28/09/2026
Lokahóf 2026 💙💛
Lokahóf knattspyrnudeildar Gróttu fór fram laugardaginn 26. september þar sem leikmenn og þjálfarar komu saman og fögnuðu tímabilinu sem er að baki.
Við tilefnið voru veitt verðlaun fyrir frammistöðu og framlag til liðsins á tímabilinu. Eftirfarandi leikmenn hlutu verðlaun:
🏆 Besti leikmaðurinn
KK - Guðmundur Rafn Ingason
KVK - Lovísa Davíðsdóttir Scheving
💯 100 leikja klúbburinn
Á lokahófinu voru fimm leikmenn sem enn eru að spila fyrir Gróttu heiðraðir fyrir að hafa náð þeim glæsilega áfanga að spila 100 leiki fyrir félagið. Það voru þau María Lovísa Jónasdóttir, Lovísa Davíðsdóttir Scheving, Axel Sigurðarson, Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir og Rakel Lóa Brynjardóttir.
⚽️ Gullskórinn
KK - Mattías Kjeld, 10 mörk
KVK - Nicole Douglas, 14 mörk
🫂Leikmaður leikmanna
KK - Axel Sigurðarson
KVK - María Lovísa Jónasdóttir
🌟 Efnilegasti leikmaðurinn
KK - Mattías Kjeld
KVK - Kristín Sara Arnardóttir
💪🏻 Naglinn
KK - Dagur Bjarkason
KVK - Kristín Þóra Birgisdóttir & Maya Neal
🚑 Hrökkbrauðið
KK - Nökkvi Már Nökkvason
KVK - Rakel Lóa Brynjardóttir
Knattspyrnudeild Gróttu óskar öllum innilega til hamingju með verðlaunin og þakkar öllum fyrir frábært sumar 🎉