26/08/2026
Icewear verður nýr samstarfsaðili Fjölnis í íþróttafatnaði!
Fjölnir og Icewear hafa gert með sér nýjan samstarfssamning um íþróttafatnað félagsins. Samstarfið nær meðal annars til keppnis- og æfingafatnaðar ákveðna deilda auk félagsfatnaðar fyrir allar deildir.
Fjölnisfatnaður verður fáanlegur í nýrri verslun Icewear Sport í Fákafeni og á sérstakri Fjölnissíðu á heimasíðu Icewear. Stefnt er að því að sala á Fjölnisvörum hefjist í seinni hluta september.
👉 Lesið nánar um nýja fatnaðinn og samstarfið hér: https://fjolnir.is/2026/08/26/icewear-verdur-nyr-samstarfsadili-fjolnis-i-ithrottafatnadi/
Um leið þökkum við Margt Smátt kærlega fyrir gott samstarf undanfarin ár. Dagana 27. ágúst–10. september verður 50% afsláttur af eldri Fjölnisvörum hjá Margt Smátt. Nafn og númer eru ekki innifalin í afslættinum.
25/08/2026
🏆💛💙 Glæsilegur árangur hjá Fjölni á MÍ 11–14 ára í Borgarnesi!
Átta iðkendur Fjölnis tóku þátt og unnu til fjölda Íslandsmeistaratitla og verðlaunasæta. Hæst ber að nefna að Fjölnir varð Íslandsmeistari í flokki 14 ára stúlkna! 👏🥇🥈🥉
Til hamingju öll með frábæran árangur!
👉 Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/08/25/glaesilegur-arangur-fjolnis-a-mi-11-14-ara/
24/08/2026
6. flokkur kvenna tók þátt í N1-mótinu á Akureyri um síðustu helgi og stóðu stelpurnar sig frábærlega.
Fjölnir sendi fjögur lið á mótið og öll liðin stóðu sig mjög vel. Tvö lið fóru alla leið og unnu sína keppni eftir flottar frammistöður í úrslitaleikjum. Fjölnir Harpa Sól vann brasilísku deildina og Fjölnir Margrét Helga vann hollensku deildina. 👏
Fyrir flestar stelpnanna var þetta fyrsta skiptið sem þær taka þátt í svona mótinu með gistingu og því mikil upplifun, bæði innan vallar og utan.
Það mikilvægasta er þó framförin sem allar stelpurnar sýndu, reynslan sem þær öðluðust og góðu stundirnar sem þær áttu saman. Öll liðin voru góðir fulltrúar Fjölnis, bæði innan vallar og utan.
Takk stelpur fyrir frábæra helgi, þjálfurum fyrir gott starf og auðvitað foreldrum, stuðningsfólki og liðsstjórum fyrir jákvæðan og góðan stuðning alla helgina! 💛
18/08/2026
🎾 Krakkatennis hjá Fjölni: fyrir 7–13 ára í haust! 💙💛
Tennisdeild Fjölnis býður börnum á aldrinum 7–13 ára að taka þátt í skemmtilegu og fjölbreyttu tennisstarfi í haust.
Æfingarnar eru ætlaðar börnum sem vilja kynnast tennis eða halda áfram að þróa sig sem tennisleikmenn. Áhersla verður lögð á tennishæfileika, hreyfingu, samhæfingu og leikskilning, auk þess að skapa jákvætt og hvetjandi umhverfi þar sem krakkarnir geta notið þess að stunda íþróttina.
🎾 7–13 ára
📍 Tennishöllin
🗓️ Hefst mánudaginn 24. ágúst
⏰ Æfingatímar verða auglýstir síðar
📞 Áhugasöm? Hafðu samband í síma 840-3249.
👉 Skráning fer síðan fram á Abler.