19/08/2026
Ef einhver hefur haft einhverjar efasemdir um að Skotfélag Reykjavíkur hafi viðurkenningar frá lögreglu til að halda úti skotsvæðum þess á Álfsnesi og í Egilshöll, og eins að félagið geti tekið á móti og þjálfað ungmenni þá látum við hér flakka skjöl til staðfestingar á því. Nú bíðum við bara eftir lokastarfsleyfinu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar til að geta farið að þjóna almenningi á svæðinu á Álfsnesi. Starfsemin í Egilhöll hefst svo uppúr miðjum september en það verður auglýst innan skamms.
17/08/2026
Drög að endurnýjuðu starfsleyfi vegna starfsemi félagsins á Álfsnesi hafa verið birt á vef Reykjavíkurborgar og má skoða þau hérna.Birtingartíminn er til 10.september og má á þeim tíma gera athugasemdir við drögin. Breyting á lögum um starfsleyfi virðast ekki hafa gefið Heilbrigðiseftirliti möguleika á að stytta þennan auglýsingatíma en í nýju lögunum er þeim gert mögulegt að stytta tímann í eina viku ef um endurnýjun án mikilla breytinga á skilyrðum er að ræða. En hvað um það við sjáum þó fram á að geta hafið einhverja starfsemi seinni partinn í september. Tekjutap félagsins er orðið gríðarlegt vegna þessarar lokunar og hafa verið nefndar tölu sem nema milljónatugum. Við ættum þó að geta tekið að okkur verklega þátt skotvopnaprófanna í lok september og tekið við þeim höfuðborgarbúum sem hefðu annars þurft að sækja þau námskeið til annara skotfélaga með tilheyrandi kostnaði.
reykjavik.is
14/07/2026
ATH!!!!!
Breytt staðsetning. En vegna óskiljanlegs seinagangs hjá Reykjavíkurborg neiðumst við til að færa staðsetningu Ladies Grand Prix yfir til vina okkar í Hafnafirði. Það er með ólíkindum hvað gengur erfilega að fá nýtt starfsleyfi hja okkur á Álfsnesi þó að öllu hafi verið skilað inn fyrir lifandis löngu.
En mótið verður semsagt á velli Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar dagana 15-18 júlí. Ég vil hvetja sem flesta að fá sér bíltúr og koma og kíkja á okkur .
02/06/2026
Félagið okkar á 159 ára afmæli í dag, stofnað 2.júní árið 1867
Um Skotfélagið
sr.is - Skotfélag Reykjavíkur - Elsta íþróttafélag landsins.
27/05/2026
Minnum félagsmenn á sumarþjálfaranámið í þjálfaramenntun ÍSÍ en hægt er að taka sérgreinahluta hjá ISSF - International Shooting Sport Federation https://www.issf-sports.org/academy
Félagið styrkir þá sem mennta sig til þjálfunar hjá félaginu.
🎓 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun 1. og 2. stigs hefst mánudaginn 8. júní næstkomandi.
Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.
Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
📝 Skráning:
Skráning fer fram á Abler: http://www.abler.io/shop/isi
Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka.
Nýir notendur í Abler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi.“ Upplýsingar um verð er að finna þarna við skráningu í Abler.
ℹ️ Allar nánari upplýsingar veitir:
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviðið ÍSÍ
📞 Sími; 514-4000 / 863-1399
✉️ Netfang: [email protected]
23/05/2026
DagnýH. Hinriksdóttir úr SR er að keppa í S***t á CPH Open í Kaupmannahöfn. Jakob Þ. Leifsson úr SFS er einnig að keppa.
https://www.multipullsoft.it/live/showMatch?matchs=X2NYT10506.6.109&live=True #
MULTI-PULL | The System for Shooting Ground Automation
Copyright (c) ElettronicaProgetti.com. All rights reserved. Design by Elettronica Progetti. Elettronica Progetti s.r.l. - Via Oros snc, 00071 Pomezia(RM) Italy, P.IVA 16932081009
19/05/2026
Minnum á aðalfund félagsins í kvöld kl.18 í Egilshöllinni !!
10/05/2026
Landsmót í Compak Sporting fór fram um helgina á svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Skotnar voru 200 dúfur 125 í gær laugardag og 75 í dag, Skotfélag Reykjavíkur átti 5 keppendur á mótinu. Jóhann Ævarsson frá Skotfélagi Akureyrar sigraði á 180 dúfum, Jón Valgeirsson frá Skotfélagi Reykjavikur og Theodór Þórólfsson frá Skotfélagi Akureyrar voru jafnir á 179 dúfum en Jón hafði betur í shoot off og tók annað sætið og Theodór endaði 3. Fjögur lið voru skráð til keppni og hafnaði sveit Skotfélags Akureyrar í 1 sæti á 527, en hana skipaði Jóhann Ævarsson, Theodór Þórólfsson og Jónmundur Guðmarsson. Sveit Skotfélags Reykjavíkur var önnur á 506 dúfum en hana skipaði Jón Valgeirsson, Þorri Helgason og Dagný H.Hinriksdóttir. Í þriðja sæti var svo B sveit Skotíþróttafélags Hafnafjarða á 480 dúfum, en hana skipaði Ásbjörn Sírnir Arnarsson, Timo Salsola og Bæring Ágústson. Í unglingaflokki sigraði Hergill Henning Kristinsson úr Skotíþróttafélagi Hafnafjarðar á 151 dúfu.
Frábær helgi í góðum félagsskap og þökkum við Hafnfirðingum vel fyrir