17/07/2026
Þvílíkur sigur - þvílíkt lið!
Strákarnir okkar í U20 ára landsliðinu eru komnir í undanúrslit B-deildar EuroBasket og eru þar með einum sigri frá því að tryggja sig í A-deildina að ári en efstu þrjú liðin fara upp um deild!
Strákarnir okkar unnu spennuþrunginn þriggja stiga sigur, 79-76, gegn Búlgaríu í 8-liða úrslitum í dag og spila gegn Svíþjóð í undanúrslitunum á morgun 👏
Lars Erik Bragason var stigahæstur íslenska liðsins með 27 stig en Kristófer Breki Björgvinsson var með 29 framlagsstig þar sem hann skoraði 22 stig, tók 5 fráköst og átti 5 stoðsendingar.
Það er virkilega gaman að fylgjast með okkar strákum vaxa með hverju verkefninu í Bratislava.
Við sendum áfram baráttukveðjur til strákanna okkar!
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
17/07/2026
Friðrik Árnason var tilnefndur af dómaranefnd KKÍ til að fara sem dómari með U18 ára landsliði kvenna á Norðurlandamótið í Södertalje í Svíþjóð dagana 25.-30.júní. Dómarar sem fara fyrir okkar hönd eru bæði að dæma og fræðast. Þessi leið er mikilvægur liður til að efla dómara í störfum sínum og gefa þeim jafnframt tækifæri til að dæma á erlendri grundu.
Við heyrðum í Friðriki til að fræðast um það sem fór fram í hans hluta mótsins: „Við byrjuðum alla daga á morgunfundi með instructors (leiðbeinendum) þar sem farið var yfir helstu áherslur frá FIBA og þær væntingar sem leiðbeinendur okkar gerðu til dómarahópsins. Það var gert bæði með glærukynningu, með virku samtali við hópinn og einnig með myndbandsklippum."
Jafnframt segir Friðrik: „Það helsta sem var verið að leggja áherslu á var að greina hvert „play“ frá upphafi til enda áður en tekin er ákvörðun, tímasetningu á flauti dómarans og að greina hver ber ábyrgð á hvaða varnarmanni og að sá dómari flauti í flautunum gerist sá aðili brotlegur."
Friðrik vildi ekki fara mikið dýpra í fræðin á þessum tímapunkti en hvetur fólk til að kynna sér hlutina á dómaranámskeiðum sambandsins í náinni framtíð.
Friðrik dæmdi eftirfarandi leiki:
Leikdagur eitt: Noregur – Finnland, dæmdi með Amanda frá Svíþjóð og Emile frá Danmörku.
Leikdagur tvö: Eistland – Noregur, dæmdi með Bilal frá Svíþjóð og Emile frá Danmörku.
Leikdagur þrjú: Svíþjóð – Eistland, dæmdi með Semyon frá Noregi og Emile frá Danmörku.
Leikdagur fjögur: Danmörk – Eistland, dæmdi með Bilal frá Svíþjóð og Inna frá Noregi.
Leikdagur fimm: Noregur – Danmörk, dæmdi með Bilal og Amanda frá Svíþjóð.
Um dómgæsluna segir Friðrik: „Á öllum leikjum voru einnig leiðbeinendur sem fylgdust með leikjunum og eftir leiki var sest niður og leikurinn rýndur. Farið var yfir hvað gekk vel hjá dómaranum sjálfum, hvað hefði betur mátt fara og svo rýnt í hvernig okkur gekk sem hópur eða „crew“. Einnig var farið yfir myndbands klippur úr atvikum leiksins og sköpuðust oft líflegar umræður í kringum þær."
Að lokum varðandi reynsluna af ferðalaginu bætir Friðrik við: „Lærdómurinn og þekkingin sem maður öðlast á svona móti er gríðarlegur og voru leiðbeinendur afskaplega ánægðir með framfarir hópsins á þeim áherslum sem þeir settu fram í upphafi móts. Ég kem klárlega reynslunni ríkari heim og ekki skemmir fyrir vináttan sem maður öðlast svona á alþjóðavettvangi."
Virkilega gaman að fá svona innsýn í reynsluheim dómaranna okkar og vonandi getum við deilt fleiri reynslusögum á næstu misserum. Takk kærlega Friðrik fyrir að deila þessu með okkur og körfuboltafjölskyldunni.
Meðfylgjandi myndir eru af störfum Friðriks á mótinu, ein er af daglegum morgunfundum, tvær úr leikjum og svo er þriggja dómara myndin með þeim Emile frá Danmörku (vinstra megin á mynd) og svo Semyon frá Noregi (hægra megin á mynd).
16/07/2026
Samantekt um árangur U20 ára landsliðs kvenna í A-deild EuroBasket!
Stelpurnar okkar í U20 ára landsliði kvenna gerðu sér lítið fyrir og tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt í A-deild EuroBasket að ári með stórkostlegri frammistöðu á mótinu að þessu sinni sem fram fór í Alytus í Litháen dagana 4.-12.júlí 2026. Liðið stimplaði sig strax til leiks með ótrúlegum sigri gegn sterku liði Serbíu og þá varð ljóst að þetta gæti orðið flott mót hjá unga og efnilega U20 ára liðinu okkar en meðalaldur liðsins spannaði 17,9 ár sem gerir þetta allt saman enn merkilegra í stærra samhengi hlutanna. Liðsheild, samheldni og stemning einkennir þennan frábæra hóp sem endaði í 12.sæti keppninnar eftir mjög góða sigra á mótinu. Glæsilegur árangur hjá okkar stúlkum!
Hin unga og efnilega Berglind Katla, sem er einungis 16 ára, var tilnefnd sem ein af 10 mikilvægustu leikmönnum A-deildarinnar á opinberri heimasíðu mótsins. Berglind skoraði 21,3 stig að meðaltali í leik, tók 4,8 fráköst, átti 3,8 stoðsendingar og stal sömuleiðis 1,8 bolta að meðaltali. Virkilega vel gert og til hamingju með tilnefninguna Berglind.
Við óskum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með frábæran árangur á mótinu og hlökkum til að sjá þetta unga lið aftur í A-deildinni næsta sumar!
Úrslit leikja Íslands í A-deild EuroBasket í Alytus í Litháen 2026:
Riðlakeppnin C-riðill:
ÍSLAND 78 - 74 Serbía
ÍSLAND 67 - 86 Pólland
ÍSLAND 86 - 79 Ítalía
16-liða úrslit:
ÍSLAND 62 - 84 Tyrkland
Umspil um sæti 9-16
ÍSLAND 86 - 61 Svíþjóð
Umspil um sæti 9-12
ÍSLAND 74 - 85 Þýskaland
Leikur um 11.sætið
ÍSLAND 80 - 85 Lettland
U20 ára landslið kvenna sem lék á mótinu var þannig skipað:
Arndís Rut Matthíasdóttir
Berglind Katla Hlynsdóttir
Elísabet Ólafsdóttir
Emma Karólína Snæbjarnardóttir
Hanna Gróa Halldórsdóttir
Heiðrún Hlynsdóttir
Hulda Agnarsdóttir
Kolbrún María Ármannsdóttir
Rebekka Rut Steingrímsdóttir
Sara Björk Logadóttir
Þjálfari liðsins er Emil Barja og honum til aðstoðar voru Arnór Gauti Ragnarsson og Margrét Ósk Einarsdóttir.
Til hamingju öll aftur með frábæran árangur í gríðarsterkri A-deild FIBA U20 EuroBasket.
📸FIBA
15/07/2026
U20 ára strákarnir okkar léku síðasta leik riðilsins í B-deild EuroBasket gegn Bosníu fyrr í dag. Okkar piltar voru 9 stigum undir í hálfleik en leikar stóðu jafnir eftir 3.leikhlutann sem okkar piltar unnu einmitt með 9 stigum. Bosníumenn voru ögn sterkari í lokin og uppskáru 3 stiga sigur, 80-77.
Birgir Leó og Viktor Jónas voru stigahæstir með 25 stig hvor og Viktor bætti 12 fráköstum við sem gerði hann að framlagshæsta leikmanni Íslands.
Þetta var eina tap drengjanna í riðlinum og lentu þeir í 2.sæti C-riðils eftir að Ísland, Portúgal og Bosnía enduðu jöfn að stigum á toppi riðilsins. Þar með komast strákarnir okkar áfram í 8-líða úrslitin sem hefjast á föstudag en Ísland mætir þar sterku liði Búlgaríu sem vann D-riðil mótsins.
Leikurinn gegn Búlgaríu hefst kl. 13:30 á íslenskum tíma og við hvetjum ykkur til að horfa á leikinn í beinu streymi í gegnum opinbera heimasíðu mótsins.
Frábær árangur og spilamennska strákanna okkar til þessa og við sendum áfram baráttukveðjur til liðsins!
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
14/07/2026
Sigurganga strákanna okkar í U20 ára landsliðinu hélt áfram í spennusigri gegn Portúgölum í dag. Lokatölur 75-72. Ótrúlega vel gert að halda þetta út í lokin í jöfnum og spennandi leik. Stemningin á áhorfendapöllunum var góð líkt og hjá leikmönnum liðsins eins og sjá má á meðfylgjandi myndum👌
Viktor Jónas skilaði 24 framlagsstigum í flottu íslensku stemningsliði en hann skoraði 19 stig og tók 13 fráköst. Vel gert 👏
4 sigurleikir í röð hjá strákunum staðreynd og síðasti leikur riðilsins er á morgun gegn Bosníu kl. 18:30.
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
12/07/2026
Strákarnir okkar í U20 ára landsliðinu héldu áfram sigurgöngu sinni í B-deild EuroBasket í Bratislava í Slóvakíu í kvöld þegar þeir unnu þriðja sigurinn í röð og nú var það gegn Kósovó þar sem magnaður 4.leikhluti liðsins gerði útslagið. Lokatölur 96-79. Liðsheild og stemning halda áfram að vera aðalsmerki landsliðanna okkar 👏
Birgir Leó var stigahæstur með 23 stig en skammt á eftir komu Viktor Jónas með 20 stig og 18 fráköst og Magnús Dagur með 19 stig og 15 fráköst. Magnús og Viktor skiluðu 31 framlagsstigi hvor um sig 🙏
Á morgun er frídagur drengjanna í riðlakeppninni og næsti leikur er því á þriðjudag en þá spila þeir gegn Portúgal kl. 16:00 📺
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
12/07/2026
Lokaleikur mótsins hjá stelpunum okkar í U20 ára landsliði kvenna endaði með 5 stiga tapi í dag gegn góðu lettnesku liði, 80-85. Hulda skoraði 22 stig og skilaði 19 framlagsstigum til liðsins.
Þar með er ljóst að 12.sætið er niðurstaða mótsins hjá öflugu og efnilegu U20 ára liðinu okkar. Meðalaldur liðsins hefur vakið athygli en hann er 17.9 ár 👏
Virkilega góður árangur liðsins sem tryggði jafnframt þátttökurétt að ári í A-deild EuroBasket. Við óskum leikmönnum, þjálfurum og aðstandendum liðsins innilega til hamingju með árangurinn sem er til fyrirmyndar í alla staði. Liðsheildin mögnuð og stemningin eins og hún á að vera 🙏
Meðfylgjandi eru tvær myndir úr leik dagsins ásamt stemningsmynd eftir sigurinn gegn Ítalíu en það er viðeigandi á stundu sem þessari að rifja upp mögnuð augnablik mótsins sem voru sannarlega til staðar.
Framtíðin er björt - áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
11/07/2026
Stelpurnar okkar í U20 ára landsliði kvenna lutu í lægra haldi gegn sterkum Þjóðverjum, 74-85, fyrr í dag í A-deild EuroBasket í Alytus í Litháen. Þær þýsku byrjuðu leikinn talsvert betur og voru 23 stigum yfir í hálfleik en stórbrotinn 3.leikhluti okkar stúlkna, sem fór 31-7, kom Íslandi einu stigi yfir fyrir 4.leikhlutann. Allt kom fyrir ekki og Þjóðverjar höfðu að lokum betur.
Hulda Agnarsdóttir var stiga- og framlagshæst í íslenska liðinu með 20 stig og 6 fráköst og framlagsstigin voru 16.
Úrslitin þýða að stelpurnar spila um 11.sætið á morgun gegn Lettlandi kl. 11:00. Við hvetjum ykkur til að horfa á beint YouTube streymi frá leiknum í gegnum opinbera heimasíðu mótsins.
Við erum spennt fyrir þessum lokaleik stelpnanna sem hafa staðið sig frábærlega á mótinu til þessa 👏
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
11/07/2026
U20 ára landslið karla hélt uppteknum hætti frá sigrinum gegn Armenum í fyrsta leik B-deildar EuroBasket og vann stórsigur gegn Kýpverjum í dag, 83-57. Sterk byrjun strákanna okkar skilaði góðri forystu sem hélst út allan leikinn.
Viktor var aftur framlagshæstur strákanna okkar með 29 framlagsstig en hann skoraði 18 stig, tók 11 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal 5 boltum.
Frábær byrjun drengjanna á mótinu og við fylgjumst áfram spennt með 👏
Næsti leikur liðsins er kl 19:00 annað kvöld gegn Kósovó.
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA
10/07/2026
Strákarnir okkar í U20 ára landsliði karla fóru afar vel af stað í dag í B-deild EuroBasket í Bratislava í Slóvakíu. Andstæðingar dagsins voru Armenar sem voru 4 stigum yfir í hálfleik. Magnaður þriðji leikhluti Íslands sem fór 32-6 gerði útslagið í 34 stiga sigri Íslands, 97-63.
Viktor Jónas Lúðvíksson átti rosalegan leik með 21 stig, 19 fráköst, 4 stoðsendingar, 4 varin skot og 3 stolna bolta. Framlagsstigin hans í dag voru 43!
Glæsilegt byrjun strákanna og við hlökkum til að fylgjast með næsta leik gegn Kýpur kl. 9 í fyrramálið.
Áfram ÍSLAND 🇮🇸
📸 FIBA