07/09/2026
NÝTT TÍMABIL YNGRI FLOKKA HAFIÐ!
Nýtt og spennandi íþróttatímabil er hafið hjá yngri flokkum Vals og starfsemin komin á fullt hjá öllum deildum félagsins! Við hlökkum til að taka á móti iðkendum á Hlíðarenda og eiga með þeim skemmtilegt og metnaðarfullt tímabil.
Hægt er að nálgast æfingatíma og allar helstu upplýsingar um starf deildanna á heimasíðu Vals:
⚽ Fótbolti: https://www.valur.is/born-unglingar/fotbolti.aspx
🤾 Handbolti: https://www.valur.is/born-unglingar/handbolti.aspx
🏀 Körfubolti: https://www.valur.is/born-unglingar/korfubolti.aspx
🏃 Íþróttaskóli Vals: https://www.valur.is/born-unglingar/ithrottaskoli-vals.aspx
👨👩👧👦 Foreldravísir: https://www.valur.is/born-unglingar/foreldravisir.aspx
Við hlökkum til frábærs tímabils og góðs samstarfs við iðkendur og foreldra! 💪
Áfram Valur – Hærra! 🦅
valur.is
04/09/2026
Treyjudagurinn var haldinn hátíðlegur á skrifstofu Vals í dag. Starfsfólk félagsins mætti í mismunandi treyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Við hvetjum öll sem geta að styrkja verkefnið inni á treyjudagur.is
Áfram Valur! 🦅
03/09/2026
Treyjudagurinn á föstudaginn 4. september 👕
Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Dagurinn hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil.
Við hvetjum auðvitað allt Valsara til að klæðast uppáhaldstreyjunni sinni á morgun og sýna stuðning og samstöðu með börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Klæðum okkur í treyju og stöndum saman! 🦅❤️
31/08/2026
SAMLOKUKORT VALS! 🥪
Nú er hægt að tryggja sér samlokukort í Valssjoppunni að Hlíðarenda!
Kortið tekur í gildi 1.september, á morgun, og hægt verður að næla sér í samloku og fernu alla virka daga frá kl. 14:00–17:00. Þetta er tilvalið fyrir þau sem vilja eiga fljótlegt og gott nesti fyrir eða eftir æfingu.
🎟️ Samlokukortið kostar 6.500 kr. og inniheldur 10 samlokur ásamt fernu (kókómjólk, epla- eða appelsínusafi).
🥪 Samlokurnar verða með skinku og osti.
Nældu þér í samlokukort - Sjáumst á æfingu!
Áfram Valur🦅
23/07/2026
🤝🤝🤝
Fögur er hlíðin 🚀
Það gleður okkur að tilkynna ykkur áframhaldandi samstarf Vals og Abler.
Við viljum einnig þakka félaginu kærlega fyrir að leyfa okkur að vera þátttakendur í því að gera gott íþróttastarf enn betra næstu árin.
_____________________________________________
Valur FC × Abler – Partnership Continues 🚀
We're delighted to announce our continued partnership between Valur and Abler. We'd also like to sincerely thank the club for allowing us to play a part in making an already outstanding sports club even better in the years to come.
20/07/2026
Takk fyrir frábært sumar! ☀️
Nú er sumarnámskeiðum Vals 2026 lokið eftir skemmtilegt og viðburðaríkt sumar. Alls tóku rúmlega 270 börn þátt í 18 námskeiðum þar sem hreyfing, gleði, leikur og ný vinátta voru í fyrirrúmi.
Við viljum þakka öllum iðkendum, foreldrum, þjálfurum og starfsfólki kærlega fyrir frábært sumar. Við hlökkum til að sjá ykkur öll aftur á komandi tímabili!
👉 Lesið fréttina hér fyrir neðan.
https://www.valur.is/frett/23344/2026/07/20/sumarnamskeid-vals.aspx