Efling

Efling

Share

Efling er öflugt stéttarfélag með um 28.000 félaga. Formaður félagsins er Sólveig Anna Jónsdóttir.

Helsta verkefni Eflingar-stéttarfélags er að standa vörð um umsamin réttindi og kjör félagsmanna. Gerð kjarasamninga um kaup og kjör er jafnframt eitt helsta viðfangsefni stéttarfélaga. Ekki má greiða neinum launamanni lægri laun en kveðið er á um í kjarasamningum. Auk samningsgerðar og hagsmunagæslu fyrir launafólk hafa stéttarfélög á sinni hendi mjög fjölbreytta starfsemi.

25/08/2026

English below.
-----
Efling minnir á ljósmyndasamkeppni félagsins. Þemað er frí innanlands. Félagar eru hvattir til að senda inn ljósmyndir en nú fer hver að verða síðastu þar sem skilafresturinn rennur út um mánaðamótin.

Vegleg verðlaun eru í boði en fyrir 1. sæti fæst 50.000 króna gjafakort og 25.000 króna gjafakort fyrir myndirnar sem lenda í 2.-3. sæti.

Hver keppandi má senda allt að þrjár myndir. Sendið myndir á [email protected] með „Ljósmyndasamkeppni“ í titlinum.
-----
Efling would like to remind members about its annual photography competition. This year’s theme is holidays in Iceland. Members are encouraged to submit their photos, but time is running out as the deadline is at the end of the month.

There are great prizes on offer: an ISK 50,000 gift card for first place and ISK 25,000 gift cards for second and third place.

Each participant may submit up to three photos. Send your photos to [email protected] with “Photography Competition” in the subject line.

24/08/2026

English below.
-----
Efling óskar eftir tilnefningum félagsmanna sem vilja sitja sem fulltrúar á þingi ASÍ, 14.–16. október. Efling hefur 56 sæti á þinginu og félagsmenn geta tilnefnt sjálfa sig. Tilnefningar þurfa að berast fyrir kl. 16:00, 31. ágúst. Rafrænt skráningarblað er í frétt í athugasemdum.
-----
Efling is inviting members to nominate themselves as delegates to the ASÍ Congress, taking place on 14–16 October. Efling has 56 delegate seats at the Congress, and members may nominate themselves. Nominations must be submitted by 4:00 p.m. on 31 August. The electronic nomination form can be found in the article linked in the comments.

17/08/2026

English below.
-----
Opnun bókana fyrir orlofshús Eflingar frestast til föstudagsins 21. ágúst.
Þá geta Eflingarfélagar bókað orlofshús fyrir tímabilið 28. ágúst–21. desember 2026 á Mínum síðum.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.
----
Bookings for Efling holiday homes have been postponed until Friday, 21 August.
Efling members can then book holiday homes for the period 28 August–21 December 2026 through My Pages.
We apologise for any inconvenience caused.

13/08/2026

English below.
-----
Er íslenska vinnumarkaðslíkanið vandamál sem þarf að laga?
Stefán Ólafsson prófessor emeritus færir sterk rök fyrir því að svo sé ekki. Líkanið veitir launafólki sterka stöðu og hefur ekki staðið í vegi fyrir hagvexti, nýsköpun eða öflugum atvinnurekstri.
Sjá grein Stefáns í athugsemdum.
------
Is Iceland’s labour market model really a problem that needs fixing?
Professor Emeritus Stefán Ólafsson argues that it is not. The model gives working people a strong position while supporting economic growth, innovation and a strong business sector.
See the full article in comments.

09/07/2026

English below:
----
Efling tók þátt í Evrópuráðstefnu stéttarfélaga ræstingafólks og öryggisvarða í París í lok júní.
Á ráðstefnunni var fjallað um réttindi verkafólks, vinnuaðstæður í ræstingum og öryggisvörslu og mikilvægi alþjóðlegrar samstöðu stéttarfélaga. Mikil samstaða var um nauðsyn þess að herða á evrópskum reglum um opinber útboð til að tryggja réttindi verkafólks.
----
Efling took part in a European trade union conference for cleaners and security guards in Paris at the end of June.
The conference focused on workers’ rights, working conditions in cleaning and security services, and the importance of international trade union solidarity. There was strong agreement on the need to tighten European rules on public procurement in order to safeguard workers’ rights.

24/06/2026

English below:
-----
Mikilvægur sigur vannst fyrir Landsrétti í gær í máli fyrrverandi starfsmanns Vietnam Restaurant. Landsréttur viðurkenndi að vangoldin yfirvinna hans skyldi njóta forgangs sem launakrafa í þrotabúi fyrirtækisins og sneri þar með við niðurstöðu héraðsdóms. Niðurstaðan skiptir miklu máli, ekki aðeins fyrir starfsmanninn sjálfan heldur einnig fyrir fjölda annarra fyrrverandi starfsmanna fyrirtækja Quang Lé sem bíða úrlausnar sambærilegra mála.

Launaþjófnaður er ólíðandi og verður að hafa afleiðingar.
-----
An important victory was secured yesterday at the Court of Appeal in the case of a former Vietnam Restaurant employee. The Court recognised his unpaid overtime as a priority wage claim in the company's bankruptcy proceedings, overturning the earlier District Court ruling. The ruling is significant not only for the claimant, but also for many other former employees of Quang Lé's companies whose similar claims remain unresolved.

Wage theft is unacceptable and must have consequences.

23/06/2026

English below.
-----
Efling stéttarfélag og Samhjálp félagasamtök hafa náð saman um kjarasamning með atbeina ríkissáttasemjara. Skrifað var undir samninginn 18. júní síðastliðinn.
-----
Efling Union and Samhjálp have reached a collective agreement with the assistance of the State Mediator. The agreement was signed on 18 June.

19/06/2026

English below.
-----
Efling stéttarfélag óskar félagskonum sínum og öllum konum á landinu til hamingju með kvenréttindadaginn.
-----
Efling Union extends its warmest congratulations to its women members and to all women in Iceland on Women's Rights Day.

17/06/2026

Efling Union wishes its members and everyone in Iceland a happy National Day. Our work creates the wealth.

17/06/2026

Efling stéttarfélag óskar félagsfólki sínu og landsmönnum öllum gleðilegs þjóðhátíðardags. Okkar vinna skapar verðmætin.

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Guðrúnartúni 1
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 14:00