10/09/2026
Grótta Open 2026
Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn fór fram Golfmót Gróttu 2026. Hátt í 50 kylfingar tóku þátt á þessu bráðskemmtilega 9 holu móti, en við vorum einstaklega heppin með veðrið þetta árið. Eftir að keppni lauk var boðið uppá veitingar í golfskálanum.
Sigurverarar Grótta open 2026 voru Haukur Harðarson (punktakeppni) og Magnús Máni Kjærnested (höggleikur).
Við þökkum öllum keppendum og styrktaraðilum fyrir yndislegan dag, og við hlökkum til að taka á móti ykkur á næsta ári.
💙💛
09/09/2026
Kæru foreldrar og forráðamenn
Þá er nánast allt farið á fullt hjá okkur og við horfum spennt fram á veginn. Við minnum foreldra og forráðamenn á að skrá börnin til iðkunar hjá okkur í gegnum Abler. Allar upplýsingar um æfingatíma, þjálfara og gjöld er hægt að finna á grotta.is og/eða gegnum Abler.
Á næstu vikum komum við til með að senda út greiðsluseðla í heimabanka, fyrir fullu æfingagjaldi. Vilji foreldri/forráðamaður skipta upp greiðslum eftir að sá greiðsluseðill hefur verið sendur út, bætist umsýslugjald ofaná reikninginn.
Kær kveðja
Skrifstofa Íþróttafélagsins Gróttu
💙💛
24/08/2026
Kæra Gróttufólk og aðrir lesendur.
Við vekjum athylgi á því að Góðgerðarleikur knattspyrnnar er næstkomandi laugardag, 29. ágúst kl 14:00, þegar meistaraflokkur kvenna fær Selfoss í heimsókn. Leikurinn er til styrktar Ljónshjarta og við hvetjum öll til að tryggja sér treyju og miða, og styrkja gott málefni.🦁
Leikurinn getur einnig orðið sögulegur fyrir félagið, þar sem með sigri eða jafntefli geta okkar konur tryggt sig upp í Bestu deildina !!! - Það yrði í fyrsta skipti sem meistaraflokkur kvenna spilar í efstu deild og einungis í annað skipti sem félagið leikur í efstu deild knattspyrnunnar. Með sigri tryggja þær sér tiltillinn! 🏆
Við biðlum til Gróttufólks nær og fjær, sem og Nessbúa almennt, að mæta á völlinn og styðja bæði gott málefni og okkar lið.
Hlekkur fyrir kaup á treyju er hér í athugasemdum ⚽
💙💛
11/08/2026
Íþróttafélagið Grótta auglýsir eftir húsvörðum🏘️
Grótta auglýsir eftir húsvörðum í full starf, kvöld og helgarvinnu. Starfið er fjölbreytt en helstu verkefni eru:
- Almenn húsvarsla
- Þjónusta við iðkendur, gesti og félagsmenn Gróttu
- Létt þrif
- Önnur tilfallandi verkefni
Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum samskiptum og gott er að vera handlaginn. Reynsla af húsvarðarstörfum er kostur en þó ekki nauðsyn. Við hvetjum sérstaklega Gróttufólk og Nesbúa til þess að sækja um. Störf sem henta bæði námsfólki sem og þeim sem eru að leita eftir fullu starfi.
Allar umsóknir sendast á framkvæmdarstjóra ([email protected])
💙💛
07/08/2026
Þann 30. ágúst næstkomandi munum við halda golfmót til styrktar félagsins, Grótta Open. Leikið verður á Nesvellinum og ræst út af öllum teigum kl. 09:00.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sæti í punktakeppni og höggleik, sem og við munum útkljá hvaða deild Gróttu er best í golfi. Nándarverðlaun á öllum par þrjú holum, frábærir vinningar í boði🌟
Miðaverð er 10.000 kr, hamborgari og bjór/gos innifalinn í verðinu. Skráning hefst 10. ágúst gegnum golfbox.dk, https://www.golfbox.dk/app_livescoring/tour/?language=1039 #/competition/5778362/info.
Hlökkum til að sjá ykkur 🏌️♂️
# 💙💛
28/07/2026
Frá áramótum hafa verið gerðar ýmsar breytingar á skrifstofu félagsins. Í janúar hóf nýr íþrótta- og verkefnastjóri störf, Erlendur Guðmundsson, og nú í maí byrjaði nýr fjármálastjóri, Tómas Sigurðsson. Skrifstofan er þá orðin fullmönnuð samkvæmt skipuriti félagsins, hægt er að lesa nánar um þessar breytingar á heimasíðu okkar:
https://grotta.is/almennt/breytingar-a-skrifstofu/
# 💙💛
24/06/2026
Minnum á skráningar fyrir sumarnámskeiðin💙💛
10/06/2026
Við leitum að áhugasömu fólki til að ganga til liðs við Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Gróttu 💙💛
Endilega hafið samband 🌟
09/06/2026
Minnum á skráningu❤️
Fótbolti | Benfica skólinn - í samstarfi við Gróttu
Dagana 14. til 17. júlí verður Benfica knattspyrnuskólinn haldinn á Seltjarnarnesi. Um er að ræða fjögurra daga námskeið undir stjórn þjálfara frá por...
22/05/2026
HERRAKVÖLD GRÓTTU - TREYJUUPPBOÐIÐ
Núna styttist í veisluna og verið er að selja seinustu miðana. Húsið opnar 18:30.
Fyrir utan sturlað line-up og geggjaðan mat frá Múlakaffi þá er happdrættið, treyjuuppboðið og málverkauppboðið eitthvað sem fólk mun muna eftir:
Treyjuuppboð
* Real Sociedad treyja frá Orra Steini Óskarssyni
* Erlangen treyja frá Viggó Kristjánssyni frá "Black night kvöldi Erlangen"
* Real Madrid treyja frá David Beckham - ÁRITUÐ
* Spænsk landsliðstreyja frá Alvaro Morata úr Spánn - Ísland 2022
* Gróttutreyja frá Hákoni Rafni Valdimarsssyni úr fyrsta leik Hákons fyrir Gróttu í efstu deild
Allar treyjurnar eru match worn