Skautafélag Reykjavíkur Íshokkí

Skautafélag Reykjavíkur Íshokkí

Share

Skautafélag Reykjavíkur,íshokkídeild, hefur aðsetur í Skautahöllinni í Laugardal. Skautafélag Reykjavíkur er eitt elsta íþróttafélag landins.

Heimavöllur þess er Skautahöllin í Laugardal, þar sem æfingaaðstaða, skrifstofa og félagsheimili er til húsa. Íshokkídeild

24/06/2026

Ísland sendi U14 Selects lið drengja á mót í Finnlandi í byrjun júní í sjálfum höfuðstaðnum Helsinki. SR átti fimm flotta fulltrúa í liði Íslands, Pétur, Jónatan, Hilmar, Óðinn Berg og Gunnar Ómar. Þjálfari liðsins var SR-ingurinn Eduard Kascak.
Þetta var næst síðasti Selects hópurinn frá Íslandi þetta vorið en frábært framtak ÍHÍ sem ber að fagna og vonandi verður framhald á. Í lok júlí fer svo U14 stúlknahópur til Frakklands.

29/05/2026

Ísland sendi U14 Selects lið stúlkna á sterkt mót í Svíþjóð nýverið, nánar tiltekið í Solna rétt norðan við höfuðborgina Stokkhólm. Þar keppti liðið við önnur Selects lið frá New York, Finnlandi, Svíþjóð (tvö lið), Noregi og Tékklandi. Liðið endaði í 6. sæti en stóð sig vel í frumraun sinni á erlendri grundu. Unnu tvo leiki í undanriðli og en töpuð svo naumlega leik gegn Tékklandi í leik um 5. sætið. SR átti tvo flotta fulltrúa þær Tinnu Viktorsdóttur og Gabríellu Jóhannsdóttur.

19/05/2026

Viltu fá þitt lógó á nýjar treyjur SR?

Við erum að endurnýja treyjur meistaraflokka fyrir næsta tímabil og nú gefst tækifæri til að tryggja þínu vörumerki pláss á treyjunum um leið og þú styrkir starf félagsins.

Margar góðar staðsetningar eru í boði í öllum verðflokkum.

Fyrir nánari upplýsingar hafðu samband við okkur á
[email protected] eða við Bjarna í síma 844-4590.

11/05/2026

Ísland sendi U13 Selects lið á 12 liða mót í Bordeaux í Frakklandi nýverið þar sem það atti kappi við félagslið frá Frakklandi og Spáni. Liðið endaði í 5. sæti og stóð sig með stakri prýði. SR átti þrjá flotta fulltrúa þá Ámunda Kuylen Drífuson, Viktor Loga Torfason og Nikulás Mána Birgisson en Sölvi Atlason leikmaður SR var þjálfari liðsins.

11/05/2026

Julianna markvörður er að leita að íbúð fyrir næsta tímabil! Endilega hafið samband við hana á [email protected] ef þið eruð með eitthvað sem hentar henni. Fær okkar bestu meðmæli!

Hi, my name is Julianna, and I am a Canadian hockey player currently playing and working in Iceland. I am looking for a furnished apartment to rent for next season, preferably in the 105 Reykjavík area.
I have stable employment with my hockey club and will be staying in Iceland throughout the season. I am looking for a clean and comfortable furnished apartment, ideally for no more than 180.000 ISK per month including utilities.

I am a responsible, respectful, and quiet tenant who takes very good care of the places I stay. My lifestyle is mainly focused on training, work, and hockey. I am also a non-smoker and have no pets.
If you have an available apartment, or know of someone renting in the area, I would really appreciate hearing from you. Thank you very much for your time and help!

10/05/2026

Síðasti dagurinn í dag til að hafa áhrif á hver verður valinn uppáhaldsleikmaður stuðningasmanna SR

----

Sveitastjórnarkosningar nálgast en það er kosið víðar en bara þar.
Nú geta fylgjendur okkar kosið sinn uppáhaldsleikmann úr kvenna og karlaliðum SR þetta tímabil.
Kosningin er opin til sunnudagsins 10. maí og verða niðurstöður hennar kunngjörðar á árshátíð okkar 13. maí nk. ásamt öðrum verðlaunum tímabilsins.

Hér er tengill á kosninguna: https://forms.gle/VTk73LDoDscnEnRm8

Hér er tengill á miðasölu Árshátíðar en það eru allir velkomnir, leikmenn, aðstandendur, sjálfboðaliðar og annað stuðningsfólk: abler.io/shop/srishokki

07/05/2026

Sveitastjórnarkosningar nálgast en það er kosið víðar en bara þar.
Nú geta fylgjendur okkar kosið sinn uppáhaldsleikmann úr kvenna og karlaliðum SR þetta tímabil.
Kosningin er opin til sunnudagsins 10. maí og verða niðurstöður hennar kunngjörðar á árshátíð okkar 13. maí nk. ásamt öðrum verðlaunum tímabilsins.

Hér er tengill á kosninguna: https://forms.gle/VTk73LDoDscnEnRm8

Hér er tengill á miðasölu Árshátíðar en það eru allir velkomnir, leikmenn, aðstandendur, sjálfboðaliðar og annað stuðningsfólk: abler.io/shop/srishokki

Aðalfundur aðalfélags SR 20. maí 05/05/2026

Við bendum á að aðalfundur SR (aðalfélags) verður haldinn miðvikudaginn 20. maí n.k.

Aðalfundur aðalfélags SR 20. maí Boðað er til aðalfundar Skautafélags Reykjavíkur (aðalfélags) miðvikudaginn 20. maí kl. 20.00. Fundurinn er haldinn í sal Skautahallarinnar í Laugardal. Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum félagsins 1. Kosinn fundarstjóri og fundarritari. 2. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar...

04/05/2026

Viltu eignast hluta af sögu SR?

Nú getur þú keypt „game worn“ keppnistreyju án nafns en með númeri á sérstöku sumartilboði - aðeins 10.000 kr. sem gildir eingöngu í maí. Nú er tækifærið að galla sig upp fyrir pallana á næsta tímabili.

Treyjurnar voru notaðar tímabilin 2023/2024-2025/2026.
Karlalið SR varð tvisvar Íslandsmeistari í þeim, einu sinni deildarmeistari og tók þátt í Continental Cup í fyrsta sinn í þessum treyjum. Kvennalið SR spilaði til úrslita í fyrsta skipti og var Íslandsmeistari í fyrsta skiptið í sögunni í þessum treyjum.

Skoðaðu úrvali og verslaðu hér: https://www.abler.io/shop/srishokki/?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTczOTA=

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Múlavegur 1
Reykjavík
104