- Dansskólinn býður upp á vandað, markvisst dansnám, og er bæði boðið upp á byrjenda- og framhaldsflokka.
Allir kennarar skólans eru vel þjálfaðir, með margra ára reynslu af dansnámi, kennslu og choreografíu. Kenndir eru ýmsir dansstílar og má þar helst nefna commercial, jazz, jazz funk, söngleikjadans, bollywood og contemporary. Meðal þess sem nemendur læra má nefna grunntækni, stökk, hringi, samsettar tækniæfingar og dansrútínur ásamt ýmsum dansstílum, en sérstök áhersla er lög á að kynnast sem fles
tum dansstílum. Einnig er unnið mikið með sviðsframkomu og leikræna tjáningu, en dansgleði og skemmtun er höfð í fyrirrúmi. Grunnhópar
_____________
Grunnæfingar og tækni í jazzballett ásamt tækni- og styrktaræfingum ásamt teygjum. Kenndir eru hinir ýmsu dansstílar svo sem jazz, söngleikjadansar, hip-hop, Bollywood og fleira. Mikil áhersla er lögð á sviðsframkomu, leikræna tjáningu og túlkun en aðalmálið er eftir sem áður dansgleðin. Framhaldshópar
________________
Flóknari samsetningar: æfingar eru meira krefjandi, með aukinni tækni og fela m.a. í sér stökk, spörk og annað sem byggir á liðleika. Meðal dansstíla má nefna commercial, jazz funk, contemporary, street, söngleikjadansa, Bollywood og fleira. Sýningar og æfingar
_____________________
Hægt er að æfa tvisvar, þrisvar, fjórum og fimm sinnum í viku. Skólinn fær reglulega til sín gestakennara og er þá boðið upp á 'workshop' fyrir bæði nemendur og kennara. Allir nemendur skólans taka þátt í glæsilegri nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Í skólanum er jafnframt sýningarhópur sem tekur reglulega þátt í mörgum flottum sýningum á ári hverju.