Fjallahjólaklúbburinn

Fjallahjólaklúbburinn

Share

Klúbbur fyrir alla sem hjóla

Klúbburinn samanstendur af breiðum hópi fólks sem hefur hjólreiðamenningu að áhugamáli, vill auka veg reiðhjólsins sem samgöngutækis og vinnur að bættri aðstöðu hjólreiðafólks til samgangna. Markmiðið er að fá sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli og komast í náið samband við móður náttúru, takast á við hana, skilja hana og virða.

Photos from Fjallahjólaklúbburinn's post 26/08/2026

Það var Sigurður Einar sem hlaut titilinn Mætingameistari 2026. Hann mætti í 13 af 16 ferðum sumarsins og hlaut fyrir vikið farandbikar, Hjólabókina, blóm og konfekt.

Við þökkum öllum sem hjóluðu með okkur í sumar og minnum á laugardagshjólatúrana sem hefjast í september, nánar tiltekið 5 september kl 11:00 Við munum hjóla frá Hlemmi til að byrja með. Viðburður verður stofnaður þegar nær dregur.

19/08/2026

Hæ, við erum með tvær ferðir á teikniborðinu og langaði að kanna áhuga fólks á að taka þátt í þeim. Gefið að veður verði skaplegt.

Strandir 28-31 ágúst. Keyrt á milli staða og gist á tjaldsvæðum. Hjólaðir malarvegir, hringur út frá Drangsnesi og seinni daginn frá Norðurfirði inn í Ingólfs- og 0Ófeigsfjörð. Krossneslaug heimsótt sem og veitingastaðir á Ströndunum og heitu pottarnir á Drangsnesi.

Hrauneyjar í september eða oktober. Haustlitaferð. Gist eina nótt á hótel Hrauneyjar (snætt þar) og hjólað um lónin sem þar eru. Sultartangalón, Sporöldulón, Hrauneyjalón og Krókslón. Lón og dón.

Ef þið hafið hug á að koma með, vinsamlega sendið póst á [email protected] eða Þórð ([email protected]).

Myndin er af Sultartangavirkjun.

Photos from Fjallahjólaklúbburinn's post 14/08/2026

Síðasta opna hús á Sævarhöfða var á mánudaginn síðastliðna. Þar höfum við haft aðstöðu ásamt Reiðhjólabændum í rúm tvö ár. Hvað nú tekur við veit víst enginn. Stjórnin mun hittast á mánudaginn og funda.

Takk fyrir okkur.

11/07/2026

Heiðurshjónin Lilja og Einar leiddu síðustu ferð um Elliðavatn og buðu okkur svo heim í kaffi og veisluborð eftir hjólatúrinn. Við þökkum þeim kærlega fyrir.

Hér má finna myndir úr ferðum sumarsins

https://photos.app.goo.gl/4X44dvjNDdtczyEFA

Næsta þriðjudag er rómantísk hjólaferð um skógarstíga Breiðholtsins. Smá hjólafimi og í lokin má vera að við reynum að finna krá í Breiðholtinu til að stinga okkur inn á. Brottför frá Landsbankanum Mjódd kl 19:00, öll velkomin. Regnfatnaður nauðsynlegur ef marka má veðurspá, en það er jú nauðsynlegt að prófa regngræjurnar líka, ekki satt?

07/04/2026

Við höfum farið þó nokkuð út fyrir bæjarmörkin á þessu ári. Við höfum hjólað á Selfossi, Akranesi og Akureyri. Í Hveragerði og Reykjanesbæ. Ýmist dagsferðir eða helgarferðir með gistingu. Nokkuð ljóst að við gistum ekki í tjöldum að vetrarlagi, við höfum gist í bústöðum eða ódýrri hótelgistingu.

Ef einhver vill ekki láta birta myndir af sér í ferðalögum og öðrum viðburðum, þá verðum við að sjálfsögðu við því.

Næsta ferð er á dagskrá 22 maí. Gist í bústað í Fjárhústungum (í nágrenni Húsafells) og hjólað um nágrennið, hvert verður að koma betur í ljós eftir ástandi vega og slóða í nágrenninu. Heitur pottur, grill og næs. Við getum ferjað hjólin ef á þarf að halda. Takmarkað pláss, fyrstur kemur fyrstur fær. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Hrannar í email [email protected] Kostnaði verður stillt í hóf og dagleiðir skipulagðar miðað við þáttakendur og eins og áður sagði, veðri og færð.

Hér má sjá myndir úr þeim ferðum sem hafa verið farnar á fyrstu þremur mánuðum ársins.

https://photos.app.goo.gl/wQFo7p5cgn4NTpVP6

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sævarhöfð 31
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 19:00 - 21:00