15/07/2026
Góðan daginn. Eitt af stóru málunum er símasamband á hálendinu. Gera má ráð fyrir lakara sambandi eftir að slökkt var á 3G. Hvað varðar okkur þá kemur það í ljós með ferðalögum um hálendið hversu miklið þetta hefur áhrif.
Hvað getum við gert, í raun getum við lítið gert annað en að gera heiðarlega tilraun til að bæta samböndin á okkar enda. Þar sem við getum ekki sett loftnet við síman okkar þá er hægt að vera með rauter í bílnum og ytri loftnet.
Hvað varðar val á þessum „routerum“ þá eru þeir til í öllum mögulegum útgáfum en aðal atriðið er að viðkomandi router sé með tengi fyrir ytri loftnet. Sumir eru með eitt og aðrir eru með tvö.
Hvað varðar val á loftnetum þá getur það gerið aðeins flóknara. Loftnet þurfa að passa við það tíðnisvið sem verið er að vinna á. Hérna er hlekkur á síðu sem sýnir á mjög skilvirkan máta á hvaða tínisviðum GSM sambönd eru og hvaða símafélög eru að nota hvaða tíðni bönd.
Þannig að eftir þessum upplýsingum er hægt að velja rétt loftnet.
www.spectrum-tracker.com
14/09/2023
Undirbúningur í fullum gangi fyrir sýningu um helgina….
11/09/2023
Afmælissýning í Fífunni helgina 15. - 17. sept. 2023 - Ferðaklúbburinn 4x4
Í tilefni af 40 ára afmælisári Ferðaklúbbsins 4×4 ætlum við að halda veglega sýningu í Fífunni í september. Opnunartími: Föstudag 15/9 frá kl. 18 – 20 húsið lokar kl. 21:00 [...]
24/07/2022
Strútur rás 44 heimsóttur í dag. Loftnet lagfært og staðan tekinn á búnaði
30/04/2022
Til gamans viljum við minna á að 2018 opnaði Landsbjörg aðgang
ferðafólks að VHF rásum björgunarsveita.
19/07/2021
Lítill hluti fjarskiptanefndar F4x4 skrapp í Bláfjöllin laugardaginn 24.07 tilgangur ferðarinn var að kanna ástand endurvarpans rás 46. Síðan hluti endurvarpabúnaðar var endurnýjaður 2016 höfum við farið í árlega heimsókn í Bláfjöllin til að kanna ástandið eftir veturinn. Það er alltaf gaman að koma í heimsókn í Bláfjöllin, þarna er fullt af áhugaverðum tólum og tækjum.
Mælingar á loftneti og endurvarpa bentu ekki til annars en að allt sé í lagi. Í þessari ferð var ekki klifrað upp til að kanna ástandið á loftneti og kapli. En 2020 var klifrað upp til að skoða þessa hluti.
Til gaman má geta þess að í leiðinni var talstöð tengd við loftnetið og reynt var að ná samandi í gegnum hina ýmsu endurvarpa sem nást frá Bláfjöllum. En til gaman má geta þessa að samband náðist við Kjartan Magnússon sem var á ferðalagi á suðurlandi og Samúel sem var á ferðalagi á Fjallabaki.
Kv Árni Þór
15/07/2021
Jæja núna fara meðlimir nefndarinna að sinna verkefnum þessa tímabils. Við reynum að sinna fyrirbyggjandi viðhaldi eftir bestu getu. En núna er komið inn á borð til okkar óvænt verkefni. Endurvarpi Þrándur rás 46 er ekki loftinu. Formaður nefndarinnar átti leið um Skagafjörð fyrir c.a þremur vikum, þá komst hann að því að endurvarpi Þrándur var ekki í loftinu. Ekki var hægt að komast seinast spölinn að sendahúsinu vegna snjóa. Í vikunni var haft samband við meðlimi Skagafjarðardeilda F4x4 hvort þeir gætu kannað færi upp að sendahúsinu og hvort það væru sjáanlegar skemmdir á loftneti og kapli. Ekki 24 tímum síðar var svarið komið, já allur snjór farinn og bilunin var augljós, kapalinn í sundur. Núna er verið að stefna á vinnuferð á Þránd eftir ca tvær vikur.
18/05/2021
Aðalfundur afstaðinn. Formaður fjarskiptanefndar futti skýrslu fyrir seinasta starfsár (sem var stutt)
28/02/2021
Góðir hlutir gerast hægt. 13 mánuðum síðar er endurvarpakortið komið, hér fyrir neðan er hlekkur þar sem er að finna bæði kort með endurvörpum F4x4 og SL.
https://www.f4x4.is/nefndir/fjarskiptanefnd/
Eins og kannski margir vita þá hefur SL opnað fyrir notkun á þeirra rásum (með takmörkunum). Upplýsingar um opnun SL er að finna hér.
https://www.landsbjorg.is/bjorgunarsveitir/opnun-vhf-kerfisins
Fjarskiptanefnd - Ferðaklúbburinn 4x4
Fjarskiptanefnd Fjarskiptanefnd er ein af fastanefndum klúbbsins og kosin á aðalfundi. Tölvupóstfang nefndarinnar er: [email protected] Nefndina skipa: Kort yfir endurvara F4x4: og Slysavarnafélagið Landsbjörg