01/09/2026
Allir velkomnir að prufa í kvöld!!
Fullorðinsfimleikar eru skemmtileg og fjölbreytt hreyfing þar sem við blöndum saman þreki, styrk, stökkum, fimleikaæfingum og góðu fjöri.
Æfingarnar henta ólíkri getu og þú þarft engan bakgrunn í fimleikum til að vera með.
Hópurinn hittist tvisvar í viku.
Í boði eru tvö 14 skipta námskeið fyrir jól og tvö eftir jól.
Komdu og prófaðu – það er aldrei of seint að byrja í fimleikum!
Skráning fer fram á Abler:
https://www.abler.io/shop/grotta/fimleikar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjQyMjc=
28/08/2026
Nú er opið fyrir skráningu í Stubbafimi. Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá: https://www.abler.io/shop/grotta/stubbafimi
Við hlökkum til að taka á móti ykkur! 💙
24/08/2026
Takk fyrir frábært sumar!💙💛
Nú er síðasta námskeiði sumarsins í fimleika- og leikjaskóla Gróttu lokið og við kveðjum sumarið full þakklætis.
Það hefur verið ótrúlega gaman að taka á móti öllum þeim flottu krökkum sem komu til okkar í sumar. Mörg þeirra komu aftur og aftur og voru hjá okkur á þremur, fjórum og jafnvel fimm námskeiðum – og það finnst okkur kannski segja meira en mörg orð.
Dagarnir voru fjölbreyttir og skemmtilegir – fimleikar, leikir, föndur, sund, hjólaferðir, fjöruferðir og alls konar ævintýri. Stórt TAKK til frábæra starfsfólksins okkar sem lagði metnað í að gera dagana skemmtilega og skapa góða stemningu fyrir krakkana.
Við viljum líka senda Sundlaug Seltjarnarness sérstakar þakkir fyrir frábærar móttökur í sumar. Við vorum tíðir gestir og alltaf var tekið jafn vel á móti okkur.
Og síðast en ekki síst – takk kæru krakkar og foreldrar fyrir sumarið og fyrir að velja að eyða hluta af því með okkur í Gróttu.
Við hlökkum strax til næsta sumars!
19/08/2026
Fullorðinsfimleikar – þrek, styrkur og fjör!
Langar þig að hreyfa þig, styrkja líkamann og prófa eitthvað aðeins öðruvísi?
Við byrjum 1. september og fyrsta æfingin er opin æfing!
Það geta allir komið, prófað og séð hvort fullorðinsfimleikar séu eitthvað fyrir sig !
Fullorðinsfimleikar eru skemmtileg og fjölbreytt hreyfing þar sem við blöndum saman þreki, styrk, stökkum, fimleikaæfingum og góðu fjöri.
Æfingarnar henta ólíkri getu og þú þarft engan bakgrunn í fimleikum til að vera með.
Hópurinn hittist tvisvar í viku og lögð er áhersla á góða hreyfingu, skemmtilega stemningu og að allir geti tekið þátt á sínum forsendum.
Í boði eru tvö 14 skipta námskeið fyrir jól og tvö eftir jól.
Komdu og prófaðu – það er aldrei of seint að byrja í fimleikum!
Skráning fer fram á Abler:
https://www.abler.io/shop/grotta/fimleikar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjQyMjc=
07/08/2026
Nú er opið fyrir skráningu í Stubbafimi. Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að skrá: https://www.abler.io/shop/grotta/stubbafimi
Við hlökkum til að taka á móti ykkur! 💙💛
10/06/2026
Við erum komin á fullt að undirbúa næsta fimleikavetur og forskráning fyrir veturinn 2026–2027 er nú opin! 🤸
Með því að forskrá iðkendur tryggið þið ykkur pláss fyrir haustið og hjálpið okkur um leið að skipuleggja starfið sem best.
Við hlökkum til að taka á móti bæði nýjum og núverandi iðkendum á næsta tímabili.
Skráning fer fram hér: https://www.abler.io/shop/grotta
31/05/2026
Þúsund þakkir fyrir frábæra helgi💙💙
29/05/2026
Fjörið heldur áfram á morgun, laugardag!
Hlökkum til að sjá ykkur 💙
28/05/2026
Vormót yngri flokka í hópfimleikum hefst á morgun, föstudag! 💙
Mótið er haldið í handboltasal Gróttu þar sem 503 iðkendur frá 11 félögum mæta til leiks og sýna hæfileika sína um helgina. Keppt verður í 5. flokki, 4. flokki og KKY. Grótta á 55 iðkendur á mótinu.
Á morgun, föstudag keppa Grótta bleikur, Grótta blár og Grótta fjólublár! 👊
Mætum í bláu og styðjum Gróttu um helgina 💙
27/05/2026
Það verður nóg um að vera í fimleikadeildinni á næstu dögum! 🤸♀️
Um helgina heldur Grótta Vormót yngri flokka í hópfimleikum þar sem 11 fimleikafélög munu taka þátt.
Við hlökkum til að sjá iðkendur sýna hvað þau hafa verið að æfa í vetur og við óskum öllum keppendum góðs gengis.