Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club

Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club

Share

Brautarholt is a world-class 18-hole golf course in Iceland, located just 30 minutes from the capital, Reykjavik Welcome to the Brautarholt Golf Club.

If you are looking Golf in Reykjavik or Golf in Iceland please contact [email protected] or tel. 00 354 5666 045. Við bjóðum golfara velkomna í Brautarholt. Upplýsingar um vallargjald og aðgangslykla má sjá á heimasíðu www.gbr.is. Panta þarf rástíma og er hægt að gera það á www.golf.is eða [email protected].

Photos from Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club's post 12/08/2026

Golf World hefur gefið út sinn árlega lista, „Top 100 X-Factor Courses World“, og núna á listanum 2026 er Golfklúbbur Brautarholts í glæsilegu 16. sæti.

Völlurinn hefur áður verið á listum hjá Golf World síðustu ár, en árið 2025 var Brautarholt í 4. sæti yfir „Top 100 X-Factor Courses Europe“ og er jafnframt í 61. sæti yfir bestu og fallegustu golfvelli Evrópu hjá þeim.

Það er okkur afskaplega mikill heiður að komast inn á þennan heimslista. Þetta er stór viðurkenning, ekki aðeins fyrir Brautarholt heldur íslenska golfíþrótt í heild sinni, og ber vitni um þau miklu gæði sem íslenskir golfvellir hafa upp á að bjóða í dag.

Á listanum er að finna marga af frægustu golfvöllum heims og það er stórkostlegt að Brautarholt fái að deila sviðinu með þeim.

Golf World has released its annual list, the "Top 100 X-Factor Courses World," and on the 2026 ranking, Brautarholt Golf Club holds an impressive 16th place.

The course has previously been featured on Golf World's lists in recent years; in 2025, Brautarholt ranked 4th on the "Top 100 X-Factor Courses Europe" and is also currently ranked 61st among their best and most beautiful golf courses in Europe.

It is an incredible honor for us to make this global list. This is a major recognition, not only for Brautarholt but for Icelandic golf as a whole, and it serves as a testament to the exceptional quality that Icelandic golf courses have to offer today.

The list features many of the most famous golf courses in the world, and it is fantastic that Brautarholt gets to share the stage with them.

24/07/2026

Meistaraflokkur karla hjá Aftureldingu gerði sér glaðan dag og spilaði 18 holur hér í Brautarholti í gær. En í vikunni tryggði liðið sér sæti í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í fyrsta skipti í sögu félagsins. Þetta er hreint út sagt frábær árangur hjá góðum nágrönnum okkar úr Mosfellsbæ!

Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og óskum þeim innilega til hamingju með þennan stóra áfanga og alls hins besta í úrslitaleiknum! ⛳⚽

Síðustu vikur hafa verið krefjandi vegna mikillar úrkomu, en nú styttir upp og veðurspáin mjög góð næstu daga. Völlurinn er þéttbókaður í dag, rétt eins og hann á að vera, og helgin er að fyllast. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur! Allir í golf..!! 🌞🏌️‍♂️🏌‍♀

23/07/2026

Golfbílar ekki leyfðir 23-27 júlí

Tekin hefur verið ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla á vellinum dagana 23. til 27. júlí, þ.e. fram á næsta mánudag.
Staðan verður endurmetin á mánudaginn og þá tekin ákvörðun um hvort hægt verði að leyfa golfbíla að nýju eftir það.

22/07/2026

Kæru kylfingar,

Vegna mikillar rigningar undanfarna daga verða golfbílar ekki leyfðir frá og með deginum í dag og fram á föstudag. Staðan verður endurmetin á föstudaginn og þá tekin ákvörðun um hvort hægt verði að leyfa golfbíla um helgina

12/07/2026

Einn sigursælasti kvenkylfingur sögunnar, Nancy Marie Lopez er í golfferð á Íslandi með 50 konum. Nancy sem er nú 69 ára, vann 48 LPGA golfmót á ferlinum og þar af 3 stórmót. Hún spilaði Brautarholtið í gær og er hér á myndinni með Ásdísi Evu starfsmanni okkar.

Photos from Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club's post 09/07/2026

It’s been incredible watching everyone experience the new full 18-hole layout and the expanded clubhouse this year. Between the midnight golf rounds and the long summer days, the energy on the course has been unmatched

Photos from Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club's post 29/05/2026

Adam Lawrence, editor of Golf Course Architecture, had this to say about the extension at Brautarholt to 18 holes:

“It is very easy to imagine, in a few years’ time, that Brautarholt will similarly be a fixture in rankings of the world’s best and most spectacular courses, and that it will be a required stop for many travelling golfers.” ⛳️🇮🇸

https://www.golfcoursearchitecture.net/content/brautarholt-oceanic-connection

Photos from Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club's post 29/05/2026

Sjáumst á vellinum í sumar! Komdu og njóttu dagsins með okkur, prófaðu nýju holurnar og slakaðu á í glænýrri aðstöðu ☀️⛳️🏌️‍♀️🏌️‍♂️

Photos from Golfklúbbur Brautarholts - Brautarholt Golf Club's post 21/05/2026

Allar 18 holurnar á Brautarholtsvelli eru nú opnar! ⛳

Loksins getum við fært ykkur þær gleðifréttir að völlurinn er nú allur opinn til spilunar. Við erum ótrúlega stolt af nýju holunum s*x (13–18) og vonum að þið njótið þess að spila þær!

Það eru þó ekki einu góðu fréttirnar, því nýja klúbbhúsið okkar er líka tilbúið! Hér að neðan fylgja nokkrar myndir af þessari glæsilegu viðbót við aðstöðuna okkar sem við erum mjög spennt að sýna ykkur.

Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar!

14/05/2026

Brautarholtsvöllur opnar á morgun! ⛳

Við opnum fyrstu 12 holurnar í Brautarholti á morgun, föstudaginn 15. maí.

Enn er unnið að lokafrágangi á nýju holunum s*x (13–18) fyrir tímabilið og frestast opnun þeirra um fáeina daga. Við látum ykkur að sjálfsögðu vita um leið og þær verða tilbúnar til spilunar.

Við hlökkum til að sjá ykkur á vellinum!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Brautarholtsvegur
Reykjavík
116