12/07/2026
Góðan daginn
Kkd Tindastols vill þakka öllum sem tóku þátt í miðasôlu og gæslu á Landsmóti hestamanna á Hólum. Alls tóku 40 manns þátt í verkefninu sem unnu í 518 klst . Einnig viljum við þakka Hestamannafélaginu Skagfirðing kærlega fyrir samstarfið . Einnig var deildin með leigu á led skiltum a Hólum ásamt uppsetningu .
#❤️🏀💪🏼
24/06/2026
Dagur Þór, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls í skemmtilegu viðtali við Feyki
Körfuboltinn sameinar Skagfirðinga | Dagur Þór formaður í viðtali
Þann 18. júni fór fram aðalfundur körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þar kom í ljós ángæjuleg niðurstaða en hagnaður var á rekstri deildarinnar tímabilið
24/06/2026
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur náð samkomulagi við hinn gríðarlega reynslumikla leikstjórnanda Dee Bost um að ganga til liðs við félagið.
Bost kemur til Tindastóls með feril sem talar sínu máli. Hann hefur leikið í sterkustu keppnum Evrópu, þar á meðal EuroLeague, EuroCup og Basketball Champions League, auk þess að spila með búlgarska landsliðinu.
Á ferlinum hefur hann meðal annars leikið með AS Monaco, Žalgiris Kaunas, Galatasaray, ASVEL, Strasbourg, Khimki, Budućnost, Zielona Góra og Flamengo.
EuroCup-meistari með AS Monaco, pólskur meistari og verðmætasti leikmaður úrslitanna með Zielona Góra, auk titla í Svartfjallalandi og Frakklandi.
Dee Bost er leikstjórnandi með leiðtogahæfileika, mikla reynslu og getu til að stýra leiknum þegar mest á reynir.
„Það er mikill heiður fyrir Tindastól að fá leikmann með reynslu, gæði og feril Dee Bost til liðs við okkur. Koma hans sýnir metnað deildarinnar og við erum sannfærð um að hann muni verða mikilvægur hluti af liðinu og stemningunni í Síkinu,“ segir Dagur Þór Baldvinsson formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
„Dee er leikmaður sem kemur með mikla reynslu, sigurhugarfar og hæfileika til að gera samherja sína betri. Hann hefur spilað í stórum leikjum á háu stigi og við teljum að hans leiðtogahlutverk, yfirvegun og gæði sem leikstjórnandi muni hjálpa liðinu mikið,“ segir Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls.
„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma til Tindastóls og taka þátt í því sem félagið er að byggja upp. Ég hef heyrt frábæra hluti um stuðningsmennina, stemninguna í Síkinu og metnaðinn hjá félaginu. Ég hlakka til að hitta alla, leggja mitt af mörkum og berjast fyrir Tindastól,“ segir Dee Bost.
Við bjóðum Dee Bost hjartanlega velkominn í Tindastólsfjölskylduna.
21/06/2026
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við argentínsku landsliðskonurnar Florenciu Chagas og Macarenu Durso fyrir komandi tímabil.
Florencia er ungur og öflugur bakvörður með mikla alþjóðlega reynslu, en Macarena er reynslumikill leikstjórnandi sem kemur síðast frá Spáni þar sem hún lék á háu stigi. Báðar eru þær með Evrópsk vegabréf.
„Flor er ung en kemur samt með mikla alþjóðlega reynslu. Hún var valin í WNBA-nýliðavalinu og er mjög öflugur leikmaður sem getur skorað á marga ólíka vegu. Ég tel að hún muni hafa mikil áhrif á deildina og við hlökkum mikið til að sjá hana spila fyrir Tindastól. Macarena kláraði síðasta tímabil á Spáni á mjög háu stigi. Hún er kraftmikill leikmaður sem passar vel inn í íslenska körfuboltann, fljót og sterk í vörn á boltann, góð skytta fyrir utan þriggja stiga línuna og getur bæði skorað sjálf og skapað færi fyrir liðsfélaga sína. Flor og Maca þekkjast vel úr argentínska landsliðinu og það er mikill styrkur fyrir okkur að fá þær báðar inn í hópinn,“ segir Israel Martin . Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar í Síkið
15/06/2026
Stólastúlkurnar Inga Sólveig Sigurðardóttir og Rannveig Guðmundsdóttir framlengja við Tindastól og spila áfram með liðinu á næsta tímabili.
Israel Martin, þjálfari kvenaliðs Tindastóls, lýsir yfir mikilli ánægju með að Inga og Rannveig hafi framlengt samninga sína við félagið. Hann segir það dýrmætt fyrir áframhaldandi vöxt og uppbyggingu liðsins að halda kjarnanum frá síðustu tveimur tímabilum áfram. „Það er lykilatriði fyrir okkur að halda áfram að byggja liðið upp í kringum leikmennina okkar til að halda áfram að vaxa í rétta átt. Það eru frábærar fréttir fyrir okkur að hafa Ingu og Rannveigu áfram,“ segir Martin. Martin segir þær ólíka leikmenn; „Inga tók miklum framförum á síðasta tímabili, þroskaði leikinn sinn og aðlagaði hann að þörfum liðsins. Rannveig er mjög bjartsýn manneskja sem er alltaf gott að hafa í kringum liðið, hún kemur með afar dýrmæta og jákvæða orku inn í hópinn. Við hlökkum mikið til að vinna með þeim áfram á næsta tímabili“
Við erum stolt og þakklát að hafa þær Ingu og Rannveigu áfram í vínrauðu næsta tímabili! Áfram Tindastóll!
14/06/2026
Haukur Davíðsson gengur til liðs við Tindastól
Gengið hefur verið frá samningum við Hvergerðinginn Hauk Davíðsson um að leika með karlaliðinu á næsta tímabíli. Arnar þjálfari fagnar komu Hauks og segir hann passa vel í liðið; „Við erum mjög glaðir að fá Hauk til liðs við okkur. Þetta er landsbyggðarstrákur sem er harðduglegur og tilbúinn að leggja mikið á sig. Við hlökkum mikið til að fá hann í fjörðinn.“
Haukur er liðsstyrkur sem mun vafalaust láta til sín taka á vellinum og segir: „Ég er ótrúlega spenntur fyrir því að koma norður, við ætlum okkur mikið og förum fulla ferð”
Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Hauk innilega velkominn í Skagafjörðinn og hlakkar til að sjá hann á vellinum í vetur. Velkominn í Síkið Haukur!
11/06/2026
Ísak Wíum ráðinn til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur gengið frá ráðningu Ísaks Wíum til starfa hjá deildinni. Ísak mun gegna fjölbreyttu og mikilvægu hlutverki sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla með Karli Agústi , verkefnastjóri Körfuknattleiksdeildar Tindastóls og þjálfari tveggja elstu drengjaflokka félagsins.
Ráðningin er liður í áframhaldandi uppbyggingu körfuknattleiksstarfs Tindastóls, sem hefur aukist verulega að umfangi á undanförnum árum. Deildin byggir á öflugu framlagi sjálfboðaliða sem hafa um árabil lagt grunn að því sterka starfi sem nú fer fram innan félagsins. Samhliða auknum umsvifum er hins vegar ljóst að hluta verkefnanna þarf að festa betur í sessi með skilgreindum hlutverkum og auknu faglegu utanumhaldi, enda er ekki sjálfbært til lengri tíma að dagleg og umfangsmikil verkefni hvíli alfarið á sjálfboðavinnu.
Ísak lýsir yfir mikilli ánægju með komandi tíma í Skagafirði og hlakkar til að takast á við nýjar áskoranir: „Ég er mjög spenntur að flytja í Skagafjörðinn og taka þátt í þessum skemmtilegu verkefnum sem fylgja því að þjálfa Tindastól. Mín stuttu kynni af starfinu hingað til hafa verið mjög góð og er mikil eftirvænting að mæta á svæðið og kynnast öllum í kringum félagið betur,“ segir Ísak Máni sem kemur til starfa af fullum krafti um miðjan ágúst.
Dagur Þór Baldvinsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Tindastóls, segir ráðninguna mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar: „Með ráðningu Ísaks er markmiðið að styrkja daglegt skipulag deildarinnar, efla þjálfunarumhverfi yngri flokka og styðja enn frekar við starf meistaraflokks karla. Ráðningin er jafnframt mikilvægur liður í því að skapa traustari grunn undir áframhaldandi uppbyggingu körfuboltans á Sauðárkróki og tryggja að verkefnum deildarinnar sé sinnt með faglegum og sjálfbærum hætti.“
Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður Ísak Mána innilega velkominn til starfa. Ljóst er að kraftar hans munu nýtast vel í þeim fjölmörgu verkefnum sem fram undan eru hjá deildinni. Velkominn í Síkið, Ísak.
10/06/2026
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur um að leika með kvennaliðinu á komandi tímabili. Kolbrún María kemur til Tindastóls eftir að hafa leikið í Þýskalandi, auk þess sem hún á að baki glæsilegan feril með yngri landsliðum Íslands.
Israel Martin þjálfari liðsins segir komu Kolbrúnar mikilvæga fyrir áframhaldandi uppbyggingu kvennaliðins. „Á okkar þriðja tímabili í Bónus deildinni er mikilvægt að styrkja liðið með leikmanni eins og Kolbrúnu sem kemur með kraft og seiglu. Vonandi mun það líka hvetja aðra leikmenn að skoða það að ganga til liðs við okkur, Tindastóll er frábært félag og gott að vera hluti af þessu körfuboltasamfélagi hér á Sauðárkróki. Við höldum áfram að vinna að uppbyggingu kvennaliðsins og hlökkum mikið til að vinna með Kolbrúnu á næsta tímabili.“
Kolbrún María segist spennt að koma á Krókinn og ganga til liðs við Tindastóls. „Mér líst mjög vel á félagið, metnaðinn og umhverfið í kringum liðið. Ég hlakka mikið til að kynnast öllum og verða hluti af hópnum. Markmiðið fyrir tímabilið er að hjálpa liðinu að ná þeim markmiðum sem við setjum okkur saman, ná eins góðum árangri og mögulegt er. Ég hlakka mikið til að byrja!“
Það er mikill fengur fyrir Tindastól að fá Kolbrúnu í sínar raðir, hún er fjölhæfur leikmaður og mikill leiðtogi á vellinum Við hlökkum til að sjá Kollu á parketinu og bjóðum hana hjartanlega velkomna í Síkið!
03/06/2026
Aðalfundur Körfuknattleiksdeildar Tindastóls verður haldinn kl 20:00 fimmtudaginn 18. júní í Húsi Frítímans.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf
28/05/2026
Ert þú eða einhver sem þú þekkir með áhuga á körfubolta eða jafnvel grjótharður stúkudómari sem dreymir um að komast á gólfið með flautuna? 🏀
Nú er tækifærið fyrir öll þau sem vilja kafa dýpra í körfuboltareglurnar að sækja sér dómararéttindi til dómgæslu á vegum KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands
Í haust verður boðið upp á 2 eininga áfanga í körfuboltadómgæslu í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra í samstarfi við KKÍ.
Skráning á skrifstofu skólans
Ert þú eða einhver sem þú þekkir með áhuga á körfubolta eða jafnvel grjótharður stúkudómari sem dreymir um að komast á gólfið með flautuna? 🏀
Nú er tækifærið fyrir öll þau sem vilja kafa dýpra í körfuboltareglurnar að sækja sér dómararéttindi til dómgæslu á vegum KKÍ - Körfuknattleikssamband Íslands
Í haust verður boðið upp á 2 eininga áfanga í körfuboltadómgæslu í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra í samstarfi við KKÍ.
Skráning á skrifstofu skólans.