ÓB-mót Tindastóls

ÓB-mót Tindastóls

Share

Upplýsingasíða fyrir Stúlknamót Tindastóls fyrir 6. flokk kvenna síðustu helgi í júní hvert ár.

05/07/2026

Þessi ear buds fundust eftir Króksmót ÓB. Ef einhver kannast við þau má láta okkur vita 🥰

Photos from ÓB-mót Tindastóls's post 21/06/2026

Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna á Króksmót ÓB og óskum ykkur góðrar heimferðar.

Hér eru þeir óskilamunir sem urðu eftir, eftir helgina.

21/06/2026

8. flokkur hefur sitt mót á gervigrasinu núna kl. 11:00 - endilega kíkið á krakkana og hvetjið þau áfram.

Það er líklega mikið keppnisskap í stelpunum í dag og foreldrar og þjálfarar hvattir til að sýna stillingu á hliðarlínunni og leyfa stelpunum að njóta sín við spilamennskuna 🩷

Bikar er veittur fyrir efsta sætið í hverjum riðli, það er gert fyrir utan íþróttahúsið þegar síðasti leikur hefur verið spilaður 🏆

20/06/2026

Klukkan 15:30 byrja leikir og fjör á vallarsvæðinu næst íþróttahúsinu. Þar verður skotkeppni og battamót - verðlaun í boði fyrir sigurvegara. Fullorðnir geta keppt líka og fengið verðlaun ☺️

Kvöldvakan verður haldin inni í íþróttahúsinu og byrjar kl. 19:30 - gengið er inn um Árskóla - þar mun ÁGÚST sjá um að skemmta hópnum. Allir þurfa að fara úr skóm áður en farið er inn í salinn og passa upp á að ganga vel um.

20/06/2026

Ábending!!! Við viljum benda mótsgestum á að leggja í löggild bílastæði í samræmi við þessa mynd. Það eru til að mynda bílastæði fyrir ofan íþróttahúsið sem má nota, milli blokkanna og hjá verknámshúsinu.

20/06/2026

Þar sem að sólin er lítið að láta sjá sig í dag þá færist 8. flokks mótið sem átti að vera kl. 16:00 í dag yfir til morgundagsins kl. 11:00. á gervigrasvellinum. Reiknum með að vera með hoppukastala á svæðinu ef að veðrið leyfir og grillaðar pylsur í boði eftir að mótið klárast 🌭

20/06/2026

Það er aldeilis stór dagur hjá fótboltastelpunum okkar í dag. Við minnum foreldra á að klæða sig eftir veðri og næla sé í rjúkandi kaffibolla í soppunni og kannski eitt súkkulaðistykki með.

Fyrstu leikir hefjast kl. 10:30 og svo tökum við stutta hádegispásu um 12 leitið. Leikjaplanið má finna hér: https://obmot.torneopal.com/
Eftir að leikjum dagsins lýkur verður battamót á efsta svæðinu, skotkeppni og annað skemmtilegt. Fullorðnir eru sérstaklega hvattir til að taka þátt í skotkeppninni en verðlaun verða veitt á kvöldvökkunni kl. 19:30.
Skráning á Battamótið fer fram í anddyri Árskóla og í sjoppunni til kl. 15 en mótið sjálft hefst kl. 15:30.

Þjálfarakaffi er í íþróttahúsinu sem og mótsstjórnin.

19/06/2026

Mótsgjafir eru afhentar í anddyri Árskóla til kl. 21:00. Á morgun er hægt að nálgast þær hjá mótsstjórn í íþróttahúsinu.
ATH öll mótsgögn eru afhent einum forsvarsmanni hvers liðs. Ekki þarf að sækja fyrir allt félagið.

19/06/2026

Við erum heldur betur farin að verða spennt fyrir helginni og hlökkum til að taka á móti ykkur.

Dagskrá og leikjaplan er komið inn á www.kroksmot.is og við hvetjum ykkur til að fylgjast með þar.
Dagskrá: https://kroksmot.is/dagskra/
Leikjaplan: https://obmot.torneopal.com/

Á laugardag, eftir leiki dagsins, verður margt um að vera á vallarsvæðinu þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Battamót fyrir keppendur: 2 og 2 saman þar sem keppt er í fótbolta á litlum velli - verðlaun veitt á kvöldvöku 🏆 Skráning fer fram í sjoppunni.
Skotkeppni fyrir bæði keppendur og eldri - mælum sérstaklega með að þjálfarar mæti og sýni hvað þeir geta 🕺
Hoppukastalar fyrir þau yngstu ef veður leyfir og alls konar fleira skemmtilegt.

Framkvæmdir standa yfir í sundlaug Sauðárkróks og eingöngu er opið í heita potta og gufubað á laugardag og sunnudag. Við stöndum hins vegar svo vel að hafa sundlaugar einnig í Varmahlíð og á Hofsósi sem við hvetjum ykkur til að nota.

Öll gisting fer fram í Árskóla sem opnar kl. 18:00 í dag. Inngangurinn er eins og myndin sýnir.

(ekkert heiti) 15/06/2026

Nú styttist heldur betur í Króksmót ÓB og hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga.

🥝 Óþol/ofnæmi: Hér er skráningareyðublað fyrir þær sem eru með óþol, ofnæmi eða eru á sérfæði https://forms.gle/UtmzScn9jSTxfXPg6

⛺️ Tjaldsvæði: Er eingöngu staðsett uppi á nöfum (ekið upp hjá kirkjunni). Þar sem flutningur tjaldsvæðisins hefur staðið yfir þá opnar salernisaðstaðan ekki fyrr en fimmtudaginn 18. júní og vert að hafa í huga ef einhverjir ætla að mæta snemma. Ekki þarf að skrá sig á svæðið heldur bara mæta.

🏃‍♀️‍➡️ 8. flokks mót: eins og undanfarin ár þá verður 8. flokks mót haldið á laugardeginum kl. 16:00 sem er tilvalið fyrir yngri systkini að skrá sig á. Frekari upplýsingar eru hér: https://kroksmot.is/8fl/

📋 Leikjaplan og dagskrá: verið er að klára að fínpússa dagskrá mótsins og stilla upp leikjaplani og við hvetjum ykkur til að fylgjast vel með á www.kroksmot.is og www.facebook.com/stulknamot

(ekkert heiti) Ertu að leita þér að gistingu á meðan á Króksmótum stendur? Endilega kíktu á https://www.visitskagafjordur.is/gisting og skoðaðu hvað er í… Read More

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Sauðárkrókur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Íþróttavöllur
Sauðárkrókur
550