26/08/2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar.
Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endann og við breytum opnunartíma golfverslana.
Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september virka daga frá kl. 09:00-18:00 og um helgar 08:00-18:00.
Korpa verður 3x 9 holur frá og með 7. september
Skráningum á Korpunni veðrur breytt í 3x 9 holu lykkur frá og með mánudeginum 7. september. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leika 18 holur þurfa þá að skrá sig aftur í rástíma á seinni níu. Við höfum gert ráðstafanir varðandi "token" á hvern kylfing þegar breytingin tekur gildi.
Skrifstofa klúbbsins er opin alla virka daga frá kl. 09:00-16:00 og geta félagsmenn alltaf leitað þangað ef eitthvað er.
Klúbbhús veitingahús lokar frá og með deginum í dag kl. 22:30 og eldhúsinu lokar klukkutíma fyrr eða kl. 21:30.
Golfklúbbur Reykjavíkur
25/08/2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 20.-22. ágúst. Átta lið tóku þátt í mótinu.
Golfklúbbur Reykjavíkur varð Íslandsmeistari eftir 3-2 sigur gegn Nesklúbbnum í spennandi úrslitaleik.
Sveit GR vann tvo af þremur leikjum sínum í B-riðli og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Þar hafði sveitin betur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Keilis, 3.5-1.5.
Í úrslitaleiknum mætti GR sveit NK, sem sigraði GKG í undanúrslitum.
Nesklúbburinn vann fjórmenningsleik úrslitanna þegar Ágúst Dúa Jónsdóttir og Þyrí Valdimarsdóttir lögðu Signýju Mörtu Böðvarsdóttur og Ástu Óskarsdóttur. Írunn Ketilsdóttir svaraði fyrir GR með 6/4 sigri gegn Huldu Bjarnadóttur. Júlíana Guðmundsdóttir tryggði GR annað stig gegn Sigrúnu Eddu Jónsdóttur en sú viðureign fór í bráðabana þar sem Júlína tryggði GR skvísum stigið mikilvæga. Elsa Nielsen vann Steinunni Sæmundsdóttur, 7/6, og jafnaði þar með viðureignina fyrir Nesklúbbinn. Sigríður Kristinsdóttir tryggði GR Íslandsmeistaratitilinn með 5/3 sigri gegn Guðrúnu Valdimarsdóttur. Æsispennandi úrslitaleikur í vægast sagt haustveðri á Leirunni.
Lokastaðan í 1. deild kvenna 50+
Golfklúbbur Reykjavíkur
Nesklúbburinn
Golfklúbburinn Keilir
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
Golfklúbburinn Oddur
Golfklúbbur Mosfellsbæjar
Golfklúbburinn Leynir
Golfklúbbur Vestmannaeyja
*Golfklúbbur Vestmannaeyja fellur í 2. deild.
Smelltu hér fyrir stöðu, leiki og öll úrslit: https://islm-klubba50kvk.vercel.app/
20/08/2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar.
Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endan og við breytum opnunartíma golfverslana.
* Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
* Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september frá kl. 09:00-18:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
19/08/2026
Íslandsmót unglinga 2026 í höggleik - rástímar, staða og úrslit
Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram dagana 20.-22. ágúst. Keppt verður á tveimur völlum, en kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili og kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar.
Keppt verður í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum beggja móta í gegnum hlekki hér að neðan.
Íslandsmót unglinga 15-18 ára
Mót kylfinga á aldrinum 15-18 ára fer fram á Hvaleyrarvelli. Leiknar verða 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi.
Keppt verður í fjórum flokkum:
Stúlknaflokki 15-16 ára
Stúlknaflokki 17-18 ára
Piltaflokki 15-16 ára
Piltaflokki 17-18 ára
Að loknum 36 holum verður keppendum fækkað þannig að 70% þeirra kylfinga sem eru með besta skorið í hverjum flokki halda áfram keppni á lokahringnum.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 15-18 ára: https://www.golfbox.dk/livescoring/tour/ #/competition/5436449/teetimes
Íslandsmót unglinga 14 ára og yngri
Golf 14 kylfingarnir leika á Þorláksvelli. Í flokki 12 ára og yngri verða leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Í flokki 13-14 ára verða leiknar 54 holur, 18 holur á dag.
Keppt verður í fjórum flokkum:
Stúlknaflokki 12 ára og yngri
Piltaflokki 12 ára og yngri
Stúlknaflokki 13-14 ára
Piltaflokki 13-14 ára
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 14 ára og yngri: https://www.golfbox.dk/livescoring/tour/ #/competition/5775929/info
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum átta flokkunum. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í efsta sæti verður leikinn bráðabani um Íslandsmeistaratitilinn.
19/08/2026
Íslandsmót golfklúbba 50+ 2026 - allir rástímar og úrslit
Íslandsmót golfklúbba 2026 í flokki kylfinga 50 ára og eldri fara fram dagana 20.-22. ágúst á s*x stöðum víðs vegar um landið. Keppt verður í fjórum deildum karla og tveimur deildum kvenna.
Mótin eru hluti af Íslandsmótum golfklúbba þar sem kylfingar keppa fyrir hönd síns golfklúbbs í liðakeppni.
Keilir er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna 50 ára og eldri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaleik mótsins í Vestmannaeyjum árið 2025.
Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild karla 50 ára og eldri. GR hafði betur gegn Golfklúbbnum Setbergi, 3-2, í úrslitaleik á Hólmsvelli í Leiru í fyrra.
Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum úr 1. deild kvenna og 1. deild karla - þar sem sveitir Golfklúbbs Reykjavíkur keppa.
1. deild kvenna – 50+, Gs - GOLFKLÚBBUR sUÐURNESJA
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit: https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vQJH5i3CHi7viynm5tVuJoWB-vZ4TJXOhp6UvAo1AY-iY8NskKu3IiYcbOMMInbMdZCGLB2AFk-0bRH/pubhtml
1. deild karla – 50+, GÖ - GOLFKLÚBBUR ÖNDVERÐANESS
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit: https://docs.google.com/spreadsheets/d/e/2PACX-1vS_LWtjpl8Rg28G6xeM9jTkYcMkhICP3OwTjxPz098NiTiG-dzh6EO2ZrMlBpHv60kz14yTfMar87mN/pubhtml
14/08/2026
Gísli Hall formaður Golfklúbbs Reykjavíkur kíkti í smá spjall í hlaðvarpinu Seinni Níu!
Gísli Hall er formaður í fjölmennasta golfklúbbi í heimi⛳🔝
Við fengum til okkar Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi, en hjá klúbbnum eru nú um 3.500 félagsmenn.
Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót.
Við verjum góðum tíma í að ræða þær endurbætur sem standa yfir í Grafarholti. Þar er stefnt að því að endurbyggja allar flatir vallarins í áföngum og í sumar voru teknar í notkun nýjar flatir á fyrstu þremur brautum vallarins. Mjög spennandi verkefni.
Gísli er góður kylfingur og hefur lengi verið með lága forgjöf. Hann spilar mikið og víða um heim. Gísli á það á ferilskránni að hafa s*x sinnum farið holu í höggi, þar af á nokkrum af erfiðari par-3 brautum valla GR.
Draumahollið og kraftröðunin eru að sjálfsögðu á sínum stað í þessum mjög skemmtilega og áhugaverða þætti. Í raun skylduhlustun fyrir félagsmenn í GR.
Þátturinn er aðgengilegur á helstu hlaðvarpsveitum og á Spotify🎧👇
https://open.spotify.com/episode/6eiAV7elgcrT09TXfjjkAW?si=ZXKqwpXUTb2z_-cL_LRQHA
Seinni níu er í boði👇
💊 Unbroken | 👟 ECCO | 🚗 XPENG |
🧼 Lindin bílaþvottastöð| 🏌️ Golfsvítan
🔋 HS Orka | 😎 Nivea | 💸 Arion Banki
🏠 Betri Stofan |🏌️♀️ Golfskálinn | 👷♂️ Giggo
🔨 BYKO | 🍕 Eldofninn | 👣 Gehwol
13/08/2026
Kæru félagar,
einsog líklega allir hafa tekið eftir, þá höfum við verið að hvíla fyrstu flötina okkar í Grafarholti undanfarnar vikur. Hún hefur fengið hvíld á virkum dögum og svo hefur verið spilað á henni um helgar.
Þetta hefur borið árangur og það er allt annað að sjá flötina í dag. Við teljum samt rétt að gefa henni ögn meiri tíma og við metum aðstæður reglulega.
Við þökkum skilninginn meðan á þessu stendur.
Kveðja,
Vallarsvið
12/08/2026
Íslandsmót golfklúbba hefst á morrgun og verður leikið dagana 13. - 15. ágúst.
Karlalið GR keppir á Strandavelli hjá GHR og kvennalið GR keppir á Hlíðarvelli hjá GM ⛳
Við hvetjum öll til að mæta á vellina, hvetja sveitir GR og fylgjast með fremstu kylfingum landsins.
Hægt er að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum hér:
Kvennasveit GR: https://islklubba-kvk.vercel.app/
Karlasveit GR: https://islklubba-kk.vercel.app/