25/08/2026
Æfingar komnar á stað í körfunni
Hægt er að nálgast æfingatöflu fyrir alla flokka á https://www.valur.is/born-unglingar/korfubolti.aspx
Athugið að æfingartímar á Abler gilda
Körfuknattleiksdeild Vals
25/08/2026
Æfingar komnar á stað í körfunni
Hægt er að nálgast æfingatöflu fyrir alla flokka á https://www.valur.is/born-unglingar/korfubolti.aspx
Athugið að æfingartímar á Abler gilda
19/08/2026
Við skulum bjóða Pablo Bertone velkominn.
Hann er okkur Völsurum ekki ókunnugur, en hann lék með liðinu tímabilin 2021–2022 og 2022–2023, þar sem hann hjálpaði okkur meðal annars að vinna Íslands- og Bikarmeistaratitla. Pablo er reynslumikill bakvörður og sannreyndur leikmaður í þessari deild sem mun styrkja okkur í bakvarðarstöðunni. Við hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum í rauðu og hvítu. Áfram Valur!
19/08/2026
Körfuknattleikssamband Íslands hefur tilkynnt 14 manna leikmannahóp A-landsliðs kvenna sem æfir hér heima þessa dagana og heldur til Lissabon í lok vikunnar. Þar leikur liðið tvo vináttuleiki gegn Portúgal, föstudaginn 21. ágúst og laugardaginn 22. ágúst.
Í hópnum er 1 leikmaður Vals, Þóranna Kika Hodge-Carr.
Þá hefur A-landslið karla einnig verið tilkynnt sem æfir nú hérlendis og heldur til Helsinki í vináttuleik í lok vikunnar áður en haldið verður til Belgrad þar sem liðið mætir Serbíu í undankeppni HM.
Í hópnum er 1 leikmaður Vals, Kári Jónsson.
Við óskum að sjálfsögðu okkar fólki til hamingju með valið og íslensku landsliðunum góðs gengis í verkefnum framundan!
18/08/2026
Valur er einn af skipuleggjendum 3 á 3 mótaraðarinnar sem byrjar á Menningarnótt. 1.400.000 kr í pottinum og bara 16 pláss, þannig að það er um að gera að fara að skrá sig. Skráning fer fram á 3a3.is
15/08/2026
Atli Freyr og u16 upp í A-deild eftir að ná í silfur í FIBA Evrópukeppni. Atli valinn í úrvals liðs mótsins
08/08/2026
Valsarar á fullri ferð í Evrópu 🏀
Nóg um að vera hjá Vals krökkunum okkar í sumar með yngri landsliðum í Evrópukeppni FIBA
Hægt er að fylgjast með leikjum á vef FIBA og fá alla mögulega tölfræði af öllum leikjum. Einnig hægt að nálgast alla eldri leiki.
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson u16 🇮🇸
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u16-eurobasket-2026-division-b/teams/iceland/419638-atli-freyr-haraldsson-katrinarson
Rún Sveinbjörnsdóttir u16 🇮🇸
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u16-womens-eurobasket-2026-division-b/teams/iceland/420116-run-sveinbjornsdottir
Berta María Þorkelsdóttir u18 🇮🇸
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-womens-eurobasket-2026-division-b/teams/iceland/369787-berta-thorkelsdottir
Ísey Guttormsdóttir Frost u18 🇬🇧
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-womens-eurobasket-2026-division-b/teams/great-britain/390087-isey-guttormsdottir-frost
Páll Gústaf Einarsson u18 🇮🇸
https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u18-eurobasket-2026-division-b/teams/iceland/369899-pall-einarsson
Íris Lóa Hermannsdóttir spilaði með u15 ára liðinu á norðurlandamótinu sem haldið var í Finnlandi þar sem Ísland var í 2.sæti.
Vals þjálfar sem voru í landsliðsverkefnum í sumar
Margrét Ósk Einarsdóttir með u20 og u18 kvenna í maraþon sumri.
Aron Páll Hauksson með u15 kvenna
05/08/2026
KÖRFUBOLTASKÓLI Í ÁGÚST! 🏀
Körfuboltaskóli Vals hefst 10.ágúst og verður til 21.ágúst.
Hægt er að skrá sig sitthvora vikuna eða báðar.
Skólinn er frá 13:00-14:30 alla virka daga og er fyrir börn fædd 2016-2019.
Skráning hér: https://www.abler.io/shop/valurkarfa/namskeidmot?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjI0MTk=
Hlökkum til að sjá ykkur.
ÁFRAM HÆRRA!
04/08/2026
Þjálfarar á æfingum!
Gústi, Aron Páll, Kristó, Finnur Freyr, Jón Axel og Kári hafa boðað komu sína og koma til með að sinna þjálfun í akademíunni dagana 10.-14.ágúst!🏀
Námskeiðið inniheldur:
Fimm æfingar á Valssvæðinu🏀
Myndatöku📸
Fyrirlestra frá helstu stjörnum landsins⭐
Hádegismat🍽
Dagskrá æfinga:
- 10:00-10:20: Upphitun og styrkur
- 10:20-10:40: Grunnæfingar
- 10:40-11:30: Þema dagsins með þema þjálfara
- 11:30-12:00: Spil
🎟 Takmarkað pláss í skólann - hlökkum til að sjá sem flesta!
ATH! Akademían er opin öllum
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Ágúst, yfirþjálfara Vals, [email protected].
https://www.abler.io/shop/valur/valsakademianhandbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTkyODk=?
31/07/2026
MEDIA DAY Í VALSAKADEMÍUNNI!
Valsakademían hefst mánudaginn 10.ágúst á svokölluðum Media Day, eða samfélagsmiða degi.
ToggiPop hefur boðað komu sína í akademíuna. Hann mun sjá um einstaklingsmyndatöku þar sem að allir iðkendur fá tækifæri til að æfa sitt besta fagn fyrir stóra sviðið.
Í hádeginu mætir Nablinn og verður með fyrirlestur þar sem hann fer yfir framkomu í viðtölum og hlaðvörpum ásamt því hvernig íþróttafólk getur nýtt sér samfélagsmiðla til að stækka eigið vörumerki.
Skráning er ennþá í fullum gangi á Abler - Hlökkum til að sjá sem flesta!
https://www.abler.io/shop/valur/valsakademianhandbolti
29/07/2026
Valsakademían 2026!
Dagana 10.-14.ágúst mun Valur halda einn flottasta körfuboltaskóla landsins! 🏀
Námskeiðið inniheldur:
Fimm æfingar á Valssvæðinu🏐
Myndatöku📸
Fyrirlestra frá helstu stjörnum landsins⭐
Hádegismat🍽
Dagskrá æfinga:
- 10:00-10:20: Upphitun og styrkur
- 10:20-10:40: Grunnæfingar
- 10:40-11:30: Þema dagsins með þema þjálfara
- 11:30-12:00: Spil
🎟 Takmarkað pláss í skólann - hlökkum til að sjá sem flesta!
ATH! Akademían er opin öllum
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Ágúst, yfirþjálfara Vals, [email protected].
https://www.abler.io/shop/valur/valsakademianhandbolti/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTkyODk=?