Badmintondeild Tindastóls

Badmintondeild Tindastóls Badmintondeild Tindastóls

25/08/2026

Í dag heldur U19 landsliðshópurinn okkar heim á leið eftir viðburðaríka daga á Evrópumeistaramótinu í Ungverjalandi. Liðakeppninni lauk á laugardag og í kjölfarið tók einstaklingskeppnin við. Íslensku keppendurnir tóku þátt í sínum greinum bæði laugardag og sunnudag. Þrá...

Emma Katrín Helgadottir frá Badmintondeild Tindastóls er mætt til Ungverjalands ásamt félögum sínum í U19 landsliði Ísla...
18/08/2026

Emma Katrín Helgadottir frá Badmintondeild Tindastóls er mætt til Ungverjalands ásamt félögum sínum í U19 landsliði Íslands. Í dag hefst liðakeppni Evrópumótsins og Ísland á leik kl 15 að staðartíma, kl 13 að íslenskum tíma.
Hægt er að fylgjast með á https://www.badmintoneurope.tv/en-int/page/home-badminton-europe

Í nótt (aðfaranótt sunnudags) hefst ferðalag íslenska hópsins á EM U19. Mótið fer fram í Tatabánya í Ungverjalandi og hefst þriðjudaginn 18.ágúst með liðakeppninni. Liðakeppnin klárast 22.ágúst og sama dag hefst einstaklingskeppnin og henni lýkur þann 27.ágúst.Sex leikmenn...

Badmintonveisla á Sauðárkróki!Það var líf og fjör á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina þegar Unglingalandsmót UMFÍ fór...
04/08/2026

Badmintonveisla á Sauðárkróki!

Það var líf og fjör á Sauðárkróki um Verslunarmannahelgina þegar Unglingalandsmót UMFÍ fór þar fram. Yfir 1100 ungmenni mættu til leiks, kepptu í íþróttum á daginn og skemmtu sér á tónleikum á kvöldin.

Keppni í badminton fór fram á föstudeginum með metþátttöku, en rúmlega 200 keppendur tóku þátt! Keppt var í 11–12 ára, 13–14 ára og 15–18 ára flokkum hjá bæði stúlkum og drengjum.

Til að koma öllum að var spilað á tíma og notast við Monrad-kerfið. Það fyrirkomulag tryggir að allir fá jafnmarga leiki; spilaðar voru s*x umferðir og spennan var í hámarki undir lokin þegar getustig keppenda hafði jafnast út.

Áhugi ungmennanna á badminton var gífurlegur og því þurfti að halda uppi miklum hraða. Leikirnir voru aðeins 4–5 mínútur með engu hléi á milli og var keyrt stanslaust frá klukkan 8:30 um morguninn til 19:30 um kvöldið. Alls voru spilaðir um 630 leikir á 11 klukkustundum!

En dagskránni var ekki lokið þar. Frá kl. 21:00 til 23:00 var boðið upp á LED-partý-badminton þar sem ljósin voru slökkt, kveikt á partíljósum, netin skreytt með ljósaseríum og LED-kúlur flugu um salinn. Þetta sló rækilega í gegn hjá bæði börnum og fullorðnum og komust færri að en vildu, en biðröð hafði myndast frammi á gangi og út á götu um 15 mínútum áður en opnað var í salinn – sannkölluð badmintonveisla frá morgni til kvölds!

Það var Badmintondeild Tindastóls sem sá um skipulag badmintondagsins í góðu samstarfi við starfsfólk UMFÍ og öflugan hóp sjálfboðaliða, en margir þeirra höfðu aldrei tekið þátt í badmintonmóti áður. Öllum þátttakendum, foreldrum, samstarfsfólki og sjálfboðaliðum eru færðar innilegar þakkir fyrir daginn. Við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur á næsta Unglingalandsmóti

Það stefnir í stórskemmtilegt Unglingalandsmót og fjölmennt badmintonmót og okkur vantar fleiri hendur á dekk! 🥳Okkur va...
29/07/2026

Það stefnir í stórskemmtilegt Unglingalandsmót og fjölmennt badmintonmót og okkur vantar fleiri hendur á dekk! 🥳

Okkur vantar teljara til að telja stig og fletta talningaspjöldum, það er ekki þörf á kunna reglurnar vel og ekki nauðsynlegt að hafa teljarareynslu. Alveg kjörið verkefni fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt, kynnast badmintonsportinu aðeins nánar eða bara hafa gaman með hressum börnum og ungmennum!

Badmintonkeppnin fer fram föstudaginn 31.júlí frá kl 9-18.
https://www.umfi.is/vidburdir/unglingalandsmot/keppnisgreinar/badminton/

Öll sjálfboðaliðastörf eru greidd íþróttadeild eða ungmennafélagi að eigin vali.

Ef þú vilt leggja okkur lið, endilega hafðu samband við okkur! :)

Ertu líka að fylgja okkur á instagram?
27/07/2026

Ertu líka að fylgja okkur á instagram?

Ferðasaga frá All England Junior 2026
21/07/2026

Ferðasaga frá All England Junior 2026

Dagana 16.-19. júlí var blaðamaður Feykis, undirrituð, Emma Katrín, stödd í Birmingham á Englandi. Þar fór fram alþjóðlega unglingamótið All England Junior

19/07/2026

Address

Víðigrund 5
Sauðárkrókur
550

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Badmintondeild Tindastóls posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category