Íslenska UNESCO nefndin

Íslenska UNESCO nefndin

Share

Ísland gerðist aðili að UNESCO – Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna þann 8. júní 1964. Sjá nánar á heimasíðu nefndarinnar, www.unesco.is

Nefndin annast upplýsingastarfsemi um málefni UNESCO á Íslandi, veitir ríkisstjórninni ráðgjöf varðandi málefni UNESCO og er tengiliður UNESCO við íslenskar mennta-, vísinda- og menningarstofnanir.

24/06/2026

Að alast upp í sítengdum heimi - leiðarvísir fyrir fjölskyldur á stafrænni öld 👌🙏

Stafræni heimurinn er orðinn órjúfanlegur hluti af lífi barna og ungmenna. Þar felast fjölmörg tækifæri til náms, samskipta og þekkingarleitar, en einnig áskoranir á borð við neteinelti, skaðlegt efni, rangar upplýsingar og hatursorðræðu.

Til að styðja fjölskyldur í þessu mikilvæga hlutverki hefur UNESCO gefið út leiðarvísi ætlaðan foreldrum, fjölskyldum og forsjáraðilum. Leiðarvísininn veitir hagnýt ráð til að efla miðla- og upplýsingalæsi og stuðla að öruggri, gagnrýninni og ábyrgri þátttöku barna í stafrænum heimi👇

🔗 https://unesco.is/2026/06/23/unesco-kynnir-nyjan-leidarvisi-fyrir-fjolskyldur-a-stafraenni-old/

Number of students in higher education more than doubled in 20 years 21/05/2026

Fjöldi háskólanema hefur meira en tvöfaldast á síðustu 20 árum, en ójöfnuður er enn til staðarℹ️

Ný skýrsla UNESCO sýnir að háskólanemum um allan heim hefur fjölgað úr um 100 milljónum árið 2000 í 269 milljónir árið 2024. Þrátt fyrir þessa miklu aukningu er enn verulegur ójöfnuðir í aðgengi að háskólanámi milli landshluta og hópa 👇

Number of students in higher education more than doubled in 20 years UNESCO’s first Higher Education Global Trends Report shows that the number of students enrolled in higher education worldwide has more than doubled over the past two decades, reaching 269 million in

Photos from Þjóðskjalasafn Íslands's post 08/05/2026

Í Þjóðskjalasafni Íslands eru varðveittir kjörgripir sem hafa hlotið hafa viðurkenningu UNESCO með skráningu á heimsskrá eða landsskrá Íslands um Minni heimsins.

Íslenska UNESCO nefndin stóð fyrir áhugaverðu málþingi á UNESCO-daginn 7. maí, þar sem meðal annars var kynnt ný skráning Reykholtsmáldaga á landsskrá um Minni heimsins.

Benedikt Eyþórsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni Íslands sagði frá Reykholtsmáldaga og varðveislusögu hans í skemmtilegu erindi.

Hér má lesa nánar um þessa kjörgripi Þjóðskjalasafns:
https://heimildir.is/kjorgripir/

Join meeting on Teams 07/05/2026

UNESCO dagurinn 2026 er runninn upp 👌
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Eddu kl. 13

Þau ykkar sem eiga ekki heimagengt geta verið með á Teams 👇

Join meeting on Teams

05/05/2026

Sæunn Stefánsdóttir, formaður landsnefndar UNESCO á Íslandi, með góða grein á Vísir.is undir fyrirsögninni:

Hvernig ræktum við frið í huga fólks? 🌱

UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur það að markmiði að efla frið og sjálfbæra þróun með alþjóðlegu samstarfi á sviði menntunar, vísinda, menningar og tjáningarfrelsis. Það er óhætt að segja að starf stofnunarinnar hafi sjaldan verið mikilvægara en nú á tímum hraðra samfélagsbreytinga og ólgu í samskiptum þjóða. Rík þörf er á samvinnu þjóða til að vernda menningararf, efla menntun og tryggja að tækniframfarir á borð við gervigreindina nýtist öllum eða eins og einkunnarorð stofnunarinnar sjálfrar tiltaka, að enginn verði skilinn eftir.....👌👇

Lesa hér 👉 https://www.visir.is/g/20262878467d/hvernig-raektum-vid-frid-i-huga-folks-

Photos from Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið's post 04/05/2026
Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Sölvhólsgata 4
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00