Víkingur Fótbolti

Víkingur Fótbolti

Share

Knattspyrnufélagið Víkingur er alhliða íþróttafélag stofnað 21. apríl árið 1908. Víkingur er hverfafélag í besta skilningi þess hugtaks.

Margar fjölskyldur nefna barna- og unglingastarf félagsins sem helstu ástæðu þess að þær vilja búa í Víkingshverfunum eða fluttu jafnvel þangað á sínum tíma. Víkingar eru þekktir fyrir að búa vel að æskufólki á heimaslóðum sínum. Íbúar hverfanna á aldrinum þriggja til s*x ára kynnast félaginu fyrst í Íþróttaskóla barnanna og eftir það liggur leiðin í íþróttastarf á vegum deilda Víkings. Deildir Ví

03/09/2026

Kæru Víkingar. Framundan er síðasti heimaleikurinn áður en að Bestu deildinni verður skipt í efri og neðri hluta. Framarar koma í heimsókn og það hefur aldrei verið mikilvægara að troðfylla stúkuna og gera þetta saman. Mætum snemma, syngjum saman. Það er Hamingjan. 🖤❤️

02/09/2026

Takk kærlega Gunnar fyrir að koma í Hamingjuna og takk fyrir allar Hamingjustundirnar saman. Gangi þér vel og við hlökkum til að taka á móti þér þegar þú átt leið hjá Hamingjunni. ❤️🖤

Photos from Víkingur Fótbolti's post 02/09/2026

Kæru Víkingar. Gunnar Vatnhamar hefur verið seldur til danska liðsins Vejle. Gunnar gekk til liðs við Víking árið 2023 og varð Íslands- og Bikarmeistari strax á sínu fyrsta ári. Hann lék samtals 119 leiki fyrir Víking og skoraði í þeim 12 mörk.

Gunnar varð einnig Íslandsmeistari árið 2025 og hefur verið gríðarlega mikilvægur hluti af liðinu allt frá fyrsta leik árið 2023.

Knattspyrnudeild Víkings óskar Gunnari Vatnhamar velgengni og hamingju í Danmörku og um leið þökkum við honum kærlega fyrir sitt framlag til félagsins.

Sjáumst fljótlega í Hamingjunni Gunnar! ❤️🖤

https://vikingur.is/gunnar-vatnhamar-til-vejle/

01/09/2026

Leik lokið hér í Vesturbænum með 1-1 jafntefli. Ármann Ingi Finnbogason skoraði og kom Víking í 1-0 en KR jafnaði með flautumarki á lokasekúndunni.

Takk fyrir stuðninginn úr stúkunni, þið eruð stórkostleg. ❤️🖤

01/09/2026

Þessi gæi heitir ÁRMANN. INGI. FINNBOGASON. TAKK. ❤️🖤

01/09/2026

BÆÆÆÆÆÆÆÆÆNGGGGGGG ÁRMANN INGI FINNBOGASON!!! TAKK KÆRLEGA. ÞETTA VAR BEINT ÚR LANG LANG EFSTU HILLU. 0-1. TAKK 🖤❤️

01/09/2026

Staðan í hálfleik í þessum hörkuleik er 0-0. Bæði lið hafa fengið færi en Stígur Diljan skoraði mark sem var ekki dæmt löglegt vegna rangstöðu. Allur seinni hálfleikurinn eftir. Ekki fara neitt. Syngja meira, meiri Hamingju! TAKK ❤️🖤

01/09/2026

Byrjunarlið okkar Víkinga í kvöld gegn KR ❤️🖤💪

01/09/2026

Byrjunarlið Víkings og KR í kvöld. ❤️🖤🤍
Börn með krabbamein, styrktarfélag

01/09/2026

Kæru Víkingar. Sölvi Geir Ottesen hefur valið byrjunarlið kvöldsins gegn KR. Forskottið er byrjað á N1 Ægisíðu. Löbbum saman þaðan k. 17:00. KOMA SVO! ❤️🖤

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Traðarlandi 1
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:00 - 23:30
Tuesday 08:00 - 23:30
Wednesday 08:00 - 23:30
Thursday 08:00 - 23:30
Friday 08:00 - 22:00
Saturday 08:00 - 16:00
Sunday 10:00 - 13:00