FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

Share

milli kl. 10-16.00
og föstudaga 10-15.00 Félagið var stofnað 15. mars 1986. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna eldri borgara í hvívetna.

FEB – Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Stangarhyl 4 - 110 Reykjavík • Sími: 588 2111
Netfang: [email protected] • Heimasíða: www.feb.is og
Opnunartími skrifstofu:
Opið mánudaga til fimmtud. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni er langstærsta félagið innan Landssambands eldri borgara með yfir 16. 000 félagsmenn. Rétt til að verða félagsmenn eiga þeir sem hafa náð 60 ára aldri og einnig m

Photos from FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni's post 10/09/2026

Þátttakendurnir í FEB Zumba og leikfimihópunum hennar Tönyu eru alltaf glaðir, en einnig tilbúnir að vekja athygli á forvörnum.
Í dag 10. sept. er alþjóðlegur forvarnardagur gegn sjálfsvígum og þann dag er fólk hvatt til að klæðast gulu. Og það gera að sjálfsögðu þátttakendurnir hjá Tönyu!
Til að gera lífið enn skemmtilegra fara hóparnir af og til saman út að borða, en síðasta myndin er tekin í dag við það tilefni :)

10/09/2026

Ert þú ekki örugglega búin/n að skrá þig? - Almannatryggingar 90 ára, ráðstefna 30. september 2026. Opin ráðstefna, hvetjum félagsmenn til að mæta - skráning nauðsynleg. Sjá nánar á eftirfarandi slóð.
https://almannatryggingar.is/

Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa 10/09/2026

Þetta þurfa allir að kynna sér vel

Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem Alþingi samþykkti 1. júní sl. hafa það m.a. í för með sér að einstaklingar sem ferðast til landa utan EES frá og með 1. janúar nk. verða ekki tryggðir fyrir þeim kostnaði sem þeir kunna að verða fyrir vegna veikinda eða slysa.

02/09/2026

Hann Bjarni vinur okkar sem kemur alltaf hjólandi í FEB til að ganga með Gönguhrólfunum - var ànægður í morgun þegar hann g*t lagt hjólinu sínu í nýja hjólastandinn á lóð FEB í Stangarhyl 4 👏😉
Við hvetjum sem flesta, sem það geta - að koma hjólandi à viðburði FEB sérstaklega þegar veðrið er svona gott 💪

Photos from FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni's post 02/09/2026

Allir glaðir í FEB-ferð um Reykjanesið, Grindavík og Vatnsleysuströnd miðvikudaginn 2. sept. Við vonumst til að sjá alla þátttakendur í sem flestum FEB-ferðum framtíðarinnar.
Takk öll fyrir samveruna og takk Ásgeir fyrir flotta fararstjórn!

02/09/2026

https://l.facebook.com/l.php?u=https%3A%2F%2Fwww.visir.is%2Fg%2F20262929387d%2Fstjornmalin-verda-ad-svara-theim-sem-minnst-hafa%3Ffbclid%3DIwcGRvZgFleHRuA2FlbQIxMABicmlkETFkUHV2Q1dyaG9ic0szTVZhc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHmas-5KFeeXMnIIOlDsKG4AoE4-aU9fl8qtAx0skgujsmPgcsr4hb_Z7z7lF_aem_JY-SwzNikRNFLkODBPl4kQ&h=AUBQwj1yN67XfaMJwnVbXqefJNi-t4WLR2tI4ILRAiblpv22VOETMfHI0NWZWuzy0jmp5Ci89EXE7xvMXydvNJBg-cwTh_ggprRgYa-6ARLwrwcgSk_H99uFQju9ew4CUc1lBVqBCT0BIg&__tn__=R]-R&c[0]=AUC-ZphuioTTBHv6qxuPvOs2LgWJY2NZb5iouSJbXS_3uuY3xuVIdW_2yJqFa2XuIH5li0t47ddn6EyOQOwWYShTvQDi4nagBh2pJMllikTOEThnRYFxSi1y0ecM2M56sKY8L-mjDu2bRSNS5pZhM5W77cjfJJcC-xXXCcYHjRvtw1a3U_j6GAgaC9x-Lfk&c[1]=AUAFSTJAWrwybqIqzMGhDk-ftITTSh-2-98eVsVLNGDmuJ2gcMlLvRd62Rgi3rPbsP9KgWrN-xxMC5f8-lFP9i5lDcrDyYgYm3FAaLKZ6kHWhqTah9ZC1WegDIEiji-LC4hI0Gj4haewK3xTPxcyLkvuY-O_O0ip5YLQfBHs9aFCZwefqyGoD7wGfAyp8tw

Formaður LEB með beitta grein í dag:

"Stjórnmálamenn verða að svara því hvort það sé ásættanlegt að fólk á efri árum búi við svo þröngan kost að hækkun á mat, lyfjum, húsnæði eða þjónustugjöldum geti haft veruleg áhrif á líf þess.

Á sama tíma sjáum við ríki og sveitarfélög hækka gjaldskrár. Matarkostnaður hækkar, komugjöld hækka, þjónusta hækkar og ýmis önnur gjöld leggjast á heimilin. Hver hækkun fyrir sig kann að virðast lítil í augum þeirra sem taka ákvörðunina. En fyrir þann sem hefur lítið til ráðstöfunar getur samanlögð hækkun orðið veruleg."

Hlekkur á greinina í athugasemdum:

01/09/2026

Eigum nokkur sæti laus í ferðina á morgun 2. september um Vatnsleysuströnd, Grindavík og Reykjanes vegna óvæntra forfalla.
Hringdu á skrifstofuna og skráðu þig eða sendu tölvupóst á [email protected].
Lysing: Lagt af stað frá Stangarhyl kl. 09:00. Ekið sem leið liggur áleiðis suður með sjó og inn á gamla Keflavíkurveginn. Heimsækjum Kálfatjörn, skoðum kirkjuna og fræðumst um staðinn. Ekið eftir Vatnsleysuströnd þar til komið er í Voga og á leiðinni er fræðsla um sögu byggðarinnar. Eftir hring um Vogana er haldið áfram til Grindavíkur. Þar tekur við fræðsluferð um Grindavík undir leiðsögn heimamanns, sem segir sérstaklega frá afleiðingum jarðhræringa og eldgosa, sem og frá uppbyggingaráformum á staðnum. Að þessari skoðunarferð lokinni er hádegishressing í Grindavík. Að hádegisverðinum loknum er ekið vestur með suðurströndinni, staldrað við hjá Brimkatli þar sem stoppað er í stutta stund við útsýnispall sem þar hefur verið reistur. Ekið áfram vestur eftir Reykjanesskaganum, fram hjá Höfnum og sem leið liggur að Hvalsneskirkju þar sem við fáum leiðsögn um kirkjuna og síðdegiskaffi á Kaffi Golu. Að lokinni kaffihressingu liggur leiðin síðan áfram í Sandgerði, og þaðan til Reykjanesbæjar og síðan áfram heim á leið. Reiknað með að ferð ljúki um kl. 18 í Stangarhylnum.
Fararstjóri: Ásgeir Eiríksson
Verð: 19.500 kr. (3.000 kr. bætast við ef þátttakandi er utanfélagsmaður)

Photos from FEB Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni's post 31/08/2026

Skemmtileg FEB-ferð að baki í Kerlingarfjöll og Hveradali í einstaklega fallegu veðri. Maður hafði það bara varla í sér að yfirgefa hálendið, slík var fegurðin. Hópurinn var einstaklega góður og langflestir mjög góðir göngugarpar. Takk fyrir að taka þátt í ferðinni með okkur!
Nú er það Grindavík, Vatnsleysuströnd og Reykjanesið miðvikudaginn 2. sept. Gönguferð með Jónatani Garðarssyni um miðjan sept. og aðventuferðirnar til Munchen og Edinborgar í lok nóv.
Annars eru það námskeið FEB sem tekið hafa við nú á haustmánuðum.
Vertu með í félagsstarfi og ferðum FEB, þú átt ekki eftir að sjá eftir því!

31/08/2026

Kór FEB getur bætt við sig söngfólki

Það er ávallt glatt á hjalla í húskynnum FEB síðdegis á miðvikudögum en þá koma kátir félagar kórs FEB saman og syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Langar þig ekki að taka þátt?

Fyrsta æfing kórsins í haust verður miðvikudaginn 23. september kl. 16:30. Æft er einu sinni í viku allan veturinn með góðu jólafríi. Það vantar alltaf nýja áhugasama kórfélaga og núna vantar sérstaklega karlmenn í kórinn. Áhugasömum er bent á að vera í sambandi við Gísla Jónatansson, formann kórsins í síma 892 7170 – hann tekur símtalinu fagnandi 😊

Munið: Söngur bætir, kætir og léttir lund!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Stangarhyl 4
Reykjavík
110

Opening Hours

Monday 10:00 - 16:00
Tuesday 10:00 - 16:00
Wednesday 10:00 - 16:00
Thursday 10:00 - 16:00
Friday 10:00 - 15:00