31/08/2026
Frábærir haustdagar á Selsvelli, um að gera að spila golf nú þegar völlurinn er í toppstandi. Lausir rástímar.
Golfklúbburinn Flúðir, Selsvelli, við Flúðir og er 18 holu golfvöllur. Hér er að finna upplýsingar og myndir af starfinu í GF.
Tilkynningar um mót og aðra viðburði einnig.
31/08/2026
Frábærir haustdagar á Selsvelli, um að gera að spila golf nú þegar völlurinn er í toppstandi. Lausir rástímar.
29/08/2026
Opna grænmetismótið, styrkt af Sölufélagi Garðyrkjumanna fer vel af stað í blíðskaparveðri. Mercedes Bens bifreið frá Öskju í verðlaun ef einhver fer holu í höggi á 16 braut. Nýr aftasti teigur á 8 braut formlega tekinn í notkun og allir glaðir.
21/08/2026
ÁTTU EFTIR AÐ SKRÁ ÞIG. Skráning er í golfbox á www.golf.is
Vorum að bæta við rástímum frá kl 07:00 vegna góðrar aðsóknar og flottrar veðurspár.
MERCEDES BENZ EQA FYRIR HOLU Í HÖGGI.
Opna íslenska grænmetismótið 29 ágúst nk. er golfmót þar sem leikin er punktakeppni með hámarksforgjöf (36).
Keppt er í þremur flokkum; karla, kvenna og barna (14 ára og yngri – 18 holur).
Mercedes Benz GLA Hybrid í verðlaun fyrir holu í höggi á 16 braut.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.
Næst holu á öllum par 3 holum vallarins - 6 talsins
Dregið úr skorkortum, tveir hringir á Selsvelli.
Mótsgjaldið er 8.300 kr./fullorðinn. Frítt er fyrir þátttakendur í barnaflokknum!
Skráning er í golfbox á www.golf.is
Sölufélag garðyrkjumanna er aðalstyrktaraðili mótsins (www.islenskt.is)
19/08/2026
Hér var líf og fjör um helgina og hugsanlega aðsóknarmet slegið. Sól og blíða alla dagana, þó blásið hafi lítillega af og til. Sennilega annað met slegið en hér spiluðu fimm glæsikvendi 18 holur s*x daga í röð og yljuðu sér svo við brennu síðasta kvöldið. 20 manna strákahópur kepptu innbyrðis tvo daga og fór vel á með öllum. Vellinum hælt í hástert og erum við hæstánægð með það og aðsóknina og að héðan fari allir með góðar minningar og í góðu skapi.
MERCEDES BENZ EQA FYRIR HOLU Í HÖGGI.
Opna íslenska grænmetismótið 29 ágúst nk. er golfmót þar sem leikin er punktakeppni með hámarksforgjöf (36).
Keppt er í þremur flokkum; karla, kvenna og barna (14 ára og yngri – 18 holur).
Mercedes Benz EQA í verðlaun fyrir holu í höggi á 16 braut.
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.
Næst holu á öllum par 3 holum vallarins - 6 talsins
Dregið úr skorkortum, tveir hringir á Selsvelli.
Mótsgjaldið er 8.300 kr./fullorðinn. Frítt er fyrir þátttakendur í barnaflokknum!
Skráning er í golfbox á www.golf.is
Sölufélag garðyrkjumanna er aðalstyrktaraðili mótsins (www.islenskt.is)
18/08/2026
Hann Mannsi ætlar að selja bústaðinn sinn, sem liggur rétt við golfvöllinn.
Endilega skoðið ef ykkur vantar stað að vera á, á milli hringja.
Til sölu: Sléttuvegur 1 846 Flúðir • 5 herbergi • 146.7 m² • 108.500.000 kr.
17/08/2026
Réttarmótið 2026 – Uppskeruhátíð GF - Opið mót
Skráning er í gegnum GolfBox - Mitt Golf
Dagskrá og fyrirkomulag
Keppendur mæta kl. 11.00 og snæða kjötsúpu í tilefni dagsins.
Mótið verður síðan sett formlega kl. 11.45 og ræst verður út af öllum teigum kl. 12.00.
Keppendur sem vilja bjóða með sér gestum í lokahófið þurfa að hafa samband í gegnum tölvupóst á netfangið [email protected] þar sem fram koma nöfn gesta og símanúmer tengiliðs. Vinsamlegast merkið póstinn „Lokahóf 2026“.
Réttarmótið er punktakeppni (24/28) þar sem veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í karla- og kvennaflokki, næst holu á par 3 brautum vallarins (boltinn skal vera á flötinni) og fyrir lengsta teighögg í karla- og kvennaflokki (boltinn skal vera á snöggslegnu svæði brautarinnar). Einnig verða veitt verðlaun fyrir 0 pútt.
Fyrir besta skor (högg) án forgjafar verða veitt sérstök verðlaun, þ.e. farandgripirnir Forystusauðurinn fyrir karlaflokk og Forystuærin fyrir kvennaflokk.
Þeir tveir kylfingar sem ná besta skori án forgjafar í hvorum flokki fyrir sig (Forystuærin og Forystusauðurinn), geta ekki unnið til verðlauna í punktakeppninni, séu þeir í einu af þremur efstu sætunum.
Kl. 17.30 hefst síðan lokahófið með fordrykk og tónlist, veitingum og verðlaunaafhendingu. Hljómsveitin Sveitabræður leikur fram eftir kvöldi.
Verð per mann er 13.900 kr.
Athugið að þátttaka í mótinu er jafnframt þátttaka í lokahófinu.
Þeir sem ekki taka þátt í mótinu en vilja vera í lokahófinu/málsverðinum, greiða 13.900 kr./mann í afgreiðslunni hjá Kaffi-Sel. Forsenda fyrir þátttöku í málsverðinum er að gestir hafi skráð sig á borð.
Boðið verður upp á glæsilegt veisluhlaðborð:
Hægeldað UN Prime Rib og marineruð kalkúnabringa
með nýjum kartöflum í smjöri, salati, steikt grænmeti og grillaðir tómatar.
Sósur; Bearnaise og rjóma sveppasósa með sherry.
Eftirréttur:
Kaffi og konfekt.
Mætum öll með gleði í hjarta.
13/08/2026
Sveitakeppninni er nú lokið. Skemmst frá að segja að sveit yngri kylfinga vantaði herslumuninn þegar upp var staðið í stigasöfnun í ÖLLUM sínum leikjum. Heilladísirnar voru ekki með okkur í liði að þessu sinni.
Af eldri sveitinni 75+ í Þorlákshöfn bar við annan tón. Má segja að þeir hafi komið séð og sigrað en þeir komust alla leið í að leika um sæti 3 í keppninni. Gríðarlega góður árangur sveitarinnar á sínu fyrsta ári í harðri keppni.
Þið stóðuð ykkur vel og voruð klúbbnum til sóma.
09/08/2026
Við höfum sett upp fallegt verk/mynd af þeim Halldóri Elíasi Guðnasyni og Ástríði G. Daníelsdóttur stofnendum Golfklúbbsins Flúðir. Hægt er að lesa um söguna hér;
www.gfgolf.is/golfklubburinn/saga-gf/
Þeir Guðmundur Rúnar Lúðvíksson og Jónas Ragnarsson stóðu að þessu og færum við þeim þakkir fyrir það.
Einar Lárus Ragnarsson
Rekstrarstjóri
06/08/2026
| Monday | 08:00 - 21:30 |
| Tuesday | 08:00 - 21:30 |
| Wednesday | 08:00 - 21:30 |
| Thursday | 08:00 - 21:30 |
| Friday | 08:00 - 21:30 |
| Saturday | 08:00 - 21:30 |
| Sunday | 08:00 - 21:30 |