30/08/2026
Handboltinn er byrjaður !
Allir flokkar í handboltanum eru komnir af stað. Það voru meistaraflokkarnir okkar sem hófu leik í lok júlí og síðan byrjuðu yngri flokkarnir hver á fætur öðrum. Á laugardaginn fór fram fyrsta æfing 9.flokks en það eru iðkendur á leikskólaaldri.
Öllum er boðið að koma og prófa handboltann þeim að kostnaðarlausu án allra skuldbindinga. Komið og prófið - frábæru þjálfararnir okkar taka vel á móti krökkunum !
Hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um handboltann á heimasíðu Gróttu, www.grotta.is.
Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við yfirþjálfara deildarinnar, [email protected] og [email protected].
29/08/2026
Gróttu spáð 2. og 7.sæti
Í gær fór fram árlegur kynningarfundur HSÍ og var spá formanna, þjálfara og fyrirliða opinberuð. Þar er kvennaliði Gróttu spáð 7.sæti í Olísdeildinni og karlaliði Gróttu er spáð 2.sæti í Grill 66-deildinni.
Fyrstu leikir liðanna fara fram um næstu helgi:
Föstudagur 4.september
Grótta - Víðir / Grill 66-deild karla
kl. 19:30
Laugardagur 5.september
Fram - Grótta / Olísdeild kvenna
kl. 18:15
Við munum auglýsa leikina betur í komandi viku þar sem við teljum niður í fyrstu leiki.
28/08/2026
Síðustu æfingaleikir kvennaliðsins
Kvennalið Gróttu hefur leikið þrjá æfingaleiki á undirbúningstímabilinu. Fyrstu tveir leikirnir voru gegn FH-ingum í æfingaferð liðsins til Tenerife dagana 5. - 12.ágúst. Þriðji leikurinn var gegn ÍR-ingum í seinustu viku.
Framundan eru tveir æfingaleikir um helgina. Á eftir leikur liðið gegn Aftureldingu kl. 17:30 í Mosfellsbæ og á sunnudaginn leikur lokaleikinn gegn Haukum í Hertz-höllinni.
Gróttufólk er hvatt til að fjölmenna og fylgjast með lokaundirbúningi liðsins áður en alvaran hefst eftir rúmlega viku.
Áfram Grótta !
28/08/2026
Seinasti æfingaleikur karlaliðsins
Síðar í dag fer fram lokaæfingaleikur karlaliðsins fyrir átökin í Grill 66-deildinni í vetur. Leikið er gegn Fjölni í Egilshöllinni kl. 17:30.
Liðið hefur leikið tvo æfingaleiki við Olísdeildarlið; HK og Selfoss, leikið einn innbyrðisleik og einn leik í æfingaferð liðsins til Tenerife í liðinni viku. Leikirnir hafa gengið vel og vonandi er það upphafið að flottum vetri.
Gróttufólk er velkomið að koma í Egilshöllina og fylgjast með lokaundirbúningi liðsins fyrir fyrsta deildarleik.
Áfram Grótta !
28/08/2026
Lovísa til Benfica
Gróttukonan Lovísa Thompson hefur gengið til liðs við portúgalska stórveldið Benfica. Lovísa segir stemninguna góða í Portúgal og gengur vel að aðlagast nýjum aðstæðum.
Lovísa og Benfica byrjuðu tímabilið á titli með sigri í meistarakeppninni í Portúgal. Benfica hafði betur gegn CJ Almeida Garrett/Pristivus, 35-25 og lönduðu þar með fyrsta titli tímabilsins. Lovísa lék lungað úr leiknum jafnt vörn sem sókn og skoraði tvö mörk í leiknum.
Grótta óskar Lovísu góðs gengi og verður gaman að sjá hana blómstra í Portúgal.
27/08/2026
Vel heppnað kynningarkvöld
Í kvöld fór fram árlegt kynningarkvöld handboltans í Gróttu. Þar fór stjórn yfir starf deildarinnar og þjálfarar ræddu um undirbúningstímabilið, leikmannahópinn og fyrstu leiki. Fjöldi fólks mætti og greinilegt að mikil stemning er fyrir komandi vetri.
Fyrsti leikir meistaraflokkanna okkar eru í næstu viku en strákarnir ríða á vaðið á leika gegn Víði í Hertz-höllinni kl. 19:30 föstudaginn 4.ágúst. Stelpurnar taka síðan við og leika gegn Fram í Úlfarsárdalnum laugardaginn 5.ágúst kl. 18:15.
Við munum á næstu dögum telja niður í fyrst leiki á samfélagsmiðlum Gróttu.
27/08/2026
Í kvöld fer fram Kynningarkvöld meistaraflokkanna í handboltanum. Núna styttist í fyrstu leiki hjá stelpunum og strákunum og ekki seinna vænna en að hittast þegar stjórn kynnir starfið og þjálfarar fara yfir hvernig undirbúningnum hefur verið háttað, leikmannahópana sína og annað sem handboltaþyrstir stuðningsmenn þurfa að vita.
Kynningarkvöldið fer fram í hátíðarsalnum og hefst kl. 20:30.
Veislan er að hefjast !
24/08/2026
Næstkomandi laugardag, 29.ágúst hefjast æfingar 9.flokks að nýju. Æfingarnar voru virkilega vel sóttar á síðustu leiktíð en rúmlega 30 krakkar mættu að staðaldri. Æfingarnar fóru fram undir styrkri stjórn Arndísar Maríu Erlingsdóttur og Evu Bjarkar Hlöðversdóttur kl. 09:15-10:00 á laugardagsmorgnum.
Á æfingunum gefst krökkum á leikskólaaldri að kynnast handbolta með reglubundnum æfingum einu sinni í viku. Lögð verður áhersla á skemmtilega leiki með og án bolta og grunnatriði handbolta kennd með fjölbreyttri hreyfingu.
Skráningin fer fram í Abler en beinn skráningarhlekkur er hérna: https://www.abler.io/shop/grotta/handbolti?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjQ5NjU=
14/08/2026
Í hádeginu í dag lauk þriðju vikunni af handboltaskólanum. 72 krakkar sóttu skólann og höfðu bæði gagn og gaman af. Í dag fór fram HM þar sem krökkunum var skipt upp í 12 lið og var það lið Danmerkur sem bar sigur úr býtum. Besti liðsfélaginn á mótinu var valinn Emil Kári Jóhannsson.
Skráningin í næstu viku sem er jafnframt seinasta vikan í sumar, er í fullum gangi.
Handboltaskóli (fyrir 1. - 6.bekk) - https://www.abler.io/shop/grotta?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTc4NzM=
Afreksskóli fyrir 7. - 10.bekk) - https://www.abler.io/shop/grotta?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTc4NzY=
13/08/2026
Meistaraflokkur kvenna á Tenerife.
Meistaraflokkur kvenna kom heim í gær eftir velheppnaða æfingaferð til strandbæjarins Puerto de la Cruz á Tenerife. Þar æfðu stelpurnar tvisvar á dag og léku tvo æfingaleiki við góðar aðstæður. Tíminn var einnig nýttur til að sóla sig og þjappa hópnum saman fyrir komandi átök í Olís deildinni. Það er góð stemning í hópnum og liðið að slípast betur og betur saman með hverri æfingunni.
Æfingaleikur #1
Grótta - FH
Úrslit 32-15 (16-9)
Katrín Scheving 10 mörk
Eva Björk 5 mörk
Edda Steingríms 5 mörk
Elísabet Ása 4 mörk
Karlotta 3 mörk
Arna Katrín 2 mörk
Hrafnhildur Hekla 1 mark
Katrín Helga 1 mark
Kristín Scheving 1 mark
Andrea 5 skot varin
Anna Karolína 3 skot varin
Soffía Helen 1 skot varið
_______________________
Æfingaleikur #2
FH - Grótta
Úrslit 25-35 (13-15)
Elísabet Ása 6 mörk
Katrín Scheving 6 mörk
Hrafnhildur Hekla 3 mörk
Eva Björk 3 mörk
Karlotta 3 mörk
Elsa 3 mörk
Edda Steingríms 2 mörk
Edda Sig 2 mörk
Arnbjörg 2 mörk
Kristín Scheving 2 mörk
Katrín Helga 1 mark
Þóra María 1 mark
Andrea Gunnlaugs 1 mark
Soffía Helen 8 skot varin
Anna Karolína 5 skot varin
Andrea 2 skot varin