Fjölnir Íshokkí

Fjölnir Íshokkí

Share

Opinber Facebook síða Íshokkídeildar Fjölnis #FélagiðOkkar Björninn var stofnaður 22.nóvember 1990 að Fannafold 219A í Grafarvogi.

Stofnendur voru nokkrir áhugasamir einstaklingar sem vildu hefja æfingar í íshokkí á nýopnuðu útiskautasvelli í Laugardal. Stofnendur voru 10, allt áhugasamir ungir menn. Upplýsingar:


[email protected]

[email protected]

07/07/2026

💙💛 Fimm efnilegir leikmenn úr Fjölni tóku nýverið þátt í U14 Select Trophy í Helsinki í Finnlandi sem hluti af sameiginlegu U14 Select-liði Íslands. 🇮🇸🏒

Strákarnir stóðu sig frábærlega, öðluðust dýrmæta reynslu og voru félaginu til mikils sóma.

Við óskum þeim Fannari Hólm, Ignat, Jökli, Fannari Þór og Guðsteini innilega til hamingju! 👏

👉 Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/07/07/fimm-fjolnismenn-kepptu-a-u14-select-trophy-i-finnlandi/

01/07/2026

🇮🇸 Íslenska

🏒 Fjölnir leitar að yfirþjálfara íshokkídeildarinnar!

Við leitum að metnaðarfullum yfirþjálfara sem leiðir meistaraflokk kvenna, Íslandsmeistara 2024 og 2025, ásamt því að stýra uppbyggingu yngri flokka (U12–U20). Þetta er einstakt tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu eins öflugasta íshokkístarfs landsins.

📄 Sjá nánar á heimasíðu félagsins:
https://fjolnir.is/2026/06/30/head-coach-womens-senior-team-youth-development-u12-u20-fjolnir-ice-hockey-club

🇬🇧 English

🏒 Fjölnir Ice Hockey Club is hiring!

We're looking for an ambitious Head Coach to lead our Women's Senior Team, Icelandic Champions in 2024 and 2025, while overseeing the development of our U12–U20 youth program. Join one of Iceland's fastest-growing hockey clubs and help shape the future of Fjölnir Ice Hockey.

📄 Learn more and apply:
https://fjolnir.is/2026/06/30/head-coach-womens-senior-team-youth-development-u12-u20-fjolnir-ice-hockey-club

26/06/2026

🎳💛💙 Fjölnir og Keiluhöllin hafa endurnýjað og eflt samstarf sitt til ársins 2028!

Samningurinn felur í sér fjölmarga kosti fyrir iðkendur og stuðningsfólk félagsins. Þar má meðal annars nefna:

✅ 20% hópeflisafslátt af matseðli fyrir allar deildir og hópa Fjölnis þegar bókað er í gegnum félagið.
✅ Meðlimir 112unnar fá boltatilboð á drykkjum og 15% afslátt af matseðli gegn framvísun skírteinis.
✅ Áframhaldandi samstarf um uppskeruhátíð Fjölnis, sumarnámskeið og fjölmörg önnur verkefni.

Við erum afar þakklát fyrir áframhaldandi samstarf við Keiluhöllina og hlökkum til komandi ára!

👉 Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/06/26/fjolnir-og-keiluhollin-framlengja-og-efla-samstarf-sitt/

12/06/2026

Emil kveður Fjölni í ágúst.

Eftir farsælt starf hjá íshokkídeild Fjölnis frá árinu 2020 mun Emil láta af störfum í ágúst og flytja með fjölskyldu sinni til Akureyrar en eiginkona hans er frá Akureyri.

Emil hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu íshokkístarfs félagsins, þjálfað yngri flokka og stýrt meistaraflokki kvenna til tveggja Íslandsmeistaratitla.

Við þökkum Emil kærlega fyrir samstarfið og óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni.

Sjá nánar á heimasíðu félagsins: https://fjolnir.is/2026/06/12/emil-alengard-kvedur-fjolni-i-agust/

Photos from Fjölnir Íshokkí's post 02/06/2026

Fjölnir átti fjóra fulltrúa á Sweden Select Trophy 2026

U14 Selects lið stúlkna á vegum ÍHÍ tók þátt í Sweden Selects Trophy sem fram
fór dagana 21.–25. maí. Mótið er á hæsta getu stigi (AAA) en það var haldið í
Ritorp Arena, í Solna við Stokkhólm.
Íslenska liðið var skipað 13 efnilegum stúlkum sem kepptu gegn Selects-liðum frá
New York, Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Tékklandi. Liðið stóð sig afar vel í sinni
fyrstu keppnisferð erlendis, vann tvo leiki í riðlakeppni og hafnaði að lokum í 6.
sæti eftir naumt tap gegn Tékklandi í leik um 5. sætið.

Fjölnir átti fjóra glæsilega fulltrúa í hópnum þær Andreu
Kristjánsdóttur, Brynju Líf Jóhannesdóttur, Eygló Yrsu Þórhallsdóttur og Tindru
Mist Kristjánsdóttur. Þess má einnig geta að Andrea Kristjánsdóttir var valin
besti varnarmaður mótsins sem er verðskulduð viðurkenning.

Þess má einnig geta að Emil Alengård, yfirþjálfari íshokkídeildar Fjölnis, var þjálfari liðsins í ferðinni.

Fjölnir óskar stelpunum innilega til hamingju með frábæran árangur og
glæsilega framgöngu.

Photos from Fjölnir Íshokkí's post 02/06/2026

Fjölnir átti einn fulltrúa á Youth Cup í Bordeaux í Frakklandi.

Dagana 29. apríl til 5. maí 2026 tók fyrsti hópurinn undir merkjum SHD Selects
Iceland þátt í U13 Youth Cup mótinu í Bordeaux í Frakklandi.
Hópurinn var skipaður ellefu drengjum fæddum 2012–2014 frá Skautafélagi
Akureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur og Fjölni. Fjölnir/Björninn átti einn
glæsilegan fulltrúa í liðinu, Atla Hrafn Arndal Baldursson, sem stóð sig afar vel á
mótinu.

Íslenska liðið mætti frönskum og spænskum félagsliðum og náði frábærum
árangri. Drengirnir unnu fjóra leiki, gerðu eitt jafntefli og enduðu í 5. sæti af 12
þátttökuliðum. Ísland var með fámennasta lið mótsins en sýndi engu að síður
sterka liðsheild og mikla baráttu í hverjum leik.

Fjölnir óskar Atla Hrafni og öllum liðsfélögum hans innilega til hamingju
með frábæran árangur og glæsilega framgöngu.

22/05/2026

🐟 Fjölnir og Aldan fisk og sælkeraverslun hafa gert með sér samstarfssamning!

Allir iðkendur og foreldrar Fjölnis fá nú 10% afslátt hjá Öldunni gegn framvísun Abler-aðildar og meðlimir 112unnar fá 15% afslátt gegn framvísun stuðningsmannakorts.

Einnig mun Aldan bjóða upp á gjafabréf í fjáröflunum yngri flokka félagsins sem mun skapa spennandi tækifæri fyrir deildir Fjölnis 💛💙

Við hvetjum allt Fjölnisfólk til að kíkja við í Ölduna og nýta sér þessi frábæru kjör hjá nýjum samstarfsaðila félagsins!

Sjá nánar á heimasíðu félagsins:https://fjolnir.is/2026/05/22/fjolnir-og-aldan-sameinast-um-oflugt-samstarf-i-grafarvogi/

11/05/2026

☀️ Skráning er hafin á sumarnámskeið Fjölnis 2026! 💛💙

Í sumar býður Fjölnir upp á fjölbreytt og skemmtileg námskeið fyrir börn í Egilshöll og Dalhúsum 🙌

⚽ Fjölbreyttar íþróttir
🍽 Heitur matur í boði
👶 Gæsla fyrir og/eða eftir námskeið
🎮 Leikur, hreyfing og gleði í allt sumar

🆕 Leikjanámskeið í Dalhúsum í sumar
🏒 Fjölgreinanámskeið í ágúst

📅 Námskeið í júní, júlí og ágúst
👉 Skráning er hafin á Alber: https://www.abler.io/shop/fjolnir

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Fjölnis: https://fjolnir.is/sumarnamskeid-2026/

05/05/2026

Á aðalfundi Fjölnis sem var haldinn í síðustu viku voru m.a. afhent silfur og gullmerki félagsins.
Í fámennum hópi þeirra sem hlutu silfurmerki voru þær Kristín og Hafdís úr Bjarnarbúðinni.

Rökin fyrir veitingunni voru eftirfarandi:

"Þær Kristín Fossdal og Hafdís Baldursdóttir hafa verið aðal sprauturnar í Bjarnarbúðinni, kaupfélagi okkar íshokkífólks frá stofnun hennar árið 2018.

Þar hafa þær rekið óformlegt félagsheimili þar sem allir eru velkomnir og allir fá sömu góðu viðtökurnar.

Framan við Bjarnarbúðina má á flestum heimaleikjum sjá hópa fólks standa með kaffibolla í hönd, ræðandi yfirstandandi leiki eða heimsmálin. Þar gegnir kaffið frá þeim stöllum lykilhlutverki. Þá hafa þær í óteljandi tilfellum forðað iðkendum frá orkufalli með samlokum eða öðru góðgæti. Hluti samkomulags deildarinnar við Borgarholtsskóla sem sér um streymi frá leikjum meistaraflokka felst í samlokum úr Bjarnarbúðinni. Ég er ekki viss um að þeir samningar hefðu náðst ef samlokurnar væru ekki þar inni.

Hjá þeim má fá allt það helsta sem þarf til íshokkí iðkunar. Skautar, kylfur, hlífar og aukahlutir fást hjá þeim. Þær hafa ávallt haldið öllum verðum í lágmarki og allur hagnaður af sölu þeirra hefur verið nýttur til styrktar deildinni og iðkendum hennar. Þær hafa gegnum árin verið einn helsti styrktaraðili okkar, bæði með fjárframlögum og í formi búnaðar.

Þær stöllur hafa lagt metnað í að snyrtilegt sé umhverfis svellið og þeir eru ófáir ruslapokarnir sem þær hafa fyllt af umbúðum og öðru rusli sem skilið hefur verið eftir í skautahöllinni.

Óhætt er að segja að þær séu RISA hluti af hokkístarfinu og við erum þeim óendanlega þakklát fyrir þeirra óeigingjarna starf."

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Skautavellið í Egilshöll, Fossaleynir 1
Reykjavík
112