Judosamband Íslands

Judosamband Íslands

Share

Engjavegur 6, 104 Reykjavík
Heimasíða www. jsi.is - Netfang: [email protected]
Stofnað 28. janúar 1973

Freyr Hugi keppir á Special Olympics Sweden Invitational Games í Malmö 04/09/2026

Freyr Hugi keppir á Special Olympics Sweden Invitational Games í Malmö

Freyr Hugi Berbergsson er staddur í Malmö í Svíþjóð þar sem hann tekur þátt í Special Olympics Sweden Invitational Games 2026. Með honum í för er Annika Líf Maríudóttir Noack, þjálfari. Undirbúningur fyrir keppnina er þegar hafinn og í dag tók Freyr þátt í sameiginlegri æfingu með júdófólki frá meðal annars Noregi, Finnlandi og Þýskalandi. Æfingin gekk vel og gaf jafnframt gott tækifæri til að kynnast öðrum þátttakendum og þjálfurum....

Freyr Hugi keppir á Special Olympics Sweden Invitational Games í Malmö Freyr Hugi Berbergsson er staddur í Malmö í Svíþjóð þar sem hann tekur þátt í Special Olympics Sweden Invitational Games 2026. Með honum í för er Annika Líf Maríudóttir Noack, þjálfari. Undirbúning…

Daníel Árnason með brons á EM í Ne-waza 30/08/2026

Daníel Árnason með brons á EM í Ne-waza

Daníel Árnason náði bronsverðlaunum í +100 kg flokki á Evrópumeistaramótinu í Ne-waza sem fram fór í Riga í Lettlandi í dag. Daníel hóf keppni með sigri á Vladimir Arm frá Eistlandi. Í undanúrslitum mætti hann Raivis Cakstins frá Lettlandi, en þar þurfti Daníel að sætta sig við tap. Cakstins varð síðar Evrópumeistari í flokknum. Í bronsviðureigninni mætti Daníel Andris Palamarcuks frá Lettlandi....

Daníel Árnason með brons á EM í Ne-waza Daníel Árnason náði bronsverðlaunum í +100 kg flokki á Evrópumeistaramótinu í Ne-waza sem fram fór í Riga í Lettlandi í dag. Daníel hóf keppni með sigri á Vladimir Arm frá Eistlandi. Í undanúrslitu…

Daníel Árnason mættur til Riga fyrir EM í Ne-waza 28/08/2026

Daníel Árnason mættur til Riga fyrir EM í Ne-waza

Daníel Árnason er mættur til Riga í Lettlandi þar sem Evrópumótið í Ne-waza fer fram um helgina. Daníel keppir í +100 kg flokki. Egill Blöndal ætlaði einnig að keppa á mótinu en þurfti að hætta við þátttöku vegna veikinda. Með Daníel í för er Nacif Elias, nýr þjálfari Júdófélags Reykjanesbæjar. Nacif á að baki öflugan keppnisferil og er tvöfaldur Ólympíufari....

Daníel Árnason mættur til Riga fyrir EM í Ne-waza Daníel Árnason er mættur til Riga í Lettlandi þar sem Evrópumótið í Ne-waza fer fram um helgina. Daníel keppir í +100 kg flokki. Egill Blöndal ætlaði einnig að keppa á mótinu en þurfti að hætta við…

Freyr Hugi og Jóhanna María Norðurlandameistarar í kata 22/08/2026

Freyr Hugi og Jóhanna María Norðurlandameistarar í kata

Freyr Hugi Herbergsson og Jóhanna María Grétarsdóttir Noack fögnuðu frábærum árangri á Nordic Kata Open í Helsinki þegar þau sigruðu í Nage-no-Kata, flokki A-Judo 1B. Þetta er annað árið í röð sem þau vinna mótið og að þessu sinni tryggði sigurinn þeim jafnframt Norðurlandameistaratitil. Annika Líf Maríudóttir Noack er þjálfari þeirra og hefur undirbúið þau fyrir mótið. Herberg Hafsteinn Birgisson var einnig með íslenska hópnum í för. Hamingjuóskir til Freys Huga og Jóhönnu Maríu með glæsilegan árangur!

Freyr Hugi og Jóhanna María Norðurlandameistarar í kata Freyr Hugi Herbergsson og Jóhanna María Grétarsdóttir Noack fögnuðu frábærum árangri á Nordic Kata Open í Helsinki þegar þau sigruðu í Nage-no-Kata, flokki A-Judo 1B. Þetta er annað árið í röð sem …

Jóhanna María og Freyr Hugi keppa á Norðurlandamótinu í kata á morgun 21/08/2026

Jóhanna María og Freyr Hugi keppa á Norðurlandamótinu í kata á morgun

Dagana 21.–23. ágúst fer Nordic Kata Open fram í Helsinki í Finnlandi. Mótið hefur nú formlega stöðu Norðurlandamóts og því verður keppt um Norðurlandameistaratitla í kata. Fulltrúar Íslands í keppninni eru Jóhanna María Grétarsdóttir Noack og Freyr Hugi Herbergsson. Þau keppa á morgun, laugardaginn 22. ágúst. Annika Líf Maríudóttir Noack er þjálfari þeirra á mótinu. Með í för er einnig Herberg Hafsteinn Birgisson, faðir Freys Huga....

Jóhanna María og Freyr Hugi keppa á Norðurlandamótinu í kata á morgun Dagana 21.–23. ágúst fer Nordic Kata Open fram í Helsinki í Finnlandi. Mótið hefur nú formlega stöðu Norðurlandamóts og því verður keppt um Norðurlandameistaratitla í kata. Fulltrúar Íslands í kepp…

UMFÍ unglingalandsmót 2026 20/08/2026

UMFÍ unglingalandsmót 2026

Fréttatilkynning – Júdókeppni á UMFÍ Unglingalandsmóti Þann 30. júlí fór fram júdókeppni á UMFÍ Unglingalandsmótinu, þar sem 15 ungmenni tóku þátt. Júdó var ein af fyrstu greinum dagsins og því gátu nokkrir skráðir keppendur ekki mætt, en stemningin var engu að síður frábær og þátttakendur sýndu mikinn áhuga og dugnað. Til að tryggja öryggi allra var mótið haldið sem Ne Waza?mót…...

UMFÍ unglingalandsmót 2026 Fréttatilkynning – Júdókeppni á UMFÍ Unglingalandsmóti Þann 30. júlí fór fram júdókeppni á UMFÍ Unglingalandsmótinu, þar sem 15 ungmenni tóku þátt. Júdó var ein af fyrstu greinum dagsins og því gát…

Æft í Kodokan í sumar 20/08/2026

Æft í Kodokan í sumar

Þann 16. júlí flugu þrír júdókar frá Íslandi til Tókýó til að taka þátt í Sumarnámskeiði 2 í Kodokan. Námskeiðið leggur megináherslu á tækni, en Randori fékk einnig góðan tíma. Rakan og hitinn í Tókýó létu strax á sér kræla um leið og flugstöðinni í Haneda var yfirgefið. Sem betur fer var dojo?ið búið loftkælingu og viftum. Fyrstu dagarnir fóru í að venjast hitanum og 13 klukkustunda tímamuninum – og auðvitað í heimsóknir í …...

Æft í Kodokan í sumar Þann 16. júlí flugu þrír júdókar frá Íslandi til Tókýó til að taka þátt í Sumarnámskeiði 2 í Kodokan. Námskeiðið leggur megináherslu á tækni, en Randori fékk einnig góðan tíma. Rakan og hitinn í Tó…

Anastasios Bountakis lauk IJF Academy UCJI þjálfaramenntun 13/07/2026

Anastasios Bountakis lauk UCJI þjálfaramenntun IJF Academy

Dagana 6.–12. júlí tók Anastasios Bountakis þátt í verklegum hluta Undergraduate Certificate as Judo Instructor (UCJI) þjálfaramenntunar IJF Academy í Ungverjalandi, eftir að hafa lokið bóklega hluta námsins fyrr á árinu. UCJI er alþjóðlega viðurkennd þjálfaramenntun á vegum Alþjóðajúdósambandsins (IJF) og samanstendur af 18 vikna fjarnámi sem lýkur með vikulangri verklegri lotu þar sem þátttakendur fá kennslu, handleiðslu og gangast undir verkleg lokapróf....

Anastasios Bountakis lauk IJF Academy UCJI þjálfaramenntun Dagana 6.–12. júlí tók Anastasios Bountakis þátt í verklegum hluta Undergraduate Certificate as Judo Instructor (UCJI) þjálfaramenntunar IJF Academy í Ungverjalandi, eftir að hafa lokið bóklega hlu…

Aðalsteinn komst í 16 manna úrslit á Evrópubikarmóti U21 í Paks 13/07/2026

Aðalsteinn komst í 16 manna úrslit á Evrópubikarmóti U21 í Paks

Keppni á Evrópubikarmóti U21 (Junior European Cup) í Paks í Ungverjalandi lauk um helgina. Alls tóku 432 keppendur frá 37 þjóðum þátt í mótinu, þar af fjórir íslenskir keppendur. Íslenska liðið skipuðu Helena Bjarnadóttir (-70 kg), Jónas Björnsson (-81 kg), Aðalsteinn Björnsson (-90 kg) og Mikael Ísaksson (-90 kg), ásamt þjálfara Zaza Simonishvili….

Aðalsteinn komst í 16 manna úrslit á Evrópubikarmóti U21 í Paks Keppni á Evrópubikarmóti U21 (Junior European Cup) í Paks í Ungverjalandi lauk um helgina. Alls tóku 432 keppendur frá 37 þjóðum þátt í mótinu, þar af fjórir íslenskir keppendur. Íslenska liðið ski…

Fjórir íslenskir þjálfarar sóttu alþjóðlegt þjálfara námskeið í Póllandi 13/07/2026

Fjórir íslenskir þjálfarar sóttu alþjóðlegt þjálfara námskeið í Póllandi

Dagana 25.–28. júní sóttu Annika Líf Maríudóttir Noack, Arnar Már Jónsson, Aron Snær Arnarsson og Eirini Fytrou lokaviðburð Judo Intellectual Disability Project (JIDP) í Pozna, í Póllandi. Viðburðurinn markaði lokakafla alþjóðlegs Erasmus+ verkefnis sem hefur það að markmiði að efla júdó fyrir einstaklinga með þroskahömlun og skapa þeim aukin tækifæri til þátttöku í íþróttinni. Yfir 60 sérfræðingar, þjálfarar og samstarfsaðilar frá 15 löndum komu saman til að miðla þekkingu, deila reynslu og ræða framtíð Adapted Judo og samstarfs við Special Olympics hreyfinguna....

Fjórir íslenskir þjálfarar sóttu alþjóðlegt þjálfara námskeið í Póllandi Dagana 25.–28. júní sóttu Annika Noack, Arnar Már Jónsson, Aron Snær Arnarsson og Eirini Fytrou lokaviðburð Judo Intellectual Disability Project (JIDP) í Pozna? í Póllandi. Viðburðurinn markaði lok…

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjaveg 6
Reykjavík
104

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00