15/07/2026
Spilaðu Royal Birkdale í Básum
The Open hefst á morgun og verður spilað á þessum frábæra velli. Komdu og prófaðu hann sjálfur í TrackMan hjá okkur og sjáðu hvernig þú myndir standa þig.
Ekki er þörf á að bóka tíma, bara mæta og koma sér fyrir á bás!
Básar er flóðlýst golfæfingasvæði á þremur hæðum í Grafarholti þar sem kylfingum gefst tækifæri á að æfa sveifluna utan dyra allan ársins hring. Æfingabásarnir eru alls 73 talsins og eru næg bílastæði framan við húsið. Um er að ræða 5 hektara svæði með tveimur brautum ásamt fjölda mismunandi skotmarka til að taka á móti boltum. Æfingasvæðið er flóðlýst og því er myrkur ekki fyrirstaða æfinga á dim
15/07/2026
Spilaðu Royal Birkdale í Básum
The Open hefst á morgun og verður spilað á þessum frábæra velli. Komdu og prófaðu hann sjálfur í TrackMan hjá okkur og sjáðu hvernig þú myndir standa þig.
10/07/2026
Opið verður í Básum til kl. 22:00 föstudaginn 10. júlí svo keppendur geti æft sig fyrir lokadaginn í Meistaramóti GR.
02/07/2026
Við erum að skipta yfir í nýtt boltakerfi í Básum — GolfNext.
Á meðan skipt er um hugbúnað gæti orðið smá töf á afgreiðslu við boltavélina og biðjum við gesti að sýna því skilning.
Við hvetjum alla sem eiga boltakort í Básum að sækja GolfNext appið og koma við í afgreiðslu Bása. Starfsmaður getur þá flutt inneignina af gamla boltakortinu yfir á GolfNext-aðganginn.
Takk fyrir þolinmæðina.
01/07/2026
Ef framkvæmdum lýkur fyrr verður bílastæðið opnað fyrr.
Við biðjumst velvirðingar á ónæðinu.
26/06/2026
Ný boltasending frá Örninn Golfverslun 🥳🥳
25/06/2026
Ný golfnámskeið í Básum
Vikunámskeiðið með Adam PGA kennara er frábær leið til að bæta sveifluna og efla golfið í skemmtilegu umhverfi.
Skráning hjá Nonna:
[email protected] | 899 0769
22/06/2026
4 ný golfnámskeið hefjast í Básum í júlí.
Hvort sem þú ert að taka fyrstu skrefin í golfi eða vilt bæta sveifluna, þá erum við með námskeið fyrir þig.
• Byrjendanámskeið
• Hádegisnámskeið
• Kvennanámskeið
• Helgarnámskeið
Nánari upplýsingar um dagsetningar, tíma og verð má finna á meðfylgjandi myndum.
Skráning og nánari upplýsingar: [email protected]
16/06/2026
🇮🇸 Gleðilegan þjóðhátíðardag! 🇮🇸
Á morgun, miðvikudaginn 17. júní, verður opið í Básum frá kl. 06:00–23:00.
Starfsfólk Bása óskar öllum kylfingum og landsmönnum gleðilegs þjóðhátíðardags og hlökkum til að sjá ykkur! ⛳️🇮🇸
10/06/2026
ATH: Bóka þarf tíma í mælingu ef þess er óskað!
-----
Golfskálinn og Cobra bjóða til tveggja daga fitting og demo daga í Básum
📅 13–14. júní 2026
🕘 09:00 – 18:00
📍 Básar, Grafarholti
Frítt í mælingar!
Bókaðu tíma í mælingu í síma 578-0120 eða sendu tölvupóst á [email protected]
Hægt er að mæta án bókunar og prófa nýjasta Cobra 2026 búnaðinn og fá faglega ráðgjöf í leiðinni.
Erlendur sérfræðingur frá Cobra verður á staðnum ásamt kylfuhvíslara Golfskálans, Eiði Ísak.
Hlökkum til að sjá ykkur!
01/06/2026
Arnar Snær býður upp á fjölbreytt byrjendanámskeið í Básum í júní fyrir þá sem vilja læra grunnatriði golfsins í skemmtilegu og aðgengilegu umhverfi.
🏌️ Helgarnámskeið
• 6.–7. júní
• 20.–21. júní
• 27.–28. júní
🏌️ 17. júní byrjendanámskeið
• Kl. 09:00–11:30
🏌️ 4 klukkustunda námskeið
• Kennsla tvisvar í viku í tvær vikur
• Hefst 16. júní
Á námskeiðunum er farið yfir helstu grunnatriði golfsins, allt frá upphafshöggi og sveiflutækni yfir í pútt og vipp. Námskeiðin henta bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem vilja byggja upp sterkari grunn.
📧 Skráning og nánari upplýsingar:
[email protected]
| Monday | 08:00 - 22:00 |
| Tuesday | 08:00 - 22:00 |
| Wednesday | 08:00 - 22:00 |
| Thursday | 08:00 - 22:00 |
| Friday | 08:00 - 18:00 |
| Saturday | 10:00 - 18:00 |
| Sunday | 10:00 - 20:00 |