01/09/2026
⛳️ Tveir ásar á tveimur dögum! 🎯
Föstudaginn 28. ágúst og laugardaginn 29. ágúst bættust tveir nýir einherjar í Einherjaklúbbinn – vel gert! 👏
Við óskum Samúel og Alexander innilega til hamingju með draumahöggin! ⛳️🏌️♂️
👉 Sjá nánar hér: https://www.gkb.is/tveir-asar-a-tveimur-dogum
30/08/2026
Góðan dag kæru kylfingar,
Ekkert næturfrost var á Kiðjabergsvelli í nótt.
Við bjóðum kylfinga velkomna.
Njótið dagsins🏌🏌♀️🏌♂️
29/08/2026
Kæru kylfingar,
Í dag og í gær hefur þurft að seinka opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts. Samkvæmt veðurspá er möguleiki á að sambærilegar aðstæður verði aftur í fyrramálið, sunnudag.
Við biðjum því kylfinga, sérstaklega þá sem eiga rástíma snemma dags, að fylgjast vel með Facebook-síðu Golfklúbbs Kiðjabergs. Þar munum við birta upplýsingar í fyrramálið um stöðu vallarins og mögulega seinkun á opnun.
Ef loka þarf vellinum vegna frosts fram að ákveðnum tíma munu allir rástímar fyrir þann tíma falla niður. Rástímar færast ekki sjálfkrafa til heldur hefst leikur samkvæmt bókuðum rástímum þegar völlurinn hefur verið opnaður.
Við þökkum kylfingum fyrir skilninginn ❄️⛳
29/08/2026
❄️ Opnun Kiðjabergsvallar seinkað vegna næturfrosts
Töluvert næturfrost var á Kiðjabergsvelli í nótt og því þarf að seinka opnun vallarins í morgun. Völlurinn verður lokaður til kl. 09:00.
Við biðjum kylfinga um að virða lokunina á meðan frost er í vellinum og sýna aðstæðum skilning.
Við þökkum fyrir skilninginn.
Kær kveðja
Vallarnefnd og vallarstjóri.
28/08/2026
Kæru kylfingar,
Í dag/morgun þurfti að seinka opnun Kiðjabergsvallar vegna næturfrosts og samkvæmt veðurspá er möguleiki á að sambærilegar aðstæður verði aftur í fyrramálið.
Við biðjum því kylfinga, sérstaklega þá sem eiga rástíma snemma dags, að fylgjast vel með Facebook-síðu Golfklúbbs Kiðjabergs. Þar munum við birta upplýsingar í fyrramálið ef frost verður í vellinum og seinka þarf opnun.
Við þökkum fyrir skilninginn og biðlundina. ❄️⛳
28/08/2026
Búið er að opna fyrir leik eftir næturfrost.
22/08/2026
Karlasveit GKB vann 3. deild 50+
Sveit Golfklúbbur Kiðjabergs sigraði í 3. deild í sveitakeppni karla 50 ára og eldri sem fram fór á Gufudalsvelli í Hveragerði og lauk í dag. GKB lék til úrslita við heimamenn í Golfklúbbi Hveragerðis og vann 2-1 og tryggði sér þar með sæti í 2. deild að ári.
22/08/2026
Kvennasveit GKB 50+ áfram 2. deild!
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 2. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Grundarfjarðarvelli hjá Golfklúbbnum Vestarr dagana 20.-21. ágúst. Golfklúbbur Kiðjabergs sendi vaska sveit til keppni sem hafnaði í 6. sæti og hélt sæti sínu í deildinni að ári.
18/08/2026
Karlasveit GKB í 5. sæti í 2. deild!
Sveit GKB hafnaði í 5. sæti í 2. deild karla sem lauk í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í dag, 18. ágúst. Okkar menn byrjuðu illa í keppninni og töpuðu fyrstu leikjunum, en náðu sér á strik í lokin og unnu sig upp í 5. sætið.
11/08/2026
GKB konur í 4. sæti í 65 ára og eldri!
Sveitakeppni golfklúbba kvenna 65 ára og eldri í fyrstu deild var haldin hjá Golfklúbbi Grindavíkur á Húsatóftavelli og lauk í dag, 11. ágúst. GKB sendi vaska sveit kvenna og hafnaði hún í 4. sæti eftir naumt tap fyrir GKG í leik um þriðja sætið. Sveit GR sigraði eftir úrslitaleik við GK.