Knattspyrnufélag Reykjavíkur

Knattspyrnufélag Reykjavíkur

Share

Þessi síða er fyrir félagið í heild, þvert á deildir.

21/08/2026

Kynningardagur KR er næsta miðvikudag! ⚡️

Fjölmargar deildir kynna sína íþróttagrein í A-sal frá kl. 16–18.

Við hvetjum krakka og foreldra til að koma og kynna sér allar þær skemmtilegu íþróttir sem KR hefur upp á að bjóða! 💪

Skemmtilegur dagur fyrir alla! 🖤🤍

19/08/2026

Kynningardagur KR verður 26. ágúst! ⚡️

Fjölmargar deildir kynna sína íþróttagrein í A-sal næsta miðvikudag kl. 16–18.

Við hvetjum krakka og foreldra til að koma og kynna sér þær fjölmörgu íþróttagreinar sem KR hefur upp á að bjóða! 💪

Skemmtilegur dagur fyrir alla! 🖤🤍

12/08/2026

Framtíðarsjóður KR heldur árlega golfmót KR sunnudaginn 23.ágúst á Nesvellinum!🏌🏼‍♂️

Skráning hefst 17.ágúst inni á GolfBox.🤝🏼 Við hvetjum alla KR-inga til að skrá sig!

11/08/2026

Síðasti séns! 🌑🕶️ Nældu þér í sólmyrkvagleraugu og styrktu um leið KR! 🖤🤍

Græjaðu gleraugun fyrir sólmyrkvann í vefverslun KR á kr.is og styrktu um leið knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild!😎

Gleraugun eru líka seld í afgreiðslu KR!

07/08/2026

KR-ingur júlímánaðar!!👏🏼

KR-ingur mánaðarins er sá einstaklingur sem hefur lagt sitt af mörkum til félagsins eða verið félaginu til sóma utan skipulagðra æfinga, keppna eða launaðra vinnu á vegum KR. Einstaklingurinn getur verið iðkandi, starfsmaður, forráðamaður, sjálfboðaliði eða stuðningsmaður, þvert á deildir félagsins.

KR-ingur júlímánaðar er sjálfboðaliðinn Ágúst Sæmundsson! Ágúst hefur staðið vaktina í gæslunni í vel flestum heimaleikjum KR í sumar, bæði kvenna og karla! Auk þess fór hann út til Bandaríkjanna sem fararstjóri með 3.flokki karla um miðjan júlí.🖤🤍

KR-ingur mánaðarins hlýtur gjafabréf á í þakkarskyni!🤝🏼

Hægt er að senda inn tilnefningar fyrir KR-ing ágústmánaðar í gegnum linkinn í fyrstu athugasemd. Starfsfólk aðalstjórnar fer yfir tilnefningar í lok hvers mánaðar og birtir KR-ing mánaðarins á miðlum sínum og heimasíðu félagsins.

05/08/2026

Græjaðu gleraugun fyrir sólmyrkvann í vefverslun KR á kr.is og styrktu um leið knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild!😎

Gleraugun eru líka seld í afgreiðslu KR!

28/07/2026

Seinasti séns til að senda inn tilnefningu fyrir júlí!👀

KR-ingur mánaðarins er sá einstaklingur sem hefur lagt sitt af mörkum til félagsins eða verið félaginu til sóma utan skipulagðra æfinga, keppna eða launaðra vinnu á vegum KR.

Einstaklingurinn getur verið iðkandi, starfsmaður, forráðamaður, sjálfboðaliði eða stuðningsmaður, þvert á deildir.

KR-ingur mánaðarins fær gjafabréf á Flatey í verðlaun!

Sendu inn tilnefningu hér👇
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSefzBoZ--F-dp7k5UaFPc9F3d0B-64kQhS99vJSVOIssmtaig/viewform

Photos from Knattspyrnufélag Reykjavíkur's post 16/07/2026

Þórhildur, formaður, og Pálmi, framkvæmdastjóri, færðu Bubba á dögunum afmælisgjöf í tilefni af 70 ára afmæli hans, sérmerkta treyju áritaða af meistaraflokki karla og kvenna í fótbolta🙌

Bubbi er mikill KR-ingur og hefur um árabil stutt dyggilega við félagið og glatt KR-inga með tónlist sinni. Hann samdi meðal annars lagið okkar „Við erum KR“, sem er án nokkurs vafa lang besta stuðningsmannalag landsins! 🖤🤍

KR óskar Bubba innilega til hamingju með 70 ára afmælið!

Photos from KR Reykjavík FC's post 14/07/2026
Photos from KR Reykjavík FC's post 08/07/2026

Þekkir þú nýjasta KR merkið (2024) frá gömlu merkjunum?🤓

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Reykjavík
107