15/07/2026
🌤️ Ný og flott veðurþjónusta fyrir kylfinga! 🏌️♂️⛳
Við viljum benda félagsmönnum og gestum á nýja íslenska vefsíðu, golfspa.is, þar sem hægt er að skoða nákvæma veðurspá fyrir alla golfvelli landsins þar á meðal Svarfhólsvöll.
Á síðunni má meðal annars sjá:
✅ Vind
✅ Hitastig
✅ Úrkomu
✅ 7 daga veðurspá
✅ Golfstuðul sem metur hvenær veðrið er best til golfiðkunar
Endilega kíkið á veðurspána fyrir Svarfhólsvöll áður en lagt er af stað á völlinn:
https://www.golfspa.is/vollur/svarfholsvollur
Svarfhólsvöllur — Golfspá
Golfspá — Svarfhólsvöllur (Suðurland): golfstuðull, besti rástíminn, vindur, hiti og úrkoma — klukkutíma fyrir klukkutíma og 7 daga fram í tímann.
14/07/2026
Sveinkots- og Bakkakotsmótið á Golf14 mótaröð GSÍ fór fram í dag.
Gaman er að segja frá því að GOS átti 7 unga kylfinga í mótunum. Öll stóðu þau sig frábærlega og við hlökkum til að fylgjast með þeim í framtíðinni! 🤩
Grímur Örn Ægisson og Hekla Björk Sigurðardóttir enduðu í 3. sæti í sínum flokkum (12 ára og yngri). Til hamingju! 👏🏼
12/07/2026
🏌️♂️ Opna Miðbæjarmótið – 18. júlí 2026 🏌️♀️
Golfklúbbur Selfoss og Miðbær Selfoss bjóða ykkur velkomin í einn skemmtilegasta golfviðburð sumarsins! 🤩
👥 Tveggja manna Texas Scramble
⛳ Sameiginleg forgjöf deilt með 2,5
🎯 Hámarksleikforgjöf 28
🕗 Rástímar frá 08:00–15:00
🎁 Glæsileg verðlaun verða í boði
Safnaðu saman liðsfélaga og komdu með í skemmtilegan golfdag þar sem frábær golfvöllur, góð stemning og líflegur Miðbær Selfoss mætast. 🌞⛳🍔
📲 Skráning er hafin í GolfBox:
Skrá mig í Opna Miðbæjarmótið
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Svarfhólsvelli þann 18. júlí! 💚💛
12/07/2026
𝐔́𝐑𝐒𝐋𝐈𝐓 - 𝐎𝐏𝐍𝐀 𝐏𝐈𝐍𝐆
Hið rótgróna Opna Ping golfmót fór fram núna um helgina á nokkuð blautum Svarfhólsvelli. Keppendur voru tæplega 160 og létu veðurguðina ekki stoppa sig. Veitt eru verðlaun fyrir punktakeppni, besta skor kvk í punktakeppni, besta skor í höggleik og svo nándarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins. Vinninga er hægt að vitja í Golfskálanum.
𝐏𝐮𝐧𝐤𝐭𝐚𝐤𝐞𝐩𝐩𝐧𝐢
1. Börkur Darri Hafsteinsson - 34 punktar (Verðlaun Ping G440 driver)
2. Ívar Orri Erlingsson - 34 punktar (Verðlaun Ping pútter)
3. Bragi Jónsson - 33 punktar (Verðlaun Ping kerrupoki)
4. Alfreð Ingvar Gústavsson - 32 punktar (Verðlaun Ping fleygjárn)
5. Eiríkur Bernharðsson - 31 punktur (Verðlaun Ping regnhlíf)
𝐏𝐮𝐧𝐤𝐭𝐚𝐤𝐞𝐩𝐩𝐧𝐢 𝐊𝐯𝐤
1. Sigríður Ólafsdóttir - 31 punktur (Verðlaun Ping MoonLite burðarpoki)
𝐇𝐨̈𝐠𝐠𝐥𝐞𝐢𝐤𝐮𝐫
1. Kristinn Sölvi Sigurgeirsson - 56 högg (Verðlaun 2dz Titleist Pro V1 )
𝐍𝐚́𝐧𝐝𝐚𝐫𝐯𝐞𝐫ð𝐥𝐚𝐮𝐧
Hola 2 - Einar Einarsson 1.03m
Hola7 - Guðmundur Lúther Loftsson 2.21m
Hola 10 - Rúnar Magnússon 1.25 m
Hola 12- Sigrún Ýr Árnadóttir 0.69m
11/07/2026
Áttunda Footjoy mótið var núna í vikunni. Um var að ræða Risið Vínbar mótið.
Það var Carina MargaretaEk sem kom, sá og sigraði með 32 punktum og óskum við henni til hamingju með það. Hægt er að nálgast vinninga í golfskálanum á Svarfhólsvelli.
08/07/2026
Kæru félagsmenn og gestir,
Nú erum við að hefja lokastig framkvæmda við golfvöllinn okkar og viljum því biðja alla sem eiga leið um svæðið að sýna aðgát og fara varlega.
Á næstu dögum og vikum verður talsverð umferð vinnuvéla um svæðið og flutt verða mörg tonn af efni inn á völlinn og því betra að sýna aðgát. Af þeim sökum geta vegir og stígar tímabundið orðið óhreinir. Við munum þó leggja okkur fram um að sópa og þrífa jafnóðum eftir því sem aðstæður leyfa.
Við biðjum ykkur um þolinmæði og skilning á meðan framkvæmdum stendur og vonum að þið takið þessum mikilvægu umbótum vel. Með góðri samvinnu getum við lokið verkefninu sem fyrst 😊
05/07/2026
𝐏𝐞́𝐭𝐮𝐫 𝐏𝐚́𝐥𝐬 𝐨𝐠 𝐄𝐫𝐥𝐚 𝐑𝐮́𝐧 𝐤𝐥𝐮́𝐛𝐛𝐦𝐞𝐢𝐬𝐭𝐚𝐫𝐚𝐫 𝟐𝟎𝟐𝟔
Frábæru Meistaramóti GOS 2026 lauk á laugardaginn með spennu fram á síðasta högg því spila þurfti umspil um sigurinn í lokaholli mótsins. Erla Rún Kaaber vann annað árið í röð hjá stelpunum en hjá strákunum hafði Pétur Páls á endanum betur gegn Heiðari Snæ eftir þriggja holu bráðabana.
Kíkjum aðeins yfir hvern flokk fyrir sig og látum fylgja með myndir af sigurvegurum mótsins sem og auðvitað myndir frá mótinu sjálfu sem gekk eins og í sögu.
𝐌𝐄𝐈𝐒𝐓𝐀𝐑𝐀𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑
Vinirnir Pétur Páls, Heiðar Snær og Máni Páll röðuðu sér í efstu þrjú sætin í Meistaraflokki eftir æsispennandi keppni allt mótið. Pétur og Heiðar komu á endanum jafnir í hús en Máni Páll í þriðja sæti. Umspil þurfti því til að krýna klúbbmeistara og spiluðu þeir Heiðar og Pétur brautir 9, 10 og 14 til að útkljá mótið. Þar fór 9.hola illa með Heiðar sem endaði þremur yfir á þeirri holu og vann það forskot Péturs ekki upp þrátt fyrir góðan fugl á 14.holu. Pétur er þar með Klúbbmeistari GOS 2026 og óskum við honum innilega til hamingju með það.
Pétur var jafnari heilt yfir mótið en Heiðar Snær spilaði dag þrjú á 51 höggi sem var besti staki hringur mótinsog setti heldur betur spennu í lokadaginn.
Hlynur Geir klúbbmeistari GOS 2025 vann reyndar líka á Meistaramótinu í ár, bara á vellinum. Helvítis framkvæmdastjórinn neitaði honum um frí enda klúbburinn orðinn svo stór og mikið að gera.
𝟏.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐕𝐄𝐍𝐍𝐀
Annað árið í röð var einvígi í 1.flokki kvenna milli Erlu Rúnar og Katrínar Emblu sem endaði með samtals 4 högga sigri Erlu. Hún spilaði sérstaklega frábært golf á öðrum degi mótins (53 högg) og náði með því forystu sem hún lét ekkert af hendi. Erla Rún er því einnig Klúbbmeistari GOS 2026 og óskum við henni innilega til hamingju.
Jóhanna Bettý Durhus komst svo á pall með þeim í þriðja sæti eftir flottan lokahring.
𝟏.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀
Jobbi var svo solid alla dagana í 1.flokknum að hann hefði allt eins getað spilað með Meistaraflokknum. Hann vann á endanum með þriggja högga forystu og gæti þurft að velja sig í sveitina hjá GOS í ár. Fannar Ársæls var ekki langt undan allt mótið og náði á endanum öðru sætinu, frábært mót hjá Fannari sem vann 2.flokkinn á síðasta ári. Holumeistarinn Sigmundur Jóns náði svo þriðja sætinu af Gumma Bergs á lokadeginum og komst þar með á pall.
Gummi Bergs átti hinsvegar tilþrif mótsins strax á 4.holu á fyrsta degi þegar hann hlóð í Örn en annað höggið tók hann af 84 metra færi úr röffinu vinstra megin. Langt yfir getu spilamennska hjá Bergsson!
𝟐.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀
Það voru vægast sagt sviptingar fram á síðustu holu í æsispennandi toppbaráttu í 2.flokki þar sem Óskar Atli hafði á endanum vinninginn. Óskar fékk fugl á 14.holu á meðan Raggi Sig tók upp á þeim ósið að enda mótið á tvöfaldri Borghildi og það dugði Óskari til að vinna mótið með einu höggi. Guðjón Óli Ósvaldsson náði líka að jafna Ragga á lokaholunni og þurfti umspil til að útkljá baráttuna um silfrið, þar hafði Raggi betur og náði öðru sætinu. Villi Sigdórs var líka í ágætum séns eftir fugl á 12. braut en eins og máltækið segir, á eftir fugl kemur rugl og það stóð heima á 13. og 14.
𝟐.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐕𝐄𝐍𝐍𝐀
Hressasti flokkur mótsins var klárlega 2.flokkur kvenna þar sem Eyrún Bríet hafði á endanum sigur eftir baráttu við Gunnhildi og Líney og á vafalaust inni klippingu hjá þeim fyrir vikið. Þar eins og í öðrum flokkum var 14.holan að stríða, Eyrún vann þá braut með þremur höggum (gegn Gunnhildi) sem dugði til sigurs. Flottur sigur hjá Eyrúnu sem er tiltölulega nýbyrjuð í golfi, foreldrar hennar eru líka miklir fagmenn, bara ekki í golfi.
Líney Sigurlaug fór með þeim á pall í þriðja sæti, hún hefur undanfarin ár verið í æfingabúðum á Spáni á veturnar og ætlar að vinna þennan flokk á næsta ári.
𝟑.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀
Það er óhætt að fullyrða að það var heldur betur töluð vitleysan í lokahollinu í þriðja flokki. Þar vann á endanum stöðugasti kylfingur Meistaramótsins (af öllum mönnum) Kalli Larsen. Hann spilaði alla dagana nema einn á sama skori þá var hann á einum lægri en hina dagana. Kalli fór til Arnórs í Golfkennslu í byrjun sumars og hlustaði á gjörsamlega allt sem Arnór lagði til. Kallli sást líka í rúmlega hálftíma á æfingasvæðinu þar fyrir utan og það dugði til að vinna mótið næsta örugglega í sínum flokki.
Gunnar Bergmann var aldrei langt undan og hélt Kalla við efnið út mótið og náði öðru sætinu. Hótelstjórinn (Björgvin) var svo með þeim á palli í þriðja sæti einu höggi betri en Sindri Pálma.
𝟑.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐕𝐄𝐍𝐍𝐀
Ingunn María vann þriðja flokk kvenna sem er punktakeppni. Hún var með einum punkti betur en Olga Bjarna í öðru sæti. Sunna Mjöll náði með þeim á pall eftir harða keppni við Freyju Baldurs.
𝟒.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀
Toppbaráttan í fjórða flokki karla varð á endanum einvígi milli Guðmundar Ármanns og Óla Tage. Fínn endasprettur Óla Tage dugði ekki til en hann vann upp fimm högg á Gumma á síðustu fimm holunum. Báðir að spila golf sem hefði betur átt heima í þriðja flokki þar sem þeir verða báðir á næsta ári. Almar Öfjörð var með þeim á palli í þriðja sæti.
5.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀
Bæjarstjórinn í Árborg hefur verið á leiðinni í golf í áratugi, núna er hann loksins það mikið mættur að hann er með í Meistaramóti og vann nokkuð sannfærandi sigur í sínum flokki. Vel gert hjá Braga. Eiríkur Logi Vilhjálms (frá Hlemmiskeiði) og Trausti Logi Falkvard háðu svo harða keppni um silfrið sem Eiríkur hafði á endanum með einum punkti. Hann ætlar að gefa þessu 1-2 ár áður en hann fer að vinna pabba sinn í höggleik.
𝟏.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐕𝐄𝐍𝐍𝐀 𝟓𝟎+
Gerða Kristín sem er með besta eftirnafn golfara á Íslandi (Hammer) vann að sjálfsögðu 1.flokk kvenna 50 ára og eldri. Þórdís Erla Þórðardóttir gerði sér lítið fyrir og náði öðru sæti og með þeim á palli var Alda Sig sem náði þriðja sæti með góðu pari á 14. og vann með því upp tvö högg á Jóhönnu Þorsteins.
1.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐕𝐄𝐍𝐍𝐀 𝟓𝟎+ 𝐏𝐔𝐍𝐊𝐓𝐀𝐑
Hjá 50+ er spilað bæði höggleik og punktakeppni og í punktakeppninni hafði Þórdís Erla nokkuð öruggan fimm punkta sigur á Gerðu Hammer. Svava Skúladóttir var í þriðja sæti einum punkti betri en Jóhanna Þorsteins.
2.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐕𝐄𝐍𝐍𝐀 𝟓𝟎+ 𝐏𝐔𝐍𝐊𝐓𝐀𝐑
Hressleikinn var engu minni hjá 2.flokki kvenna sem komu í heiminn fyrir 1976 en í þeim flokki er spilað punktakepni. Alma Hlíðberg var það fremst meðal jafningja og þá sérstaklega á öðrum degi þar sem hún náði 30 punktum sem var besta skorið á stökum hring í þessum flokki. Ingibjörg Jónsdóttir hafði svo betur í baráttu við Heiðbjörtu Harðardóttir í baráttunni um 2.sætið í þessum flokki.
𝟏.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀 𝟓𝟓+
Gunnar Marel er greinilega búinn að æfa sig töluvert milli ára á púttflötinni heima hjá sér því hann rústaði 1.flokki karla skipuðum mönnum sem mega kaupa íbúð í fjölbýlishúsum ætluðum 55 ára og eldri. Frábært mót hjá Meistara Gunnari Marel sem var reyndar með því betra hjá leikmönnum í 1.flokki, óháð kennitölu.
Formaðurinn Grímur Arnars var aftur í öðru sæti í þessum flokki en slapp þó við að vera tekinn í tollinum þar sem Sæli náði “bara” þriðja sæti.
𝟏.𝐅𝐋𝐎𝐊𝐊𝐔𝐑 𝐊𝐀𝐑𝐋𝐀 𝟓𝟓+ 𝐏𝐔𝐍𝐊T𝐀𝐑
Gunnar Marel vann punktakeppnina einnig en hann var með einum punkti betur en Haukur Þórðarson. Jón Lúðvíks var svo með þeim á palli í þriðja sæti.
𝟕𝟎+
Hjá heldri kylfingum stóð Heiðar P Breiðfjörð uppi sem sigurvegari. Bárður Guðmundarson var í öðru sæti eftir baráttu við Jón Gísla og Samúel Smára. Jón Gísla var með þeim á palli eftir betri endasprett en Smári.
𝐇𝐨𝐥𝐮𝐤𝐞𝐩𝐩𝐧𝐢 𝐆𝐎𝐒
Hefð er fyrir því á Meistaramóti GOS að krýna einnig Holumeistara en þá keppni vann Sigmundur Jónsson eftir úrslitaeinvígi við Ívar Örn. Hákon Ingi vann svo leikinn um 3. sæti
Úrslit í Meistaramóti GOS eru hérna:
https://www.golfbox.dk/livescoring/tour/ #/competition/5415655
Risa kudos á alla starfsmenn GOS bæði vallarstarfsmenn sem og í skálanum fyrir frábær störf allt mótið. Eins á mótanefnd, ELDGOS og alla sjálfboðaliða sem komu að skipulagi og starfinu í kringum Meistaramótið.
02/07/2026
Það voru sannkölluð tímamót hjá Golfklúbbi Selfoss í vikunni þegar meðlimur númer 1000 var skráður í klúbbinn! Það má með sanni segja að þetta sé risastór áfangi í sögu GOS og skýrt merki um þann mikla vöxt og jákvæða þróun sem átt hefur sér stað á síðustu árum.
Nýr meðlimur númer 1000 er hún Auður Auðunsdóttir sem nýlega flutti á Selfoss ásamt Sigvini H. Sigurvinssyni. Við hjá GOS bjóðum þau hjartanlega velkomin í klúbbinn og hlökkum til að sjá þau njóta golfsins og félagslífsins á Svarfhólsvelli.
Að sjálfsögðu fékk Auður smá GOS pakka í tilefni tímamótanna, en henni voru afhent GOS peysa og GOS bolur í gjöf 🎉
Saga GOS nær yfir áratuga uppbyggingu og mikla sjálfboðavinnu þar sem félagsmenn hafa lagt hjarta sitt og sál í að byggja upp öflugan og glæsilegan golfklúbb. Á síðustu árum hefur starfsemin vaxið hratt með mikilli fjölgun félagsmanna, öflugri barna- og unglingastarfsemi, bættri aðstöðu, nýrri inniaðstöðu og áframhaldandi uppbyggingu vallarins.
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir nýir íbúar á Selfossi og nærsveitum velja að ganga til liðs við GOS og taka þátt í því frábæra samfélagi sem hefur myndast í kringum golfið hjá okkur.
Við þökkum öllum félagsmönnum fyrir stuðninginn og hlökkum til áframhaldandi vaxtar og skemmtilegra tíma saman á golfvellinum 🏌️♂️🏌️♀️
Velkomin í GOS, Auður og Sigvin! 💙