27/08/2026
BL+ Lip Renewal Mask 👄 Ný vara frá Blue Lagoon Skin Science
Áhrifarík varameðferð sem vinnur gegn fínum línum á varasvæði. Mýkir, sléttir og djúpnærir varirnar 💋
Einstök formúla sem nánast bráðnar inn í varirnar, dregur úr þurrki og styður við kollagenmyndun. Sérhannað áhald fylgir með sem örvar blóðflæði og bætir árangur meðferðar ✨
Klínískt prófuð · án ilmefna · vegan 🤍
Nú fáanleg á Hreyfing.is og hjá okkur í móttöku / spa.
26/08/2026
Sara Snædís, nýr forstöðumaður þjálfunar hjá Hreyfingu, í skemmtilegu viðtali hjá mbl.is þar sem hún fer yfir sögu sína frá því hún byrjaði sem hóptímaþjálfari í Hreyfingu 2012 þar til hún lokar nú hringnum þegar hún stígur inn í nýtt og spennandi hlutverk 🌟
„Það eru ákveðin kaflaskil hjá mér um þessar mundir. Eftir sjö ár erlendis er ég flutt aftur heim til Íslands með fjölskyldunni, nýbúin að eignast mitt þriðja barn og tekin við nýju starfi sem forstöðumaður þjálfunar hjá Hreyfingu."
Sara hefur komið víða við og meðal annars var hún yfirþjálfari hjá Becore í Stokkhólmi ásamt því að stofna Withsara sem var mikill skóli.
"Árin í Stokkhólmi voru mjög mikilvæg fyrir mig. Við vorum með tvö lítil börn, bjuggum í miðbæ Stokkhólms og vorum langt frá fjölskyldunni og því baklandi sem maður hefur heima. Á sama tíma tók Withsara hratt við sér og ég var að byggja upp fyrirtæki frá grunni. Það kallaði á mikla vinnu og ótal skref út fyrir þægindarammann. Til dæmis að þurfa að selja hugmyndina mína og standa með henni yfir í að ráða fólk, leiða teymi og vera andlit vörumerkis,“ segir hún.
Við mælum með þessari skemmtilegu lesningu og hlökkum til komandi tímum með Söru 💛
„Það eru ákveðin kaflaskil hjá mér um þessar mundir“
Sara Snædís nýr forstöðumaður hjá Hreyfingu
24/08/2026
Haustkjör á nuddmeðferðum🍂💆
Tökum vel á móti haustinu með sinni rútínu og festu.
Við bjóðum upp á 20% afslátt af öllum nuddmeðferðum á virkum dögum út september.
Mikilvæg áminning: slökun og gott nudd er partur af endurheimt 💆🤍
Bókaðu þinn tíma í nudd á Hreyfing.is
20/08/2026
Sara Snædís ráðin forstöðumaður þjálfunar hjá Hreyfingu ⭐
Það er okkur sönn ánægja að kynna Söru Snædísi Ólafsdóttur sem forstöðumann þjálfunar hjá Hreyfingu.
Síðustu ár hefur Sara byggt upp WITHSARA , öflugan heilsu- og æfingavettvang sem hefur vaxið í sterkt samfélag og hjálpað þúsundum einstaklinga að tileinka sér hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl. Að baki þeirri vegferð liggur margra ára reynsla úr heilsu- og þjálfunargeiranum, bæði sem þjálfari og stjórnandi hér heima og erlendis. Withsara heldur áfram að lifa góðu lífi og þróast samhliða hlutverki hennar hjá Hreyfingu.
Sara mun leiða þjálfunarframboð Hreyfingar og áframhaldandi þróun þess, auk þess að halda utan um öflugan hóp framúrskarandi þjálfarahóps. Sara er ekki ókunn Hreyfingu en hún var hluti af þjálfarateymi okkar fyrir um tíu árum og snýr nú aftur með enn meiri reynslu, þekkingu og kraft í farteskinu.
Sara hefur nú þegar hafið störf og við erum einstaklega spennt fyrir þessum nýja kafla.
Vertu hjartanlega velkomin aftur, Sara Snædís! 💛
14/08/2026
Góða helgi öllsömul! ⭐️ Hér eru nokkur skemmtileg augnablik úr Hreyfingu, fest á filmu síðustu vikurnar☝️
11/08/2026
Gleðilegan almyrkva á morgun! 🕶️ 🌑
Á meðan almyrkvanum og deildarmyrkvanum stendur falla allir tímar í hóptímatöflu niður. Stöðin og tækjasalurinn verða þó opin með hefðbundnum hætti.
Við gerum þessa litlu breytingu í þeirri von að sem flest starfsfólk og meðlimir fái tækifæri til að stíga út, horfa til himins og upplifa þetta einstaka og sjaldgæfa fyrirbæri. ✨
Njótið augnabliksins og munið eftir almyrkvagleraugunum! 🕶️🖤
05/08/2026
Ágúst námskeið hefjast í næstu viku!🌟
Sjáðu úrval námskeiða hér 👉
Skráning fer fram á Hreyfing.is/namskeid/
Power Pilates með Helgu Lind 🌟
Hvernig hljómar styrkur, stjórn og flæði í infra heitum sal?
Tvö námskeið í boði sem hefjast 10. og 11. Ágúst:
✨Mán & Mið kl 17:30
✨Þrið & Fimmt kl 06:45
Kraftur með Hermanni og Toddu 💪
Hvernig hljómar aukinn styrkur & betri árangur í lyftingum? 🏋️
Tvö námskeið í boði sem hefjast 10. og 11. Ágúst:
💥Mán & Mið kl 16:30
💥Þrið & Fimmt kl 07:15
Styrkur með Stínu 🤜🤛
Vilt þú aukinn styrk, meiri kraft og betri orku í daglegu lífi? 🤩
Námskeið eru kennd annarsvegar 2x í viku eða 3x í viku og hefjast 10. Ágúst:
💥Mán & fimmt kl 06:10 (BIÐLISTI)
💥Mán & mið kl 07:15 (BIÐLISTI)
💥Mán, þrið & fimmt kl 06:10
💥Mán, mið & fimmt kl 07:15
Skillrun 50+ með Herdísi og Helgu🏃
Hvernig hljómar aukinn styrkur og þol unnið í stuttum fjölbreyttum lotum? 👀
Tvö námskeið í boði sem hefjast 11. Ágúst:
✨Þrið & fimmt kl 16:30 og Laug kl 09:10 (BIÐLISTI)
✨Þrið & fimmt kl 17:30 og Laug kl 09:10
Infra Styrkur & Trigger point með Guðný Jónu🧘
Hvernig hljómar sterkari líkami, aukin hreyfigeta og minni stífleiki? 🔥
Námskeið hefst 10. Ágúst og er kennt:
✨Mán & Mið kl 18:30
Lyftingar & styrktarþjálfun með Þórdísi Toddu 🌟
Viltu styrkja þig á öruggan og árangursríkan hátt í litlum hóp undir persónulegri leiðsögn? 💪
Námskeið hefst 10. Ágúst og er kennt:
✨Mán & Mið kl 07:20
Infra Method með Nadiu 🙌
Hvernig hljómar þjálfun þar sem hitinn vinnur með þér og dýpkar árangurinn, styrkir & liðkar þig?
Námskeið hefst 10. Ágúst og er kennt:
✨Mán & Mið kl 16:30
Skillrun Bootcamp með Edie 🏃🎶
Viltu upplifa skemmtilega og árangursríka þjálfun sem sameinar hraðar, kraftmiklar hlaupaæfingar við úthugsaðar styrktaræfingar? 💥
Tvö námskeið í boði sem hefjast 10. Ágúst:
💥Mán, Mið & Fös kl 07:00 (BIÐLISTI)
💥Mán, Mið & Fös kl 17:20
02/08/2026
Ágúst - Drykkur mánaðarins í ágúst 👌✨
Ljúffeng blanda af Jarðaberjum, Banana, Vanilluskyri og Vanillupróteini 🍓🍌
Sérstaklega góður sem hollt og saðsamt millimál eða eftir æfingu 😋
Kíktu við á Heilsubarnum og prófaðu Ágúst í ágúst!
30/07/2026
Við erum ótrúlega spennt að bjóða Halldóru Arnardóttur velkomna í Hreyfingarteymið! ✨
Halldóra hefur kennt hóptíma í 13 ár og er sannkallaður reynslubolti sem smitar út frá sér gleði, krafti og góðri orku í hverjum einasta tíma 💪
Halldóra verður með fasta sunnudagstíma í töflu frá 9. ágúst þar sem hún býður annars vegar upp á heita og kraftmikla styrktarþjálfun 🔥 og hins vegar infra-hlýjan tíma með teygjum, rúllu og bandvefslosun 🧘
Sjáumst á dýnunni!
27/07/2026
Leyfum okkur að hægja á, slaka og endurnærast vel í sumar💛
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga í sumar bjóðum við upp á 2 fyrir 1 af hefðbundnum, comfort og premium spa aðgangi 🧘 Tilboð gildir út 5. ágúst
Bókaðu þína heimsókn á Hreyfing.is 💛