Nesklúbburinn

Nesklúbburinn

Share

Nesklúbburinn var stofnaður árið 1964. Í dag er Nesklúbburinn fjölmennasti 9 holu golfklúbbur á Íslandi. Golfklúbbur Ness - Nesklúbburinn var stofnaður 1964.

Klúbburinn rekur 9 holu golfvöll á Seltjarnarnesi þar sem náttúrufegurðin ræður ríkjum.

Photos from Nesklúbburinn's post 24/08/2026

Íslandsmótum Golfklúbba í flokkum 50+, 65+ og 75+ er lokið í ár.

Nesklúbburinn sendi lið til keppni í öllum flokkum.

50+ kvk sveitin spilaði í Leirunni og átti frábært mót. NK spilaði til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en tapaði naumlega fyrri GR í bráðabana og endaði með silfur í 1. deild

50+ kk sveitin spilaði í Sandgerði og endaði í 3. sæti í 2. deild

65+ kvk sveitin spilaði í Grindavík og endaði í 5. sæti í 1. deild

65+ kk sveitin spilaði í Öndverðarnesi og endaði í 7. sæti í 1. deild

75+ kk sveitin spilaði í Þorlákshöfn og endaði í 5. sæti í 1. deild

Við óskum keppniskylfingunum okkar í LEK aldursflokkum til hamingju með flottan árangur þetta árið.

21/08/2026

Nesklúbburinn hafnaði í 3. sæti í næst efstu deild karla á Íslandsmóti golfklúbba, sem fram fór í Vestmannaeyjum.

Nesklúbburinn fór vel af stað í mótinu og tryggði sæti í undanúrslitum eftir riðlakeppnina. Nk mætti Golfklúbbi Setbergs í undanúrslitum þar sem mikil spenna var allt til loka. Setberg hafði að lokum betur, 3–2, eftir bráðabana og tryggði sér þar með sæti í úrslitum.

Nesklúbburinn mætti Golfklúbbnum Leyni í leiknum um 3. sætið og þar unnu okkar menn 3,5–1,5 og tryggðu sér bronsið.

Nesklúbburinn sendi ungt lið til leiks og fengu ungu strákarnir í liðinu dýrmæta reynslu af keppni í meistaraflokki.

Ferðin var sérstaklega eftirminnileg fyrir Pétur Orra Þórðarson sem var að spila í sinni fyrstu sveitakeppni í fullorðinsflokki og fór holu í höggi á æfingahring á 2. braut daginn fyrir mót.

Golfklúbbur Vestmannaeyja stóð uppi sem sigurvegari mótsins eftir sigur á Golfklúbbi Setbergs í úrslitum.

Lið Nesklúbbsins skipuðu:

Guðmundur Örn Árnason
Kjartan Óskar Guðmundsson
Ólafur Marel Árnason
Skarphéðinn Egill Þórisson
Benedikt Sveinsson Blöndal
Pétur Orri Þórðarson
Heiðar Steinn Gíslason
Steinn Baugur Gunnarsson

Liðstjórar: Steinn Baugur Gunnarsson og Birnir Orri Birnisson.

16/08/2026

Nesklúbburinn hreppir silfur!

Sveit meistaraflokks kvenna luku leik á Íslandsmóti Golfklúbba síðastliðinn föstudag. Þær unnu alla sína leiki í riðlinum sannfærandi og undanúrslitaleikinn sömuleiðis.

Að lokum léku þær til úrslita gegn Golfkúbbnum Oddi sem hafði betur og óskum við þeim til hamingju með sigurinn.

Frábær árangur hjá stelpunum okkar. Áfram NK!

Sveitina skipuðu:
Elísabet Þóra Ólafsdóttir
Elsa Nielsen
Ingibjörg Hjaltadóttir
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
Karlotta Einarsdóttir

Photos from Nesklúbburinn's post 16/08/2026

Meistaramóti barna og unglinga er lokið eftir þrjá skemmtilega keppnisdaga á Nesvellinum. Alls tóku 42 krakkar þátt í mótinu sem er metþátttaka og gekk mótið mjög vel hjá okkar ungu kylfingum.

Keppt var í s*x flokkum og voru þrjú efstu í hverjum flokki eftirfarandi:

Drengir 15–18 ára
1. Heiðar Örn Heimisson
2. Hjalti Garðar Matthíasson
3. Mikael Dario Nunez Waage

Stúlkur 15–18 ára
1. Elísa Georgsdóttir
2. Sólveig Katrín Sigurgeirsdóttir

Drengir 12–14 ára
1. Aron Bjarki Arnarsson
2. Gunnar Helgi Kristinsson
3. Jóhann Már Jóhannsson

Stúlkur 12–14 ára
1. Barbara Mory Baldursdóttir
2. Þórey Berta Arnarsdóttir
3. Arnheiður Helga Hermannsdóttir

Drengir 11 ára og yngri
1. Gabriel Hlíðkvist Rafnsson
2. Benedikt Kári Gunnarsson
3. Óliver Georgsson

Stúlkur 11 ára og yngri
1. Saga Karítas Steinsdóttir
2. Embla María Elíasdóttir
3. Adda Björg Arnarsdóttir

Frábært var að sjá hversu fjölmennur hópur barna og unglinga tók þátt í ár og ekki síður hversu vel krakkarnir stóðu sig þessa þrjá daga.

Við óskum öllum keppendum til hamingju með mótið og þökkum þeim fyrir frábæra daga á Nesvellinum!

Photos from Nesklúbburinn's post 14/08/2026

Sveit meistaraflokks kvenna stendur í ströngu þessa dagana en þær leika í 2. deild Íslandsmóts golfklúbba á Silfurnesvelli.

Þær unnu alla leiki sína í riðlinum og unnu einnig undanúrslitaleik sinn seinnipartinn í dag. Sem þýðir að þær munu leika til úrslita á morgun. Með sigri tryggja þær sér sæti í 1. deild að ári.

Hægt er að skoða stöðu og úrslit allra leikja hér:

https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vQR82zjpDZG3MheWN1qlLiXNlOKgal8x5i4Y9P3vIZVxqVOg5KT5gXdWqHkjHnjYa8CIALVLVDpPVLB/pubhtml =977242078

Einnig verður hægt að fylgjast með úrslitaleiknum á morgun í beinni á Golf GameBook-reikningi Golfklúbbs Hornafjarðar.

Áfram NK! ❤️🖤

Sveitina skipa:
Elísabet Þóra Ólafsdóttir
Elsa Nielsen
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
Ingibjörg Hjaltadóttir
Karlotta Einarsdóttir

Photos from Nesklúbburinn's post 11/08/2026

Meistaramót barna og unglinga hafið ⛳️

Meistaramót barna og unglinga hófst í gær í mikilli veðurblíðu.

Aron Bjarki Arnarsson lék frábærlega i gær í flokki 12-14 ára drengja þegar hann spilaði á 66 höggum á fyrsta keppnisdegi og jafnaði þar með lægsta skor drengja á teigum 44 Nesvellinum.

Það er öllu til tjaldað í mótinu og ungu kylfingarnir mæta til leiks með allt á hreinu, eins og sjá má á feðgunum Óliver Georgssyni og kylfubera hans, Georgi Haraldssyni.

Keppt er í flokkum 11 ára og yngri, 12–14 ára og 15–18 ára, bæði hjá stúlkum og drengjum.

Alls eru 42 krakkar skráðir til leiks, sem er metþátttaka í Meistaramóti barna og unglinga.

Hér má sjá stöðuna í mótinu og fylgjast með gangi mála næstu tvo daga.

https://www.golfbox.dk/portal/golf_info/gbtourframe.asp?selected={CC74A204-A100-4547-9A48-63BF5E02C2D2}&language=1039&=undefined #/competition/5558255/leaderboard

Photos from Nesklúbburinn's post 03/08/2026

Frábært veður, glæsilegur golfvöllur og mörg hundruð áhorfendur sköpuðu glæsilega umgjörð um Einvígið á Nesinu sem haldið var á Nesvellinum í dag. Að lokum var það Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem stóð uppi sem sigurvegari og vann mótið því annað árið í röð. Mótið var haldið í samstarfi við Arion banki sem í mótslok afhenti BERGIÐheadspace ávísun að upphæð einnar milljónar króna.

03/08/2026
03/08/2026

8. hola í Einvíginu á Nesinu

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Seltjarnarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Seltjarnarnes
170