19/08/2026
Eigum KTM 450 EXCF til á lager.
2027 árgerð
Getum útvegað hjólið í Rally stíl með stærri tank, rally turni, rekluse, akrapovic og fleiri aukahlutum sé áhugi að nota hjólið í lengri ferði einsog vinsælt er.
17/08/2026
Karl Gunnlaugsson hefði orðið 60 ára
Í dag, 17. ágúst, hefði Karl Gunnlaugsson, stofnandi KTM á Íslandi, orðið 60 ára.
Kalli og fjölskylda hafa verið samofin sögu KTM allt frá árunum 1993–1994, þegar endurreisn KTM hófst. Með því varð KTM Ísland einn af elstu innflytjendum merkisins á heimsvísu – samband sem hefur haldist óslitið í meira en þrjá áratugi.
Kalli er vel þekktur innan KTM-fjölskyldunnar og naut mikillar virðingar í Mattighofen, heimabæ KTM í Austurríki. Þar mynduðust í gegnum árin sterk tengsl og vinátta sem náði langt út fyrir hefðbundið viðskiptasamband.
En arfleifð Kalla snýst um miklu meira en KTM.
Mótorhjólasportið á Íslandi og MSÍ væri einfaldlega ekki það sem það er í dag nema fyrir Kalla og þá góðu vini hans sem lögðu ómælda vinnu í að byggja sportið upp. Þar voru ótal klukkustundir, keppnir, æfingar og verkefni unnin af hugsjón og ástríðu fyrir mótorhjólum og framtíð íþróttarinnar.
Við förum ekki nánar út í þá sögu að þessu sinni. Hún er löng og á skilið sinn eigin kafla.
Í dag viljum við einfaldlega minnast mannsins sem skildi eftir sig spor sem verða seint fyllt.
Takk fyrir þig 🧡
17. ágúst 1966 – 2. mars 2024
13/08/2026
Þetta þarf að vera til í öllum KTM-skúrum!
KTM THROTTLE BOTTLE OPENER – flöskuopnari.
Fullkomið í skúrinn, húsbílinn eða verkfærakistuna
Geggjuð gjöf fyrir KTM manninn sem á „allt“
Til á lager.
12/08/2026
Settu barnið á nýtt hjól!
50 SX og 65 SX hjól - Tilboð
GRÍPTU HJÓL STRAX! 🏁
2027 KTM 50 SX
TILBOÐ: 790.000
2027 KTM 65 SX
TILBOÐ: 990.000
Innborgun / staðfesting: 400.000 kr.
Tilboðið gildir aðeins til kl. 16:00 föstudaginn 14. ágúst!
Pantanir hjá Arnari og Gulla:
[email protected]
[email protected]
Ekki bíða – tryggðu þér 2027 hjól á frábæru verði!
KTM ÍSLAND – READY TO RACE
09/08/2026
Líf og fjör á Bolöldusvæðinu í dag!
Það var sannkölluð hjólahátíð á Bolöldusvæðinu í dag þar sem svæðið iðaði af lífi. Fjöldi fólks nýtti daginn til að æfa sig í motocrossbrautunum og stemningin var frábær.
Einnig var haldin fyrsta Trial-keppnin á svæðinu í mörg ár – frábært að sjá þessa skemmtilegu grein vakna aftur til lífsins.
Þá stóðu Slóðavinir fyrir glæsilegu námskeiði með sjálfum Chris Birch, þar sem þátttakendur fengu að læra af einum besta ævintýra- og endurokennara heims.
Nú tekur við uppáhaldstími margra hjólamanna. Ágúst, september og langt inn í október bjóða upp á frábærar aðstæður til að njóta hjólanna – hvort sem það er motocross, enduro, trial eða adventure.
Nýtum tímann og höldum áfram að hjóla!
08/08/2026
Erum að taka niður pantanir á flottustu lyftum sem völ er á í skúrinn og verkstæðið. Gott að hafa svona í skúrnum í vetur!
Verð: 795.000 kr. m/vsk
50% innborgun
Panta í gegnum [email protected] eða [email protected]
07/08/2026
Erum með eitt frábært Norden 901 í salnum hjá okkur, ekið aðeins rétt rúmlega 4500 km, wings púst, töskur fylgja.
Verð 2.790.000.-
04/08/2026
Hefur þig dreymt um að eiga alvöru KTM 450 RALLY Factory – hjólið sem er smíðað með sömu hugmyndafræði og Dakar-keppnishjólin?
Nú gefst einstakt tækifæri til að eignast eitt.
Verð: 3.200.000 kr.
Skipti möguleg.
Hjólið er nú til sýnis í verslun okkar.
01/08/2026
KTM sigraði Red Bull Romaniacs!
Manuel “Mani” Lettenbichler hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni þegar hann vann Red Bull Romaniacs 2026 á KTM eftir magnaða frammistöðu í einni erfiðustu Hard Enduro keppni heims.
Sigurinn staðfestir enn á ný yfirburði KTM í greininni og styrkir stöðu Lettenbichler sem eins besta Hard Enduro ökumanns heims.