Handknattleiksdeild Fram

Handknattleiksdeild Fram

Share

Fram handbolti er upplýsingasíða um allt sem tengist handbolta hjá Fram.

31/08/2026

Það er komið að því, loksins komið að því.

Á laugardag hefst handknattleikstímabilið hjá okkur Frömurum með TVÍHÖFÐA í Lambhagahöllinni. Þ.e. heimaleikur hjá báðum liðum. Meistaraflokkur karla hefur leik klukkan 16:00 á móti Þór Akureyri og svo beint í kjölfarið tekur meistaraflokkur kvenna við með leik við Gróttu.

Við erum gríðarlega spennt að sjá krakkana í leik, baráttu, klístri og stemningu á ný. Við verðum að sjálfsögðu með veitingar og drykki sem gera stemninguna þeim mun betri.

Ekki láta þig vanta! Við minnum á Ársmiðasölu inni á stubb og hægt er að nálgast link hér í bio á instagram eða finna okkur á stubb.is.

27/08/2026

VIð hvetjum alla til að gerast Framúlfur í ár, fyrir 2500 kr á mánuði færðu bæði aðgang að öllum leikjum Fram í deild sem og 10% afslátt í flugeldasölunni okkar.

Frábær leið til að styrkja handknattleiksdeild og koma í frábæran félagskap á leikjum hjá okkur í Lambhagahöllinni á komandi leiktímabili.

Árskortin eru komin í sölu fyrir nýtt leiktímabil. Við bjóðum líkt og áður upp á mismunandi leiðir sem hentar bæði einstaklingum og fleirum.

Kíktu á okkur inn á stubb!

https://dashboard.stubb.is/passlink/mnBLko

Photos from Handknattleiksdeild Fram's post 15/08/2026

Meistarflokkur karla er einnig á Tenerife í æfingaferð og hefur æft af krafti sem og þjappað hópnum saman með annars konar æfingum líkt og golfi, padel milli lyftinga, hlaupa og handbolta.
Padel keppnin fór fram af mikilli alvöru og hita þar sem veitt voru verðlaun ýmist fyrir árangur og annað.
1 sæti - Danjál og Viktor
2 sæti - Dagur Möller og Danni
3 sæti - Kexi og Marel
Mestu framfarir - Snæsi og Stefán
Jákvæðasta hugarfar - Maggi og Gauti

Photos from Handknattleiksdeild Fram's post 14/08/2026

Meistaraflokkarnir okkar eru um þessar mundir á Tenerife í æfingabúðum fyrir tímabilið eins og fleiri lið.
Stelpurnar spiluðu rétt í þessu æfingaleik við HK. Staðan var 15-10 í hálfleik fyrir okkar konum og endaði svo með okkar sigri, 31-22. Áfram Fram!

Photos from Handknattleiksdeild Fram's post 09/08/2026

U18 landsliðið okkar endar í 5. sæti með þá Alex Unnar og Kristófer Tómas innanborðs. Liðið tapaði einungis einum leik á mótinu gegn Evrópumeisturum Þýskalands.
Alex Unnar átti frábært mót og endar í úrvalsliðinu sem besti vinstri hornamaður mótsins.
Frábær árangur hjá “Kexa” okkar og við óskum honum innilega til hamingju með flottan árangur!

07/08/2026

Stefán Freyr Jónsson gengur til liðs við Fram

Stefán Freyr Jónsson hefur gengið til liðs við Fram og gert þriggja ára samning við félagið. Stefán Freyr er efnilegur markmaður og hefur allan sinn feril spilað fyrir Hörð á Ísafirði, þar sem hann er alinn upp.

Hann hefur á liðnum vikum æft með meistaraflokki karla hjá Fram og hrifið þjálfara félagsins. Við hlökkum því til að fylgjast með framþróun hans á komandi tímabili.

05/08/2026

Íslenska landsliðið skipað 18 ára og yngri er að gera það gott á Evrópumótinu um þessar mundir. Liðið er taplaust og hefur leikið frábærlega og er komið uppúr milliriðli.
Fram á tvo flotta fulltrúa í liðinu, þá Alex Unnar og Kristófer Tómas.
Við fylgjumst vel með og óskum strákunum góðs gengist í úrslitaleikjunum framundan!

24/07/2026

HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-13 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2013-2016) og 13:00-16:00 (börn fædd 2017-2020) virka daga. Námskeiðið fer fram Íþróttamiðstöð FRAM Úlfarsárdal. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1. 10 - 14. ágúst 13:00-16:00 (börn fædd 2017-2020).
Námskeið 2. 10 - 14. ágúst 09:00-12:00 (börn fædd 2013-2016).

Skráning á Abler https://www.abler.io/shop/fram/sumarskoligrafarholt?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Mzk3MDI=

21/07/2026

Alex Unnar Hallgrímsson framlengir!

Alex Unnar hefur framlengt samning sinn við Fram til næstu tveggja leiktímabila. Alex Unnar eða Kexi eins og hann er kallaður er bráðefnilegur vinstri hornamaður og verið máttarstólpi í 3.flokki og U-liðinu hjá okkur. Kexi er um þessar mundir upptekinn með u-20 ára liðinu sem er á leið á stórmót á næstu vikum.
Kexi lék líka sína fyrstu leiki í Olísdeildinni og Evrópukeppninni hjá okkur síðasta haust.

Kexi er mikill íþróttamaður, ekki bara öskufljótur, heldur með gífurlega mikinn sprengikraft sem hann hefur bæði frá náttúrunnar hendi sem og að hann er gífurlega duglegur í lyftingarsalnum, sem skilar sér heldur betur inn á völlinn.

Við hlökkum mikið til að sjá Kexa halda áfram að þróa sinn leik hjá okkur og erum mjög spennt að sjá hann stimpla sig inn hjá okkur í Olísdeildinni.

TIl hamingju með samninginn Alex Unnar og FRAM!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Website

Address


Úlfarsbraut 126
Reykjavík
113