Listamaðurinn Derek Mundel kom í heimsókn á Sandskeið til að læra nýja list..
https://youtu.be/JTy2_zHP0Mk?feature=shared
Svifflugfélag Íslands-SFÍ
Svifflugfélag Íslands var stofnað 1936 og er með starfsemi sína á Sandskeiði.
Við tökum vel á móti þeim sem heimsækja okkur til að skoða svifflugurnar eða að fara í kynnisflug. Það er flogið öll kvöld og helgar yfir sumarið þegar veður leyfir. Svifflugur félagsins (Club gliders operating) :
1 Diamond Hk-36TTC - Super Dimona (Touring Motor Glider/TMG)
1 Duo Discus T
1 ASK-21 (Trainer and Aerobatic)
1 Ls 8
2 Ls 4
Togflugvél (Tow plane): PA-25 Pawnee B - 235,
Spil (Winch)
21/08/2026
Kacper Agnar Kozlowski fór sitt fyrsta einflug (sólo-flug) í svifflugu fimmtudaginn 19.8.2026 og fræmkvæmdi það óaðfinnanlega eins og við var að búast!
Daníel H. Snorrason, formaður SFÍ, afhenti honum A-prófsmerki þessum áfanga til staðfestingar og foreldrar hans komu og fögnuðu með honum. Að þeirra sögn hefur hann dreymt um að verða flugmaður síðan hann var 5 ára. Hann er á leið í atvinnuflugmannsnám og er sviffluga fyrsta flugvélin, vonandi af mörgum, sem hann flýgur sem flugstjóri.
Um þetta segir Kacper sjálfur:
„Í gær upplifði ég eitt af stærstu augnablikunum í flugnáminu mínu – fyrsta sólóflugið mitt á svifflugu. ✈️
Það var ótrúleg tilfinning að sitja einn í vélinni, taka á loft og treysta á allt sem ég hef lært og æft hingað til. Þetta er augnablik sem ég mun aldrei gleyma og ég er ótrúlega þakklátur öllum sem hafa hjálpað mér og stutt mig á leiðinni.
Þann 14. september byrja ég svo í Integrated ATPL námi hjá Reykjavík Flight Academy, sem er næsta stóra skrefið í átt að draumnum mínum um að verða atvinnuflugmaður. 🛫
Ég er virkilega þakklátur fyrir þetta tækifæri og ótrúlega spenntur fyrir því sem fram undan er. Þetta er bara byrjunin.❤️✈️"
27/07/2026
90-ára afmæliskaffi Svifflugfélag Íslands
Haldið var upp á það að 90 ár verða liðin frá stofnun Svifflugfélag Íslands 10. ágúst næstkomandi, með kaffisamsæti í skála félagsins á Sandskeiði sl. laugardag.
Fjöldi félagsmanna og gesta kom saman að þessu tilefni. Leifur Magnússon færði félaginu bókagjöf, sem Daníel H. Snorrason, formaður félagsins, tók við.
22/06/2026
90-ára stórafmæli SFÍ!
Svifflugfélag Íslands var stofnað 10. ágúst 1936 og verða því liðin 90 ár frá stofnun félagsins á þessu sumri. Tímamótanna er m.a. minnst með afmælismerki sem fáanlegt er prentað á boli og límmiða, sem axlarmerki og sem barmnæla, sjá meðfylgjandi myndir.
Bolir, svartir, stærðir M, L, XL, XXL, verð 3.000 kr./st.
Límmiðar, plast, 75 og 250 mm þvermál, verð 1.000 kr./st.
Límmiðar, plast, innan á rúður, 75 mm þvermál, verð 1.000 kr./st.
Axlarmerki, saumað í textíl, festing m. heitlímingu, 75 mm þvermál, verð 2.500 kr./st.
Barmnæla, málmgreiping, 17 mm þvermál, verð 1.500 kr./st.
Sala fer fram á Sandskeiði alla daga þegar flugstarfsemi er í gangi, sjá svifflug.com
Hafa má samband í s. 697 8730 og um netfangið [email protected]
04/06/2026
Fyrsta sóló!
Mánudaginn 1. júní byrjaði formlegt flugsumar félagsins. Fyrsta flug ársins var 7. maí og flugdagar í maí voru 6.
Flugsumarið byrjaði með látum með með því að einn af okkar ungu og efnilegu nemendum, Örn Ingvi Aðalgeirsson fór sitt fyrsta sóló. Umsjónarkennari var Stefán Sigurðsson.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Sandskeið/Suðurlandsvegi/við Bláfjallaafleggjarann
Reykjavík
161