08/07/2026
Líf og fjör hjá TBR – leikmenn á ferð og flugi
Það er sannarlega mikið um að vera hjá TBR þessa dagana. Auk sumaræfinga keppnishópanna og sumarnámskeiða fyrir unga og efnilega iðkendur eru leikmenn félagsins víðs vegar um Evrópu, bæði í æfingabúðum og á alþjóðlegum mótum.
Yonex Italian Open 2026 – Bolzano, Ítalíu (24.–28. júní)
Lilja Bu og Einar Óli okkar úr TBR tóku þátt í Yonex Italian Open 2026 í Bolzano á Ítalíu. Mótið er hluti af alþjóðlegri mótaröð Badminton Europe og veitti okkar leikmönnum mikilvæga reynslu gegn sterkum andstæðingum úr Evrópu.
Badmintonskóli Evrópu – Vejen, Danmörku (5.–12. júlí)
Fjórir íslenskir iðkendur héldu á dögunum til Vejen í Danmörku þar sem fram fer hinn árlegi Badmintonskóli Evrópu. Lilja Dórótea Theodórsdóttir úr TBR tekur þátt, en í skólanum koma saman ungir badmintonleikmenn frá flestum Evrópuþjóðum til að æfa undir leiðsögn öflugra þjálfara, kynnast iðkendum frá öðrum löndum og öðlast dýrmæta reynslu bæði innan vallar og utan.
FZ Forza Future Series – Pessac, Frakklandi (2.–5. júlí)
Eiríkur Tumi og Jónas Orri kepptu á FZ Forza Future Series í Pessac í Frakklandi. Slík mót eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu leikmanna og gefur þeim sem sækja slík mót tækifæri til að takast á við sterka alþjóðlega keppendur.
All England Junior Championships – 17.–19. júlí
Næsta verkefni hjá TBR verður All England Junior Championships þar sem Eggert, Óðinn og Iðunn munu keppa fyrir Íslands hönd.
Við óskum öllum leikmönnum okkar góðs gengis í verkefnum sumarsins og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi framgangi þeirra á alþjóðlegum vettvangi.
25/06/2026
Dagana 22.–29. júní tekur hópur íslenskra badmintoniðkenda þátt í North Atlantic Camp (NAC) í Nuuk í Grænlandi.
NAC eru árlegar æfingabúðir þar sem badmintoniðkendur frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum koma saman til að æfa, læra hvert af öðru og eiga frábærar samverustundir innan sem utan vallar. Búðirnar hafa skapað sterkt samfélag ungra iðkenda á Norðurslóðum og eru mikilvægur vettvangur fyrir bæði íþróttalega og félagslega þróun.
Íslenski hópurinn hélt af stað frá Keflavík fullur tilhlökkunar, en þau munu hitta fyrir í Grænlandi Sune Gavnholt, landsliðsþjálfari Íslands.
Sérstaklega er gaman að sjá sterka þátttöku frá TBR, en frá félaginu taka þátt Emil Víkingur Friðriksson, Felix Krummi Lárusson, Grímur Eliasen, Jón Markús Torfason, Perla Kim Arnardóttir og Þórdís Edda Pálmadóttir.
Við óskum öllum þátttakendum góðs gengis í North Atlantic Camp og hlökkum til að fylgjast með ævintýrinu í Nuuk!
19/06/2026
Nokkrir leikmenn úr yngri keppnishópi TBR nýttu blíðuna í vikunni og æfðu þrekið úti í TBR garðinum. Það er mikilvægt að breyta stundum til í æfingaáætluninni og njóta útiverunnar.
Nú er sumaræfingatímabil hjá yngri keppnishópnum og þá er lögð meiri áhersla á uppbyggingu fyrir næsta tímabil með þreki, styrktaræfingum og góðri grunnvinnu.
Frábærir krakkar sem við í TBR erum afar stolt af !
17/06/2026
Til hamingju með daginn Ísland!
Við minnum á að TBR er lokað í dag en við sjáumst hress og kát á morgun 🥰🏸💙
15/06/2026
Munum að það er gott fyrir gróðurinn að fá smá úða og rigningu!
Þá er um að gera að skella sér í badminton :D
Bókið á noona.is/tbr
01/06/2026
Kæru félagar. Það verður opið í TBR næstu helgi, 6. og 7. júní, frá kl.9-14. Síðan verður lokað um helgar í sumar.
Það er mikið laust hjá okkur yfir daginn næstu tvær vikur. Sumarskóli TBR byrjar síðan 15. júní og þá er erfitt að fá tíma á daginn.
Endilega skoðið lausa velli næstu tvær vikur og skellið ykkur í badminton, við tökum vel á móti ykkur.
Bókanir fara fram á Noona: https://noona.is/tbr
28/05/2026
Sjálfstraust og framkoma hjá keppnishópum TBR.
Í kvöld fór fram fræðsla hjá keppnishópum TBR þar sem yngri og eldri hóparnir komu saman.
Anna Steinsen hjá KVAN hélt fyrirlestur fyrir hópinn en Anna er þekkt fyrir öfluga og skemmtilega fyrirlestra fyrir ungt fólk og íþróttafélög.
Við í TBR lítum á svona fræðslu sem mikilvægan hluta af því að vera í keppnishópi félagsins. Farið var yfir sjálfstraust, framkomu, samskipti og hugarfar bæði í íþróttum og daglegu lífi. Einnig var rætt um hvernig hægt er að hækka eigið orkustig, keyra sig í gang með ákveðinni rútínu og mikilvægi þess hvernig við tölum við okkur sjálf.
Einnig var farið yfir mismunandi persónuleika fólks, stemmningu innan hóps og mikilvægi þess að hrósa og styðja hvert annað. Farið var í skemmtilegan leik þar sem mikið var hlegið og góð stemning myndaðist hjá hópnum.
Góð mæting var hjá leikmönnum TBR og þetta var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt kvöld.
Við þökkum Önnu kærlega fyrir komuna og frábæran fyrirlestur.
28/05/2026
BADÍS ÆFINGABÚÐIR 2026
BH, ÍA og TBR standa fyrir spennandi badmintonæfingabúðum á Akranesi fyrir keppnisiðkendur.
✔️ Hágæða badmintonþjálfun
✔️ Fjölbreyttar æfingar og hreyfing
✔️ Keppnismiðað umhverfi
✔️ Félagslegir viðburðir og skemmtileg stemning
✔️ Sund og kvölddagskrá
✔️ Gisting og alvöru æfingabúðaupplifun
✔️ Styrkjum félagstengsl og kynnumst iðkendum úr öðrum félögum
Búðirnar eru ætlaðar iðkendum sem æfa og keppa reglulega í badminton.
Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu, Akranesi.
17.–19. ágúst
Fyrir iðkendur fædda 2015–2012
Skráning fer fram hér fyrir 17.-19. ágúst:
https://www.abler.io/shop/bh/badminton/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg3MTQ=?
11.–13. september
Fyrir iðkendur fædda 2011 og eldri
Skráning fer fram hér fyrir 11.-13. september:
https://www.abler.io/shop/bh/badminton/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg3MzM=?
Takmarkaður fjöldi er í æfingabúðirnar. Tryggðu þitt pláss.