15/07/2026
Höfum þetta Jónsmannamót frjálslegt í dag vegna stórleiks kl 19.00.
Skráið ykkur sjálf á rástima kringum 16.00 eða strax eftir leik og sendið inn skorkort eða gamebook.
Munið eftir mótsgjaldi og heilsið uppá nýju starfsmennina okkar 🤖
10/07/2026
Hvetjum alla krakka 11-16 ára að taka þátt! Hafið samband við Friðrik í síma 8681322 ef þið viljið slást í för með GFH.
09/07/2026
Er einhver fyrir norðan sem getur kippt nokkrum sekkjum af boltum austur? Megið heyra í Friðrik 8681322 ef þið hafið tök á því
09/07/2026
Flott spá fyrir Opna Icelandair 18. Júlí ! Ræst fyrir og eftir hádegi en hafið hraðar hendur við að skrá ykkur til að ná draumatímanum⛳️⛳️ Skráning og upplýsingar á golfbox 🏌♀️🏌♀️
08/07/2026
Meistaramót GFH for fram síðustu helgina í júní. Mótið bauð uppá spennu og gott golf í öllum flokkum og í meistaraflokki karla þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit Milli Péturs F Jónssonar og Rúnars Magnússonar þar sem Pétur hafði betur.
Sigurvegarar voru:
Meistaraflokkur KK: Pétur F. Jónsson
Meistaraflokkur KVK: Sigrún Júnía
1. Flokkur KK: Unnar Ingimundur Jósepsson
2. Flokkur KK: Bjarni Ólafur Birkisson
Til hamingju með þetta og takk fyrir gott mót ⛳️🏆🏆
08/07/2026
Miðvikudagsmótin í Jónsmannamótaröð færast til 19.00 restina af júlí mánuði!
Dregið í holl og ræst 19.00 og njótum kvöldblíðunnar saman.
Sjáumst í kvöld!
07/07/2026
Merktir boltar komnir til sölu í skálanum!
Minnum gjafaleik á Instagram ef þú vilt eignast 24 merkta prov1⛳️🏌♀️
06/07/2026
Sveitakeppni Austurlands fór fram um helgina hjá Golfklúbbi Norðfjarðar og átti GFH tvær sveitir þar:
Kvennasveit GFH skipuðu Hólmfríður Þórisdóttir, Hrönn Helgadóttir, Hjördís Marta, Sigrún Júnía, Vordís Svala, Kristín Rut, Unnur Bergþórsdóttir og Agla Þorsteinsdóttir. Reynslulítið lið sem náði í sinn fyrsta sigur í lokaviðureigninni gegn ríkjandi meisturum. Hólmfríður Þórisdóttir gerði vel og vann tvo af sínum leikjum um helgina og Sigrún einn. Gott skref uppávið fyrir kvennastarf GFH.
Karlasveit GFH skipuðu Sindri Snær Alfreðsson(liðsstjóri), Sturla Höskuldsson, Kjartan Ágúst, Friðrik Bjartur, Rúnar Magnússon og Ólafur Þór Arnórsson. Þeir gerðu vel og vörðu titilinn með 10.5 stig af 12 mögulegum. Frábær frammistaða og góður undirbúningur fyrir Íslandsmót golfklúbba í ágúst.
20/06/2026
Velkomin öll á golfdag GSÍ hjá nágrönnum okkar á Eskifirði 🏌♀️⛳️
20/06/2026
Skammt stórra högga á milli🏑⛳️