22/08/2026
1/2 maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu
Fyrsta hlaupið þar sem
ég hleyp í aldursflokknum 40-49 ára.
En alls ekki það síðasta 🙌
Besti tíminn minn hingað til í 1/2 maraþoni : 2:20
Maður verður bara betri með aldrinum -best í heimi að fá stuðning frá fólkinu mínu ❤️
11/08/2026
Bòmullarbrùðkaup 10.08.2024 💋
Ég nýt að sjálfsögðu hvert tækifæri til að pósta myndum úr brúðkaupinu, þetta var besta helgin lífs míns 😍
29/07/2026
Ástin og vinirnir lengi lifi ❤️
20/07/2026
40 ára 👑
Jidúddamía hvað ég er heppin með lífið.
Umvafin besta fólkinu mínu og sólin skein eins og aldrei fyrr 🙌
Takk allir fyrir símtölin og kveðjurnar 🙏🏽
Mjög þakklát og meyr ❤️
24/06/2026
Bakgarðurinn við Laufásveg 40 (höfuðstöðvar STEFs) verður yoga-vettvangur mánudaginn 29. júní nk.
Fer þar fram nk. yoga-viðburður undir beru lofti, þar sem yogakennarinn Þóra Rós Guðbjartsdóttir leiðir hóp-yoga í boði Yoga Núna, við lifandi undirleik gítarleikarans Friðriks Karlssonar, en Friðrik hefur um langt árabil gefið sig mjög að svokallaðri ‘lífsstílstónlist’, sem jafnan tengist hugleiðslu og heilsurækt.
Við leggjum til að fólk taki sér yoga-hlé í amstri dagsins, til að sækja sér orku, auka vellíðan og öðlast innri ró. Losað verður um spennu og streitu í líkamanum, með meðvitaðri öndun og mjúkum yoga-stöðum, sem henta öllum.
Viðburðurinn hefst kl. 17 og stendur til 17:45 og verður öllum opinn, en eðli málsins samkvæmt er tónlistarfólk sérstaklega velkomið. Þátttakendur þurfa að koma með eigin dýnu (eða teppi) og klæða sig í samræmi við veður. Að þessu loknu býður STEF upp á kaffisopa á staðnum.
Athugið, að tímanum verður frestað, ef rigning verður þennan dag.
Það kostar ekkert að taka þátt. En þar sem pláss er eðlilega takmarkað í bakgarði STEFs, þá biðjum við þátttakendur að skrá sig í gegnum meðfylgjandi slóð, en þannig náum við að glöggva okkur á fjöldanum.
Þátttakendum býðst öllum tveggja vikna ókeypis prufuaðgangur hjá Yoga Núna.
Athugið: Ef þátttaka fer fram úr því sem ráðið verður við, þá gildir reglan „fyrstir skrá, fyrstir fá“. Ef til kemur, þá munum við senda póst til þeirra sem ofaukið er, til að láta vita.
https://shorturl.at/TXDCu
04/05/2026
Ég er heppnust í heimi með bræður 🙌