SVFR

SVFR

Share

Stangaveiðifélag Reykjavíkur / Reykjavik Angling Club

28/08/2026

128 laxar eru nú komnir á land í Gljúfurá og þar með er veiðin komin yfir lokatölur síðasta árs, sem voru 117 laxar! 🙌

Miðað við góða veiði undanfarið eru spennandi tímar framundan, en við eigum eitt óselt holl 2.–4. september.

🎣 3 stangir
🏡 Frábært veiðihús með heitum potti
🐟 Kvóti: 2 laxar á stöng á vakt
🪱 Fluga og maðkur leyfð

Skoða í vefsölu 👉 https://tinyurl.com/yefpkuhb

Photos from SVFR's post 26/08/2026

Veiðin er búin að vera mjög góð í Sandá í Þistilfirði í ágúst og er enn að veiðast nýgenginn lax, um alla á! 🎣

Eigum tvo spennandi laus holl í september sem gætu boðið upp á hörku veiði.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd👇

Photos from SVFR's post 25/08/2026

Sandá í Þjórsárdal iðar af lífi 🔥

Eftir vætusama daga undanfarið er óhætt að segja að Sandá sé hrokkin í gang! Frábært vatn og fiskur á víð og dreif í blússandi tökustuði.

Atli Már Óskarsson var við veiðar í gær og hafði vart undan við að setja í og landa, en stærsti laxinn mældist 88 cm! 👊

Nú er að hrökkva eða stökkva – lausar stangir bíða þín í vefsölunni!👉 https://bit.ly/sanda2 🎣

SVFR 21/08/2026

Spennandi laus holl í ágúst, og laxinn er mættur í Sandá í Þjórsárdal!

🎣 Laxá í Aðaldal - Miðsvæðið. 24.-27. ágúst.
🎣 Gufudalsá 27. - 30. ágúst.
🎣 Vatnsdalsá í Vatnsfirði 24.-26 og 26. - 28 ágúst.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd

SVFR SVFR er félagsskapur veiðimanna sem sameinar áhugafólk um stangveiði af öllum gerðum. Upplifðu náttúruna og spennuna við veiðar með okkur!

Photos from SVFR's post 20/08/2026

130 ungir veiðimenn tóku þátt í Ungmennadögum Elliðaánna í sumar 🎣

Frábærir dagar, flottir taktar, nokkrir Maríulaxar og fullt af góðum minningum! ☀️

Takk kærlega fyrir komuna og sérstakar þakkir til allra sjálfboðaliðanna sem gerðu dagana mögulega. ❤️

Framtíð stangveiðinnar er svo sannarlega björt – sjáumst að ári! 🙌

Frétt í athugasemd 👇

18/08/2026

Bjarki Bóasson veiddi þennan glæsilega 83 cm hæng í veiðistaðnum Tunnustreng í Langà. Àin er pökkuð laxi og fer hver að verða seinastur að næla sér í veiðileyfi, en einungis örfáar lausar stangir eru eftir í ágúst og september. 😀🎣

https://svfr.is/vefsala/?brand=181 👈

Frábær holl laus á næstu dögum! - SVFR 14/08/2026

Lausar stangir í laxveiði!

Frábær holl laus á næstu dögum! - SVFR Eitt holl laust í ágúst, 23-26.8 Ágætis veiði í Þistilfirðinum núna, frábær laxveiðiá og þetta er nú heldur betur tækifæri til að kynnast henni. Hafið samband við skrifstofu SVFR ef áhugi er á þessu holli. 3 holl eru laus í ágúst,slatti af laxi er genginn í ánna og tölu...

12/08/2026

Góðan daginn.
Vegna forfalla eru 2 lausar stangir núna 12-13.8 í Langá, mikið af fiski í ánni og frábært tækifæri til að skella sér í sólmyrkvaveiði!

Upplýsingar hjá SVFR í síma 568-6050 eða [email protected]

Spennandi veiðileyfi í ágúst og september! - SVFR 11/08/2026

Spennandi dagar í vefsölu!

Spennandi veiðileyfi í ágúst og september! - SVFR Nú fer að síga á seinni hluta veiðitímabilsins, sem virðist ætla að verða eitt hið besta í mörg ár, að minnsta kosti á Vestur- og Suðurlandi. Nú virðist sá silfraði vera að mæta í Þjórsárdalinn, fyrsti laxinn veiddist á sunnudaginn og á laugardaginn veiddist 60 cm sjóbi...

Want your business to be the top-listed Gym/sports Facility in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Suðurlandsbraut 54
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 12:00 - 16:00