Golfklúbbur Sandgerðis

Golfklúbbur Sandgerðis

Share

Golfvöllur í Suðurnesjabæ.

27/08/2026

Skráning í fullum gangi í Icewear mótið á laugardaginn ⛳️

Veðurspáin er góð og við hlökkum til að sjá ykkur! ⛳️😎🌞

27/08/2026

Rafholtsmóti nr. 6 lauk í gær og þá hafa öll Rafholtsmót sumarsins farið fram. Úrslit voru eftirfarandi:

🥇 Besta skor: Hlynur Jóhannsson, 76 högg.

Punktakeppni:
🥇 1. sæti: Róbert Pálsson, 43 pkt.
🥈 2. sæti: Rúnar Gissurarson, 37 pkt.
🥉 3. sæti: Björn Ingvar Björnsson, 36 pkt.

Til hamingju 👏 Vinningshafar geta nálgast verðlaunin í afgreiðslunni.

Lokastaðan á stigalistanum verður svo birt á næstu dögum.

25/08/2026

Spennan magnast! ⛳️😀

Íslandsmóti golfklúbba kk, 50+ lokið 24/08/2026

⛳️ Íslandsmóti golfklúbba kk 50+, 2. deild lokið.

Mótinu lauk á laugardaginn eftir þriggja daga keppni. Veðrið lék við keppendur framan af en lokadagurinn reyndi heldur betur á – engu að síður gekk mótið vel og keppendur héldu sáttir heim.

Okkar menn í Golfklúbbi Sandgerðis stóðu sig með prýði, enduðu í 5. sæti og tryggðu sér áframhaldandi sæti í deildinni 💪⛳️

🏆 Golfklúbburinn Keilir stóð uppi sem sigurvegari mótsins og óskum við þeim innilega til hamingju!

Við þökkum öllum keppendum, liðsstjórum og þeim sem komu að mótinu fyrir frábæra daga á Kirkjubólsvelli. ❤️

Íslandsmóti golfklúbba kk, 50+ lokið Íslandsmót golfklúbba karla 50+ fór fram á Kirkjubólsvelli í síðustu viku þar sem átta lið mættu til leiks. Mótið hófst á fimmtudag, tveir leikir voru leiknir bæði fimmtudag og föstudag og lokaumferðin fór svo fram á laugardag.

Hola í höggi nr. 2 á Íslandsmóti golfklúbba 50+ 22/08/2026

Aftur hola í höggi í Íslandsmótinu⛳👏

Nú var það Birkir Ívar Guðmundsson frá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Hann tók fyrsta höggið sitt í dag á 17. teig með 8 járni og eftir að hafa skoppað einu sinni fór boltinn beint í holu. Ekki amaleg byrjun á deginum!

Við óskum Birki til hamingju með glæsilegt högg og eftirminnilega byrjun á lokadegi mótsins! 🎉⛳

Hola í höggi nr. 2 á Íslandsmóti golfklúbba 50+ Það virðist vera eitthvað sérstakt í loftinu á Kirkjubólsvelli þessa dagana. Í dag, á lokadegi Íslandsmóts golfklúbba 50+ bættist enn ein holan í höggi í safnið þegar Birkir Ívar Guðmundsson frá Golfklúbbi Vestmannaeyja fór holu í höggi á 17. holu. Höggið var fyrsta hö...

Óskar fór holu í höggi 22/08/2026

Undanfarna daga hefur Íslandsmót golfklúbba karla 50+ farið fram á Kirkjubólsvelli og á öðrum keppnisdegi var það Óskar Bjarni Ingason úr Golfklúbbnum Oddi sem fór holu í höggi á 2. holu.

Hann sló glæsilegt högg með 9 járni sem skoppaði nokkrum sinnum fyrir framan holuna og fór svo beint í holu.

Til hamingju Óskar Bjarni 😊⛳

Óskar fór holu í höggi Undanfarna daga hefur Íslandsmót golfklúbba 50+ farið fram á Kirkjubólsvelli og á öðrum keppnisdegi var það Óskar bjarni Ingason úr Golfklúbbnum Oddi sem fór holu í höggi á 2. holu. Óskar sló glæsilegt högg með 9 járni. Boltinn lenti rétt fyrir framan holuna og endaði svo o...

21/08/2026

Við minnum á síðasta mótið í Rafholtsmótaröðinni á miðvikudaginn, 26. ágúst. Hvetjum alla til að vera með 😀⛳️

Það verður spennandi að sjá hver verður Rafholtsmeistari 2026 🥇

Skráning á Golfbox.

20/08/2026

Skráning er hafin í árlega Icewear mótið okkar!

Við hlökkum til að sjá ykkur 🥰⛳️

Photos from Golfklúbbur Sandgerðis's post 18/08/2026

Bræður sigruðu í þriðja skemmtimótinu.

Skemmtimót GSG var haldið síðastliðinn föstudag og skemmtu þátttakendur sér vel, eins og vanalega á þessum mótum.

Að þessu sinni var leikið tveggja manna Texas Scramble og spilaðar 12 holur. Að leik loknum komu keppendur saman í klúbbhúsinu, fengu sér að borða og að sjálfsögðu fór fram verðlaunaafhending.

Liðið Bræður, skipað þeim Annel og Halldóri Rúnari, stóð uppi sem sigurvegari mótsins og var liðið Liverpool og Man. United með Auði og Lárusi í öðru sæti. Nokkur lið voru jöfn í 3. sæti og þurfti vippkeppni til að skera úr um úrslitin. Það voru feðgarnir Guðfinnur og Aron í liðinu Man. Utd. sem náðu 3. sætinu eftir glæsilegt vipp frá Aroni en hann er efnilegur 7 ára kylfingur 😀

Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir skemmtilegt kvöld og góða stemningu. ⛳😊

Photos from Golfklúbbur Sandgerðis's post 17/08/2026

Góð helgi hjá karlaliði GSG í Vogunum ⛳️

Íslandsmóti golfklúbba í 5. deild karla lauk í Vogunum um helgina og endaði lið Golfklúbbs Sandgerðis í 5. sæti.

Eftir fyrstu tvo leikina á föstudag hélt keppnin áfram á laugardaginn með tveimur umferðum. Þar töpuðu okkar menn öðrum leiknum en unnu hinn. Þeir kláruðu svo mótið með stæl og unnu í gær síðasta leikinn örugglega 3–0. 💪⛳

Niðurstaðan varð því 5. sæti í deildinni og voru allir sáttir og glaðir eftir skemmtilega keppnishelgi. Fullt af reynslu komin í pokann og verður gaman að mæta að ári.

Við óskum strákunum til hamingju og þökkum þeim fyrir að vera flottir fulltrúar Golfklúbbs Sandgerðis! 💚⛳

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Sandgerði?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sandgerði
245