Knattspyrnudeild Fram

Knattspyrnudeild Fram

Share

Síða knattspyrnudeildar Fram. Hér getur þú séð fréttir úr starfi meistara- og yngri flokka.

30/08/2026

Bar-8 opnar kl. 15:00 í veislusalnum á 3. hæð.

Enski boltinn á skjánum og kaldur á krana.

Mætum snemma og hitum upp fyrir Fram-KA sem hefst kl. 17:00

29/08/2026

Nú er komið að 21. umferð Bestu deildarinnar. Við Framarar tökum á móti KA á Lambhagavelli á morgun sunnudag kl. 17:00.

Í síðasta leik unnum við magnaðan 3-4 sigur gegn Blikum á Kópavogsvelli í æsispennandi leik. Eftir sigurinn sitjum við nú jafnir KR-ingum að stigum í 2.-3. sæti deildarinnar. Við ætlum okkur að sjálfsögðu upp fyrir KR-inga í 2. sætið og um leið saxa á forskot Víkinga á toppnum. KA-menn eru þó sýnd veiði en ekki gefin en þeir sitja í 11. sæti deildarinnar með 16 stig.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest í Úlfarsárdalnum á morgun og treystum því á að þið pikkið í alla þá Framara sem nálægt ykkur eru og hvetjið þá til að fjölmenna á völlinn. Stuðningurinn í stúkunni getur gert gæfumuninn og við þurfum allar hendur á dekk til þess að tryggja okkur sigurinn.

Miða á leikinn er hægt að kaupa á Stubb: https://stubb.is/events/bX40vb

27/08/2026

Stelpurnar okkar taka á móti Stjörnunni í gríðarlega mikilvægum leik á laugardag kl. 14:00 á Lambhagavelli. Frítt er á leikinn í boði Íbúasamtaka Úlfarsárdals.

Stelpurnar þurfa ALLAN ykkar stuðning til þess að koma sér aftur á sigurbraut og í efri hluta deildarinnar fyrir úrslitakeppnina!

Við ætlum að ná í stigin 3 og hvetjum alla FRAMara til þess að mæta á Lambhagavöll á laugardaginn og hjálpa stelpunum í sinni baráttu 💙

Eins og áður segir er frítt á leikinn í boði Íbúasamtaka Úlfarsárdals og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Áfram FRAM!

21/08/2026

Páll Árnason ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Fram

Knattspyrnudeild og barna- og unglingaráð Fram hafa ráðið Pál Árnason sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu. Ráðningin er liður í breytingum á faglegri forystu knattspyrnudeildarinnar, þar sem lögð er aukin áhersla á skýra stefnu, afreksstarf og áframhaldandi uppbyggingu yngri flokka.

Páll hefur störf hjá Fram 1. september 2026. Meginverkefni hans verða að leiða mótun, innleiðingu og eftirfylgni stefnu fyrir yngri flokka og afreksstarf félagsins. Hann mun vinna náið með yfirþjálfara yngri flokka, stjórn knattspyrnudeildar, barna- og unglingaráði og þjálfurum meistaraflokka að því að skapa skýra heildarsýn og sterkan faglegan grunn fyrir knattspyrnustarfið.

Auður Geirsdóttir, formaður barna- og unglingaráðs Fram:

„Við erum mjög ánægð með að fá Pál til liðs við okkur. Hann kemur með mikla reynslu og þekkingu sem mun nýtast okkur vel í þeirri vegferð sem fram undan er. Við höfum metnað til að taka næsta skref í faglegri uppbyggingu yngri flokka, skapa skýrari stefnu og styrkja enn frekar umgjörðina í kringum afreksstarfið. Við teljum Pál rétta aðilann til að leiða þá vinnu með okkur.“

Guðmundur Torfason, formaður knattspyrnudeildar Fram:

„Ráðning Páls er mikilvægt skref í þeirri uppbyggingu sem við viljum sjá hjá knattspyrnudeild Fram til lengri tíma. Markmiðið er að efla faglega forystu, skapa meiri samfellu í starfinu og tryggja skýra sýn á þróun leikmanna frá yngstu flokkum og áfram. Við erum mjög ánægð með að fá Pál inn í félagið og hlökkum til samstarfsins.“

Við bjóðum Pál hjartanlega velkominn til starfa hjá Fram og hlökkum til samstarfsins.

16/08/2026

Kæru FRAMarar!
Strákarnir okkar taka á móti Stjörnunni á morgun, mánudaginn 17.ágúst í dalnum okkar fagra kl. 19:15
Mætum í bláu og hvetjum strákana okkar áFRAM til sigurs! 💙💙

ÁFRAM FRAM!!

13/08/2026

Real Madrid knattspyrnuskóli á Lambhagavelli í Úlfarsárdal í næstu viku.

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í Real Madrid Foundation Clinic knattspyrnuskólann á Íslandi – einstök knattspyrnuupplifun sem byggir á aðferðafræði og gildum Real Madrid Foundation undir stjórn sérhæfðra þjálfara frá Real Madrid Foundation.

Real Madrid Foundation Clinic býður upp á einstakar knattspyrnubúðir fyrir börn og unglinga (5-17 ára) þar sem þjálfun, skemmtun og persónuleg þróun fara saman. Þjálfað er eftir opinberri aðferðafræði Real Madrid Foundation, með áherslu á tæknilega færni, leikskilning og jákvæð gildi eins og liðsheild, virðingu og vinnusemi.

Knattspyrnuskólinn fer fram á Lambhagavelli, dagana 17. til 21. ágúst og þátttakendur munu æfa undir leiðsögn þjálfara frá Real Madrid Foundation.

Daglegar æfingar undir stjórn þjálfara frá Real Madrid Foundation
Markviss og uppbyggileg þjálfun samkvæmt aðferðafræði RMF
Faglegt og alþjóðlegt æfingabúðaumhverfi
Aldursskiptir hópar
Takmarkaður fjöldi plássa er í boði

Allt skipulag — skráning, greiðslur og samskipti við Real Madrid Foundation — eru í höndum Hill Sports Agency, opinbers samstarfsaðila Real Madrid Foundation Clinics á Íslandi.

Nánari upplýsingar og skráning hér: https://www.rmfclinicsiceland.com/

12/08/2026

Kæru FRAMarar!

Stelpurnar okkar taka á móti FH í Bestu deildar slag í kvöld kl. 19:15 á Lambhagavelli.

Þegar fólk hefur notið sólmyrkvans er um að gera að drífa sig á völlinn og styðja stelpurnar.

Framliðið hefur verið á góðu skriði í deildinni undanfarið Eftir fjóra sigurleiki í röð töpuðu stelpurnar síðasta leik gegn Þór/KA á Akureyri. Stelpurnar þurfa ALLAN ykkar stuðning til þess að koma sér aftur á sigurbraut!

Við ætlum að ná í þessi 3 stig og hvetjum alla FRAMara til þess að mæta á Lambhagavöll í kvöld og hjálpa stelpunum í sinni baráttu. Fram situr í 6. sæti deildarinnar og markmið liðsins er að halda sér í efri hluta deildarinnar. FH-liðið er geysisterkt og er á toppi deildarinnar. Það má því búast við flottum leik á Lambhagavellinum.

Áfram FRAM!

Photos from Knattspyrnudeild Fram's post 11/08/2026

Þrír leikmenn úr röðum FRAM hafa verið valdir til úrtaksæfinga með yngri landsliðum Íslands í ágúst 🇮🇸

Eyrún Björg Benediktsdóttir – U16 kvenna
Gísli Þór Árnason – U16 karla
Birnir Leó Arinbjarnarson – U17 karla

Eyrún tekur þátt í æfingum U16 kvenna dagana 19.–20. ágúst, en Gísli Þór og Birnir Leó voru valdir til úrtaksæfinga með U16 og U17 karla dagana 10.–12. ágúst.

Við óskum Eyrúnu, Gísla og Birni innilega til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum!

Áfram FRAM!

10/08/2026

RISA leikur í kvöld kl. 19:15 💙⚽️
FRAM - KR á Lambhagavellinum og viljum við sjá alla FRAMara, unga sem aldna á vellinum í kvöld.
Mætum í bláu - fyllum stúkuna og hvetjum okkar stráka til sigurs 💙💙
Minnum á Pallborðið fyrir leikinn - það verða alvöru gestir! Mikael Nikulásson, Bogi Ágústsson, Rikki Daða og Valtýr Björn Valtýsson - Gunnar Ormslev stýrir umræðunum.

Áfram FRAM!!

09/08/2026

Óliver Elís Hlynsson hefur verið kallaður tilbaka úr láni frá ÍR.

Óliver sem er uppalinn ÍR-ingur átti við meiðsli að stríða í vetur og var lánaður til ÍR í vor. Hann hefur spilað vel með ÍR í sumar og kemur sterkur tilbaka og tilbúinn að hjálpa Framliðinu í baráttunni sem framundan er.

Velkominn tilbaka Óliver!

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Úlfarsbraut 126
Reykjavík
113