Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS

Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS

Share

Æfingar eru alla mánudaga og miðvikudaga kl. 17:40 frá Sundlaug Seltjarnarness og laugardaga frá sama stað kl 9:00. Allir alltaf velkomnir.

Photos from Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS's post 05/06/2024

Frábær mæting á fyrsta í hlaupadögum TKS. Allir velkomnir á næstu æfingu sem er á laugardaginn kl 9:00 🏃🏃🏻‍♀️🏃🏼‍♂️

30/05/2024

***HLAUPADAGAR TKS DAGANA 5-20 JÚNÍ***

Dagana 5-20 júní verða hlaupadagar hjá TKS þar sem öllum er boðið FRÍTT að mæta á hlaupaæfingar.

TKS heldur úti skipulögðum hlaupaæfingum þrisvar í viku frá sundlaug Seltjarnarness. Um er að ræða svokallaðar gæðaæfingar á mánudögum og miðvikudögum kl: 17:20 og rólegar „lengri“ hlaupaæfingar á laugardögum klukkan 9:00.

Þjálfari skipuleggur æfingar þannig að allir geta tekið þátt og hlaupið á sínum hraða. Hópurinn er breiður og geta því allir fundið hlaupafélaga innan hópsins hvort sem viðkomandi er að hefja hlaup eða vanur hlaupari.

Þrír heppnir þátttakendur í hlaupadögum verða dregnir út í lok hlaupadaga og fá gjafabréf frá Hlaupári að upphæð 30.000 kr.

Nú er tækifærið að reima á sig skóna, stíga yfir þröskuldinn og koma út að hlaupa !!!

10/05/2023
10/05/2022

Komdu út að hlaupa...

Photos from Trimmklúbbur Seltjarnarness - TKS's post 27/12/2021

Kirkjuhlaup í Covid - við hlökkum til að hlaupa með ykkur á ný. Frábært hvað margir hlaupahópar og hlauparar tóku áskorun um að hlaupa sitt Kirkjuhlaup frá sinni kirkju á sínum tíma, endilega deilið myndum með okkur.

26/05/2021

Upp með sokkanna og reimdu á þig skónna, við leggjum af stað kl. 17:40

15/12/2020

Kæru trimmarar

Hátíð ljóssins er handan við hornið og verður hátíðahald með öðrum hætti en við eigum að venjast vegna þessara sérstöku aðstæðna sem við búum við í dag.
Einn af hátíðadögum Trimmklúbbs Seltjarnarness hefur verið á annan í jólum þegar trimmarar á höfuðborgarsvæðinu hafa safnast saman með Trimmklúbbsfélögum og hlaupið á milli 13 kirkna með jólaanda í brjósti og þegið góðgerðir í Seltjarnarnesskirkju að hlaupi loknu.
Á síðasta ári hlupu um 500 trimmarar Kirkjuhlaupið sem haldið var í níunda sinn.
Á 10 ára afmæli hlaupsins verður ekki boðið uppá þennan dásamlega viðburð vegna samkomutakmarkanna, en Trimmklúbbsfélagar skora á aðra trimmara að láta samt ekki deigan síga og reima á sig skóna og hlaupa á milli kirkna í sínu hverfi með ást og frið í hjarta. Þá væri ekki úr vegi að setja inn mynd á Facebook síðu Trimmklúbbsins og senda eins og eina jólakveðju með von um að árið 2021 fari mýkri höndum um okkur en árið sem er að líða.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Seltjarnarnes?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Seltjarnarnes

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Saturday 09:00 - 10:30