum. Þjónustan við yngri flokka mun vera í heimabyggð og fara í gegnum VM (Vinnuföt og merkingar) á Skólavegi 6.

Fylgist með á næstunni!

21/08/2026

Æfingataflan fyrir veturinn 2026-2027 tekur gildi nk. mánudag 24. ágúst, um leið fara fram flokkaskipti í handbolta, ásamt 6. og 7. flokkum í fótbolta - eldri flokkar fara í flokkaskipti um leið og þau klára Íslandsmót.

14/08/2026

Æfingaleikir gegn Stjörnunni um helgina

Kvennalið ÍBV er á fullu í undirbúningi fyrir komandi tímabil og það er nóg um að vera framundan.

Um helgina spila stelpurnar okkar tvo æfingaleiki gegn Stjörnunni en þetta eru fyrstu leikir liðsins á undirbúningstímabilinu.

Föstudagurinn 14.ágúst
ÍBV - Stjarnan kl.17:30

Laugardagurinn 15.ágúst
ÍBV - Stjarnan kl.13:30

Við hvetjum fólk til þess að kíkja við og fylgjast með stelpunum okkar í leikjunum.

Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar! 🤍🖤

Milena Mihaela, Tanja og Emil á æfingar hjá KSÍ 07/08/2026

Milena Mihaela, Tanja og Emil á æfingar hjá KSÍ Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Milenu Mihaelu Patru og Tönju Harðardóttur til æfinga dagana 11.-12. ágúst nk. Æfingarnar fara frama á Avis vellinum.

30/07/2026

👉Nýjung - kaffi í tjaldið
👉Helltu uppá brúsann heima áður en þú skundar í dalinn
👉Kaffið klárast og þú þú nennir ekki að hella uppá í tjaldinu, þá græjum við það fyrir ykkur í Poppsjoppunni

29/07/2026

👉Engin almenn bílastæði verða fyrir innan afleggjarann að Herjólfsdal
👉Aðeins starfsfólk Þjóðhátíðar og fatlaðir/hreyfihamlaðir einstaklingar fá að fara með bíla innfyrir afleggjara, þau geta keyrt einstaklingum að hliði og lagt bílnum við veginn inní dal - athugið, það eru takmörkuð stæði
👉Þau sem illa ráða við að ganga frá hliði inn í Dal geta tekið rútu frá íþróttamiðstöðinni, rútan fer innfyrir hliðið, sjá tímasetningar hér fyrir neðan - þetta er snilld fyrir virðulegu borgarana okkar
👉Hvetjum ykkur til að skilja bílinn eftir heima, löbbum eða tökum strætó

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Vestmannaeyjar?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Vestmannaeyjar