Áhættan sem fylgir því að fara einn í golf⛳🤯
Logi Bergmann fræðir okkur um þá miklu áhættu sem fylgir því að fara einn í golf. Sérstaklega á par3 brautum!
Seinni níu
Hlaðvarp um golf í þágu þjóðar. Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson.
Fer Logi holu í höggi á einni stuttri par-3 braut?⛳
Logi Bergmann er að reyna að fara holu í höggi en lítið hefur gengið síðustu 30 ár eða svo. Nú leikur hann 7. holur á Arnarholtsvelli við Dalvík sem er aðeins 81 metri að lengd.
31/08/2026
Jón Guðni fór einn holu í höggi⛳️😮
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila.
Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í kálfa kylfings sem var í ráshópnum fyrir framan hann. Það getur stundum verið varasamt að smellhitta teighöggið vel í miklum meðvindi.
Draumahollið er á sínum stað og svo valdi bankastjórinn fyrir okkur uppáhaldsvelli sína. Stórskemmtilegur þáttur í alla staði!
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/0DkkaTQFTYh9q3yXZIgDZd?si=w0VaTldYRrqSlenLrTVLoQ
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
Odyssey White Ice með stórkostlega ljótu gripi😂
Logi heldur áfram að sýna okkur þá fjölmörgu púttera sem eru í safninu í liðnum pútter vikunnar. Odyssey White Ice 340g. Ljómandi fínn pútter sem ætti að henta flestum. Logi setti breitt og ljótt grip á hann á sínum tíma. Solid pútter, engir stælar!
26/08/2026
Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun🏌️
Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. ⛳ Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi. 💡
Viggó er kominn með 1⃣1⃣-tré í golfpokann sem hann notar til að sporna gegn þeirri forgjafarhækkun sem fylgir því að aldurinn færist yfir. Þetta er spennandi þróun sem hjálpar meðalkylfingum að slá lengra og beinna. 🚀
Við ræðum talsvert um Grafarholtsvöll, en það er þar sem Viggó féll fyrir íþróttinni og hann ber sterkar taugar til vallarins. ❤️
Stórskemmtilegur þáttur þar sem draumahollið er auðvitað á sínum stað, auk þess sem við förum yfir þau skipti sem Viggó hefur farið holu í höggi. 🎯
Einna skemmtilegast var þó að heyra af tveimur stórum klúðrum sem Viggó gerði í keppnisgolfinu. 😂 Alltaf gaman að fara yfir ófarir annarra. 🙈
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/4U3tEQ3JPTG0rQM6CdUOtz?si=qruqLqzXRD-3InIeoSuY8g
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
20/08/2026
Gauti þjálfar marga af bestu kylfingum landsins⛳🔝
Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. 🏌️♂️ Hann er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. 🤾 Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi. 🧠💪
Í þættinum ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyrir Íslandsmótið í golfi með æfingum í vonskuveðri á Nesvellinum. 🌧️⛳
Gauti varð Íslandsmeistari eldri kylfinga á dögunum 🏆 og hann ræðir við okkur um það hvernig hann byrjaði í golfi, að verða neðstur í sínu fyrsta Íslandsmóti og hversu mikið jákvæð hugsun getur hjálpað á golfvellinum. 🧠🏌️♂️
Frábært spjall við einn fremsta sjúkraþjálfara landsins! 👏🎙️
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/1EbCXv8zrBL2hWQqquT8a5?si=jMEhnGmiSCuXcZ8nwRT3qA
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
Glæsilegur pútter sem hentar Loga alls ekki🤯
Næsti í röðinni í pútter vikunnar hjá Loga er Scotty Cameron Select Square Back 1.5. Stórglæsilegur og frábær hönnun. Logi er hrifinn af þessum en þrátt fyrir allt ná þeir ekki saman á flötunum. Hvort er það pútterinn eða leikmaðurinn?
Martröð Loga 🎯⛳
Logi var nærri því búinn að upplifa martröð sína sem er að fara holu í höggi með þriðja höggi af teig😂
Pútter vikunnar nr.5 - TaylorMade Spider GTX
Logi Bergmann heldur áfram að fara yfir púttera í safni sínu. Núna er komið að einum nýlegum í safninu TaylorMade Spider GTX. Þetta er vinsæll pútter en þrátt fyrir það er Logi alls ekki að tengja við þennan pútter og er hann því mikið geymdur í bílskúrnum⛳📉
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Telephone
Address
Borgartún 35
Reykjavík
105