31/08/2026
Nú er skráning komin á fullt fyrir Utandeildina 2026 til 2027 🎳
Er ekki um að gera að hóa saman liðinu aftur og halda fjörinu áfram? 💪
Svo má auðvitað endilega deila þessu áfram og hvetja aðra til að taka þátt í fjörinu með þér og okkur 📋
05/02/2025
ATH! Umferð 4 í riðli 1 sem fara fram átti í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs. Nýr leikdagur verður tilkynntur síðar.
31/10/2024
Í seinustu viku spilaði riðill 4 sína fyrstu umferð og enduðu Sjóvá efstar stiga. Engin utandeild var í gærkvöldi en riðill 1 spilar umferð 2 næsta miðvikudag, 6. nóvember kl. 19:30. Hægt er að sjá heildarstöðu í hverjum riðli fyrir sig á kli.is/utandeild 🎳
21/10/2024
Liðin Iceport ehf., KF-Döff og RB deila fyrsta sætinu í riðli 3 eftir fyrstu umferðina sem fór fram síðastliðið miðvikudagskvöld. Hægt er að sjá stöðu og leikjaplan í hverjum riðli á kli.is/utandeild
Sjáumst næsta miðvikudag, 23. október þegar riðill 4 spilar sína fyrstu umferð 😊
16/10/2024
Í seinustu viku spilaði riðill 2 sína fyrstu umferð og enduðu Orkuboltarnir efstir stiga. Eitthvað vesen hefur verið á skorkerfinu hjá okkur en heildarstaða og skor riðilsins mun koma inn á kli.is/utandeild við allra fyrsta tækifæri ☺️
Sjáumst í kvöld fyrir riðil 3!
03/10/2024
Utandeildin er hafin þetta tímabilið en í gærkvöldi spilaði riðill 1 fyrstu umferðina. Eftir margar æsispennandi viðureignir eru Geirfuglar efstir stiga en hægt er að sjá stöðu og leikjaplan í hverjum riðli á kli.is/utandeild
26/10/2023
Staðan eftir 1.Umferð í riðli 4 er komin inn á vefinn. www.kli.is/utandeild
Eftir fyrstu 3 leikina eru RB og 10 í Hættu á toppnum með 20! stig.
Þökkum fyrir skemmtilegt kvöld og minnum í leiðinni á umferð 2 í riðli eitt sem er spilað 1.Nov.
Sjáumst þá :)
15/10/2023
Kassaleigan, Bowling Stones og Bleyjan deila fyrsta sætinu í riðli 2 eftir fyrstu umferð. Hægt er að sjá stöðu og leikjaplan í hverjum riðli hérna: https://www.kli.is/utandeild/
Sjáumst á miðvikudaginn fyrir riðil 3 😄
11/10/2023
Í seinustu viku fór fram fyrsta umferð í riðli 1 og efst stiga er liðið Lyngið. Hægt er að skoða stöðu og leikjaplan í hverjum riðli hérna: https://www.kli.is/utandeild/
Takk fyrir frábært kvöld og sjáumst kl 19:30 í kvöld fyrir riðil 2 👏