13/04/2026
🚀 Svifvængjanámskeið – Fisfélag Reykjavíkur
Hefur þig langað að fljúga?
Við kennum þér það, alveg frá grunni.
✔️ Engin reynsla nauðsynleg
✔️ Reyndir kennarar
✔️ Raunveruleg flug undir handleiðslu
📅 Hefst í maí
(Skráðir fá nánari upplýsingar í lok apríl)
👉 Upplýsingar:
https://fisflug.is/velarlaus-fis/namskeie/
👉 Skráning:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScnG8L8NEzbVh1frek4opsQ-AV6KfMIh77t5IhYz7E4-K65yA/viewform
02/03/2026
Námskeið fyrir einkaflugmenn
sem vilja öðlast fisflugmannsréttindi verður haldið miðvikudaginn 29. apríl 2026 félagsheimili Fisfélags Reykjavíkur á Heiði.
Námskeiðið hefst kl 20:00 og er um 2 tímar og lýkur með prófi.
Skilyrði til að nýta sér þetta námskeið er að vera með 100+ tíma skráða í einkaflugi.
Endilega byrja strax á að taka verklegt tékk eða æfingaflug.
Verklegt má taka hvenær sem er og geta nemendur fengið verklega úttekt á kennsluvél Fisfélagsins. Að loknu verklegri úttekt og bóklega prófinu er hægt að sækja um Fisflugmannskírteini og byrja loksins að fljúga fyrir alvöru.
Skráning er með tölvupósti til Ágústar [email protected], upplýsingarnar sem þarf eru:
Kennitala, Nafn, tölvupóstur, sími, upplýsingar um flugtíma á vélfisi, upplýsingar um flugtíma á flugvél, skírteinisnúmer.
Námskeiðsgjald er 11.000kr
02/03/2026
Bóklegt GRUNN-NÁMSKEIÐ fyrir byrjendur
Námskeiðið verður haldið 13.-19. APRÍL 2026 á Heiði í sal félagsins.
(Google maps: https://maps.app.goo.gl/oaXatSjbEjBGhpvy7 )
Námskeiðið kostar 70.000kr og verður sendur greiðsluseðill í banka þáttakenda.
Stefnt er á að námskeiðið taki um 6 daga, virku dagana frá kl. 19.00-22.00 og einn dag um helgi.
Afar mikilvægt er að nemendur hafi flogið einhverja flugtíma til að námskeiðið nýtist sem best. Hægt er að bóka flugtíma nú þegar með kennara á eigin vél eða kennsluvél félagsins, endilega nýta það fyrir námskeiðið.
Skráningar á námskeiðið er með tölvupósti til Ágústar [email protected]
Sendið kennitölu, nafn, síma og flugtíma.