17/06/2026
Síðustu helgi tóku fjölmargir Víkingar þátt í Grefillinn, malarkeppni í Borgarfirðinum. Veðrið lék við hjólara og skemmtu sér allir stórkostlega! Sigrún Gréta Helgadóttir gerði sér lítið fyrir og vann 48km flokkinn 🏆
Víkingar þakka Hjólreiðadeild Breiðabliks kærlega fyrir æðislegan viðburð, hlökkum til að sjá ykkur að ári 🥳
Fáum hér að endurbirta myndir af Víkingum frá 📷 Magnús Valgeir Gíslason
16/06/2026
Vinavika í næstu viku, komdu og prófaðu hjólaæfingu!
17/04/2026
Í gærkvöldi var kynning á sumarstarfi Hjólreiðdeildar Víkings fyrir sumarið 2026 ☀️
Hægt er að skrá sig í félagið 1.maí til 20.sept fyrir 25.000kr.
Skráning fer fram á Abler: https://www.abler.io/shop/vikingur?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTQ2MDk=
Þjálfarar í sumar verða Birgir Árnason og Guðbjörg Rúnarsdóttir.
Helgi Berg Friðþjófsson mun leiða okkur í gegnum tækniæfingar á götuhjólum. Nánari tímasetning auglýst síðar. Þær æfingar verða 1-2x í sumar.
Æfingatímar verða hefðbundnir frá Víkinni Traðalandi:
* Mánudagar kl 18 - með þjálfara
* Miðvikudagar kl. 18 - með þjálfara
* Laugardagar kl. 9 - langur laugardagur án þjálfara
* Sunnudagar kl 10 - rólegt samhjól án þjálfara
Fyrsta æfing verður 4.maí kl. 18. Stefnt er að því að önnur æfingin sé sprettir/brekkusprettir og hin sé endurance æfing (samhjól).
Notast verður við svipaða hópaskiptingu og undanfarin ár. Ætlast er til að hóparnir haldi sig saman. Nauðsynlegt að raða sér í rétta hópa. Þjálfarar geta líka aðstoðað við að raða í hópa.
* Hópur 1 - Enginn skilgreindur hraði
* Hópur 2 - hámarkshraði 35km á jafnsléttu
* Hópur 3 - hámarkshraði 30km á jafnsléttu
* Hópur 4 (nýliðar)
09/04/2026
Komdu og hjólaðu með okkur í sumar!
- mánudögum kl. 18:00 æfing með þjálfara
- miðvikudögum kl. 18:00 æfing með þjálfara
- laugardögum kl. 9:00 gravel samhjól
- sunnudögum kl. 10:00 samhjól
Kynning á sumarstarfinu verður fimmtudaginn 16.apríl kl. 19:30: https://www.facebook.com/share/18Q13bE9kE/?mibextid=wwXIfr