01/09/2026
Ungbarnamorgnar hefjast aftur á þriðjudögum og fimmtudögum💙 tilvalið í fæðingarorlofinu að koma og kíkja í fimleikasalinn með krílin! Kostar 500kr skiptið og skráning er á abler.io/shop/armann/fimleikar hlökkum til að sjá ykkur á ungbarnamorgnum í vetur💙
12/08/2026
Skráning á biðlista fyrir haustönn 2026 er á abler.io
Hægt er að velja um biðlista fyrir áhaldafimleika, hópfimleika og parkour🤸🏼♂️
Hlökkum til fimleikahaustsins í Ármanni🍂💙
10/08/2026
Nonni okkar frábær!
Hvernig er hægt að vera Íslandsmeistari í fimleikum, bekkpressu og í sirkus? - RÚV.is
Jón Sigurður Gunnarsson er áttfaldur Íslandsmeistari í fimleikum og hefur nú eignað sér Íslandsmet í bekkpressu. Þess á milli sýnir hann í sirkús. Hvernig virkar þetta allt saman?
06/08/2026
Skráning í krílafimleika hefst á morgun kl 12:00 á abler.io!
Takmarkað pláss í hvern tíma og því hvetjum við ykkur að hafa hraðar hendur👏🏼
Tímarnir eru eftirfarandi:
Laugardaga
9:00-9:50 fyrir börn fædd 2024
10:00-10:50 fyrir börn fædd 2023
11:00-11:50 fyrir börn fædd 2022
12:00-12:50 fyrir börn fædd 2021
Sunnudaga
11:10-12:00 fyrir börn fædd 2023-2022
12:10-13:00 fyrir börn fædd 2022-2021
Hlökkum til að sjá ykkur í Ármanni í vetur💙
24/07/2026
Fimleikafólkið okkar heldur betur að standa sig vel á Norðurlandamóti sem fer fram í Álandseyjum um helgina!
Maddý og Ronja skiluðu frábærum árangri í gær og lenti liðið í 4 sæti!
Maddý keppir í úrslitum á gólfi á laugardaginn 💫
Þorsteinn keppir í dag og er hægt að fylgjast með úrslitum á live.sporteventsystem.se
Áfram Ármann💙
📸 Fimleikasamband Íslands
22/06/2026
Forskráning á haustönn 2026 er hafin á abler.io!
Mikilvægt er að forskrá til að tryggja pláss næsta vetur!🤸♀️ iðkendur sem eru nú þegar í keppnishópum (c hópar og upp) þurfa ekki að forskrá sig heldur verða sjálfkrafa færð yfir á haustönn👏🏼💙