Yoga Shala Reykjavík

Yoga Shala Reykjavík

Share

Yoga Shala Reykjavík, býður upp á fjölbreytta yogatíma í infrared hituðum sal: Heitt yogafl?

Yogastöðin Yoga Shala Reykjavík - bíður upp á Ashtanga Vinyasa Yoga, yogaflæði, Baptiste kraftflæði, yoga nidra, yin-restorative, grunnnámskeið og margt fleira. Yoga Shala er eina yogastöðin á Íslandi sem er með HEITAN SAL hitaður með INFRARED hitapanilum.

29/08/2026

Tíminn flýgur áfram! Við trúum varla að 200 tíma kennaranámið fari af stað eftir viku! Við eru svo spennt að hefja þetta fallega en jafnframt krefjandi ferðalag með nýja hópnum. 🤍

Síðustu plássin eru að fyllast og við erum að taka síðustu nemendurna í kynningarviðtöl, eæen ef þú ert tilbúin/nn að stökkva í djúpu laugina máttu senda okkur skilaboð á [email protected]

Photos from Yoga Shala Reykjavík's post 28/08/2026

Við kynnum með stolti nýju tímatöfluna okkar! 🧡 Við bjóðum upp á frábæra dagskrá og erum að bæta við nýjum og spennandi tímum. Dökku tímarnir eru kenndir á íslensku og þeir ljósu á ensku.

Kíktu inn á heimasíðuna og skráðu þig í tíma. 😉
----
We proudly present the new timetable! 🧡 We offer a great verity of classes and we are adding new classes to the schedule. The light classes are taught in English and the dark ones in Icelandic.

Visit our website to take a closer look. 😉

27/08/2026

Arnbjörg Kristín hefur spilað á gong í heilandi tilgangi fyrir einstaklinga og hópa á fjölda viðburða og við ýmis tilefni. Hún kennir líka reglulega gongnámskeið og ætlar að leiða framhaldsnámskeið í gogn spilun um helgina í Yoga Shala Reykjavík.

Kennslan fer fram milli 13:00-18:00 laugardaginn 29. ágúst og sunnudaginn 30. ágústþ Þú getur fundið nánari upplýsingar um námskeiðið og skráð þig á www.yogashala.is/gong-framhald

26/08/2026

Núvitund með Evu Rós leiðir saman aðferðir úr klínískri sálfræði, jógafræðum og búddisma. Farið verður í gegnum ávinning núvitundar, áhrif hennar á lífsgæði, tilfinningar og sálarlíf, og hvernig hún nýtist í samskiptum. Námskeiðið verður kennt frá 8. til 29. september á þriðjudögum frá 19:00 - 21:00 og kostar 21.900 kr.

Núvitund með Evu Rós er fyrir þau sem langar að kynnast núvitundariðkun betur, hvort sem það eru fyrstu skrefin eða dýpkun á iðkuninni. Fyrir þau sem vilja hlúa að sjálfu sér og leyfa öðrum í kringum sig njóta góðs af iðkuninni og draga úr streitu í sínu eigin lífi.

Skráning fer fram í gegnum heimasíðu Yoga Shala Reykjavík (hlekkur í athugasemdum)

Photos from Yoga Shala Reykjavík's post 25/08/2026

Hafið þið hitt Pilates drottningarnar okkar? Rebekka og Auður eru báðar frábærar í að leiðbeina þér í æfingum og fá þig til að fara dýpra eða lengra inn í stöðurnar.

Rebekka fer af stað með grunn pilates námskeið 1. september sem verður kennt á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:00 og Auður byrjar aftur með opna Pilates tíma í hádeginu sama dag. 💛

Við hlökkum til að sjá þig í Pilates. 😉

20/08/2026

Þriggja vikna grunnnámskeið með Steingrími fyrir karla sem vilja kynnast jóga frá grunni og öðlast verkfæri sem nýtast bæði í daglegu lífi og annarri hreyfingu.

Steingrímur segir eftirfarandi: "Á námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöður jógaiðkunar og lærum grunnstöður, öndun og einfaldar æfingar sem bæta hreyfanleika, styrk og líkamsvitund. Sérstök áhersla verður lögð á mjaðmir, bak og axlir – svæði þar sem margir finna fyrir stirðleika, hvort sem hann kemur frá kyrrsetu, íþróttum eða annarri þjálfun."

"Við kynnumst einnig hugmyndafræðinni á bak við jóga og skoðum hvernig iðkunin getur snúist um meira en liðleika og líkamlegar stöður; um athygli, öndun og betri tengingu við eigin líkama."

Námskeiðið verður haldið 14.-28. september á mánudögum og miðvikudögum og kostar 23.900 kr. Tímarnir eru 5 og hver um sig 90 mínútur (20:00-21:30). Markmiðið er að þátttakendur öðlist góðan grunn og nægilegt öryggi til að geta haldið áfram í opna jógatíma að námskeiðinu loknu.

Námskeiðið hentar jafnt þeim sem hafa aldrei stigið á jógadýnu og þeim sem hafa einhverja reynslu en vilja styrkja grunninn.

18/08/2026

Við hlustuðum á ykkur og bætum við öðrum möntrutíma! 🎉

Miðvikudagarnir verða áfram á sínum stað og fyrsti sunnudagstíminn verður 6. september.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur með möntrum og söng!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Skeifan 7, 2nd And 3rd Floor
Reykjavík
108