31/08/2026
Maria Beder til liðs við Val 🦅
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að María Beder hefur gengið til liðs við Val.
Maria , sem er markvörður, kemur frá Færeyjum þar sem hún spilaði síðasta vetur með H71. Hún tók þátt í heimsmeistaramótinu sem fram fór í Kína í sumar með 2006 landsliði færeyja.
”Ég er virkilega ánægður að María Beder sé komin til okkar í Val. Hún er efnilegur markmaður sem stóð sig vel á síðasta tímabili í færeyjum og einnig með 2006 landsliði færeyja. Hún mun mynda sterkt markvarðapar með Hafdísi í vetur og verður gaman að fylgjast með þróuninni hjá henni í vetur. ” sagði Anton Rúnarsson, þjálfari liðsins.
Velkomin í Val, María Beder!
Áfram Valur, áfram hærra!
28/08/2026
Karlalið Vals sigurvegarar Meistarakeppni HSÍ🏆
Frábær sigur gegn Haukum!
28/08/2026
Svekkjandi tap hjá stelpunum í dag, áfram gakk‼️
28/08/2026
Meistaratvennan er í dag!
⏰18:00 og 20:15
📍N1 höllin
🎟️Miðasala á stubb
Áfram Valur - áfram hærra🦅
28/08/2026
Viltu marka spor í sögu Vals?
Komdu í Valssporið, kortið gildir á alla deildarleiki karla og kvennaliðs Vals í Olís og Grill deildinni. Allar upplýsingar eru á Stubb
Áskrift, mánaðarlegar greiðslur
https://stubb.is/valur/passes/roqldy
Árskort, Eingreiðsla
https://stubb.is/valur/passes/LykaAb
28/08/2026
Þjálfarateymi 5.fl kk 2026-2027 🦅💪
Róbert Aron Hostert verður aðalþjálfari 5.flokks karla og honum til aðstoðar verða Dagur Leó Fannarsson og Óskar Bjarni Óskarsson.
5.kk æfingatímar
Þriðjudögum kl 16:00-17:10
Fimmtudögum kl 16:20-17:30
Föstudögum kl 15:00-16:15
Sunnudögum kl 11:30-12:30
Allir velkomnir á æfingar og hægt að hafa samband beint við Róbert Aron þjálfara flokksins varðandi æfingar.
[email protected]
Áfram Hærra 🦅
25/08/2026
Kynningarkvöld handknattleiksdeildar Vals!
Handknattleiksdeild Vals verður með leikmannakynningar fyrir komandi tímabil.
Kynningarkvöldið verður haldið fimmtudaginn 27. ágúst kl 19:15 þar sem þjálfarar fara yfir leikmannahópa sína, sérfræðingar fyrir yfir Olís-deildirnar og sala á árskortum fyrir tímabilið fer í gang. Boðið verður upp á léttar veitingar og mikla skemmtun.
Hlökkum til að sjá þig!
Áfram Valur - áfram hærra
25/08/2026
Yngri flokka starfið í handboltanum er komið á fullt og spennandi tímabil framundan hjá öllum flokkum.
Þjálfarar munu taka vel á móti öllum iðkendum og hægt að skoða hér inná heimasíðu félagsins hvenær allir flokkarnir eru að æfa.
https://www.valur.is/born-unglingar/handbolti.aspx
Ef það eru einhverjar spurningar sem vakna, ekki hika við að hafa samband.
[email protected]
Við hlökkum til samstarfsins á tímabilinu💪
Áfram Hærra! 🦅🦅🦅
24/08/2026
Meistarakeppni HSÍ á föstudag!
Það er komið að fyrstu leikjum vetrarins - hvar verður þú á föstudag?
Meistarakeppni HSÍ verður haldin í N1 höllinni næstkomandi föstudag, 28. ágúst þar sem krýndir verða Meistarar meistaranna!
Stelpurnar okkar, þrefaldir meistarar síðasta árs, taka á móti Haukakonum klukkan 18:00 og svo í framhaldinu mæta strákarnir okkar, tvöfaldir meistarar síðasta árs, á móti Haukamönnum kl.20:15 sama kvöld.
Mætum og styðjum okkar lið áfram til sigurs og byrjum þennan handboltavetur með stæl!
Áfram Valur – áfram hærra