30/08/2026
Vinsælu stigabækurnar frá Fivics eru núna á tilboði! 🏹
Verð með 25% afslátt: 975kr per stykki
í staðinn fyrir 1.300 kr per stykki.
Tilboðið gildir til 15.september 😊
Opið í dag til kl 21:00!
21/08/2026
Þjálfaranámskeiðið stig 2 á vegum Heimsambandsins í bogfimi (World Archery) og Bogfimisambandsins Íslands var haldið í Bogfimisetrinu í vikunni.
Tim Swane frá World Archery kom hingað til landsins og sá um kennsluna.
Námskeiðið lauk með próf í dag og allir 11 þáttakendur náðu því! 🤩
Við óskum öllum innilega til hamingju með árangurinn og gangi ykkur vel í þjálfarastarfinu! 😊🏹
Myndirnar eru frá Bogfimisamband Íslands - BFSÍ - Archery Iceland
20/08/2026
Skráningin á bogfimiæfingar 10-13 ára og 14-18 ára, haust 2026, er hafin! 😄
🏹
Skráning á æfingar fyrir haustönn er hafin á Abler:
https://www.abler.io/shop/bfboginn
Önnin hefst 1. september.
16/08/2026
Sunnudagar eru fjölskyldudagar hjá okkur😄
Fjölskyldur fá 25% afslátt af tímaverðinu!
Opið í dag frá kl 11:00-21:00! 🏹
14/08/2026
Opið í dag, föstudaginn 14. ágúst frá kl 14:00-21:00 😁
🏹
11/08/2026
Bogfimisetrið er lokað á morgun miðvikudaginn 12. ágúst í tilefni sólmyrkvans. 🌙
Njótið dagsins og þessa stórkostlega atburðar! 😊
Við opnum aftur hress og kát á fimmtudaginn kl 14:00.
Við sjáumst! 🏹
Ljósmynd: World Archery Europe
08/08/2026
Það er búið að opna fyrir skráningu á September-grunnnámskeið í bogfimi 17 ára og eldri! 🏹
Námskeiðið er dagana:
8., 10., 15., 17., 22. og 24. September 2026, kl 19:00-20:00.
Skráningin fer fram á
https://www.abler.io/shop/bfboginn?country=IS&program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NjA1OTc=
Einnig er planið að vera með helgar-grunnnámskeið í bogfimi í September sem verður auglýst seinna. 😄
Freyja Dís Benedíktsdóttir tók myndina. ☺️
30/07/2026
Það styttist í Verslunarmannahelgina! ☀️
Hvað ætlið þið gera?
Kannski að kíkja í smá bogfimi? 🏹
Það er hægt að bóka tíma á noona.is/bogfimisetrid sem er opið allan sólarhring.
En þið getið líka sent okkur póst á [email protected], skilaboð í gegnum Facebook messenger eða bjalla í okkur (571-9330) á opnunartíma.
Við óskum ykkur góðrar verslunarmannahelgar! 😊
25/07/2026
Silfur og brons fyrir Ísland á Evrópumeistaramótinu Ungmenna í bogfimi!!
🥈 Silfur fyrir Lóu og Baldur í liðakeppni Berboga U21!
🥉Brons fyrir Lóu í einstaklingskeppni Berboga Kvenna U21!
Við óskum ykkur innilega til hamingju!! 😄
Ps. Þórdís, það var gaman að heyra þig aftur sem commentator á livestreaminu! 🤩
Takk Peter!
Thank you Peter for all these amazing photos you took during the European Youth Championship this week! Many greetings from Iceland to you! :-)